Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 9
mikið af lögum saman. Líka
textum. Að vísu allt á ensku
eins og þá gekk. Þegar við
vorum komnir í gangfræða-
skóla, þá byrjuðum við að spila
m.a. með Vilberg Viggós. Þetta
var svona strákahópur í kring-
um þetta. Við komum fram á
dansæfingum. eins og skóla-
böllin hétu þá enn. Við komum
fram í pásum hjá stóru bönd-
unum. Það er skemmtileg til-
viljun, að í fyrsta skipti sem að
ég kont frarn opinberlega í
Gagnfræðaskólanum, þá varð
það í pásu hjá hljómsveitinni
Náð. þar sent Rabbi var
trommuleikari. Við fórum svo
að spila saman tíu-ellefu árum
seinna.” Viðtal við Helga
Biörnsson söngvara í 29. tbl.
BB 1986.
Svobúið...
„Atburðinum sjálfum man ég
lítið eftir. Það eru bara smá-
gloppur. Ég man örugglega að
ég hékk í öryggisbeltinu á
leiðinni niður. Svo man ég
þegar vélin var alveg að koma
niður. Ég sá bara fjallið fyrir
neðan og hugsaði að nú slyppi
maður nú ekki. Næsta minnis-
leiftur er þegar vélin var komin
niður. Ég lá þarna og var að
hugsa að naumast rnundi nokk-
ur maður koma þarna upp á
reginfjöll. Svo var þetta búið.
Þó ég hafi verið að tala eitthvað
eða reyna að standa upp, þá
man ég ekkert eftir því. Ekki
fyrr en ég vaknaði á Borgar-
spítalanum, fimm dögum
seinna. Þá vissi ég ekki neitt.
Þá ntundi ég ekki einu sinni
eftir þessu. Þá var alveg klippt
á allt. alveg frá því vélin fór frá
ísafirði og flaug yfir bæinn. Ég
mundi eftirþví. Svobúið."Víð-
tal í 36. tbl. 1986 við Kristján
Jón Guðmundsson, annan
tveggja sem lifði af flugslysið í
Ljósufjöllum.
Börkurski/ar
veiafsér
„Uppgjörið vegna eigenda-
skiptanna á Frosta hf., í Súða-
vík er ntiðað við 1. október sl.
Ljóst er að rekstur fyrirtækisins
hefur gengið afar vel það sem
af er árinu. Endurskoðaðir
reikningar hafa enn ekki verið
lagðir fram, en óstaðfestar
fregnir herma að hagnaður
frystihússins ásamt rækju-
vinnslu nemi um 40 milljónum
krónaoghagnaðuraf Bessanum
35 milljónir króna. Hinn ný-
uppgerði Haffari er einn póst-
urinn enn af jákvæðara taginu.
Þar má heita að allt sé nýtt nema
skrokkurinn sjálfur. sem er í
ágætu ástandi. Ætla má að
skipið mætli nú selja á 140
milljónir króna, en allur til-
kostnaður við öflun þess og
endursmíði mun vera innan við
100 milljónir. Ekki verður því
annað sagt en að Börkur Aka-
son skili af sér blómlegu búi í
Súðavík íhendurhinum nýjum
eigendum.” Frétt í 42. tbl. BB
1986.
Jarðgöng, það
semkomaskai
„Hópur manna frá Vest-
fjörðum og Austfjörðum fór til
Færeyja í síðustu viku að kynna
sér jarðgöng og allt sem að gerð
þeirra lýtur. Ferð þessi var farin
að frumkvæði Fjórðungssam-
Kristjárt Jón Guðmundsson, annar tveggja sem lifði af fiugsiysið íLjósufjöiium.
bands Vestfjarða. Á fundi
sínum á Isafirði í sumar sam-
þykkti stjórn Byggðastofnunar
að taka þátt í kostnaði við
athuganir á þessum málum. í
lok ferðarinnar til Færeyja
samþykktu Vestfirðingarnir og
Austfirðingarnir sameiginlega
ályktun. þar sem þeir hvetja til
þess að gert verði átak í gerð
jarðganga á Islandi og skora á
Alþingi að veita til þess 250
milljónum króna næstu tíu
árin." Frétt í 43. tbl. BB 1986.
Viðmótog
viðtökur
isfirðinga
„Hannes Hafstein kont inn á
sviðið að loknu því mikla um-
rer fylgdi Skúlamálum. Hann
mun einhvern tíma ltafa látið
svo ummælt um viðmót og við-
tökur Isfirðinga, að sig hefði
bókstaflega kalið hér fyrstu
árin. Það mun liins vegar hafa
breyst á tiltölulega skömmum
tíma, og þá átti hann hér góða
daga og var vel látinn. Ég hef
ekki fundið fyrir þessu. Mér
hefur verið ágætlega tekið og
okkurhefur öllum liðið afar vel
hérna. Við höfum kunnað vel
við okkur þennan tíma og hér
eigum við ýrnsa góða vini. Að
vísu ekki mjög marga en ég hef
ekki orðið var við annað en
vinsemd.” Viðtal í 51. tbl. BB
1986 við Pétur Kr. Hafstein,
bœjarfógeta á Isafirði.
1987
Vfð verjum
ísafjörð
„En svo kom að því að ég lék
Isfirðing! Það er Jón nokkur
beykir, uppdiktaður af Ragnari
Amalds, mikill stuðningsmaður
Skúla Thoroddsens. Ég gerði
mig ágætlega ánægðan með
þetta þegar til kom. Nema eitt:
Það var ein setning sem ég
staldraði við á fyrsta sanilestri.
Þar segir Jón beykir einhverju
sinni, þegar liðsafnaður Skúla
stendur sem hæst og uppreisnin
er um það bil að hefjast: Við
verjum Isafjörð! Ég þótti segja
þetta afskaplega ósannfærandi,
lengi framan af æfingatíma-
num. Það stóð einfaldlega
þversunt í ntér að segja þetta.”
Viðtal í 2. tbl. BB 1987 við
Pálma Gestsson, leikara frá
Bolungarvík.
Konura
uppieið
„Menn hafa tekið eftir því,
að skipan kvenna á framboðs-
lista á Vestfjörðum fer eftir
ákveðinni og einfaldri reglu.
Hvenær sem nýr listi er lagður
fram. er kona einu sæti ofar en
á næsta lista á undan. Fyrstur
kom listi Sjálfstæðismanna. Þar
er kona í fimmta sæti. Annar
varlisti Framsóknarmanna. Þar
er kona í fjórða sæti. Þriðji var
listi Alþýðubandalagsins. Þar
erkonaf þriðjasæti. Samkvæmt
þessu verður því kona í öðru
sætinu hjá Alþýðuflokksmönn-
um, ef þeir verða númer fjögur
með sinn lista, eins og allt
bendirtil.Og þegarskynsamsati
maðurinn í H-Prenti heyrði
þetta, þá leit hann snöggvast
upp frá setningartölvunni og
mælti: Ég spái því að svo komi
K vennalistinn og þar verði kona
í efsta sætinu.” Úr 4. tbl. BB
1987.
Með Jöni
Baiðvin og
Brynðísi
„Ollý: Það semmérerminni-
stæðast og setur skemmti-
legastan blæinn á ntinningarnar
frá Isafirði, er að hafa kynnst
Jóni Baldvin og Bryndísi sem
kennurum og skólameisturum.
Og með fullri virðingu fyrir
Jóni, þá var ég rnjög hrifin af
Bryndísi og þótti mjög vænt
um hana sem meistara og
kennara. Siggi: Árið sem Bryn-
dís var skólameistari fannst mér
takast rnjög vel hjá henni. Eigin-
lega tókst henni betur en Jóni
að sentja við nemendur unt
skólahaldið. Jón var alltaf fjar-
lægari.” Viðtalí6. tbl. 1987 við
hjónin Sigurð Pétursson og
Olínu Þorvarðardóttur.
Þetta er
bækiun
„Þetta er Hnífsdalur. Hér vill
enginn búa. Nema þeir sem eru
fæddir hérna. Það er félagsleg
bæklun að fæðast í svona
krummaskuðum. Hérelst mað-
ur upp, eyðir hér bestu árum
ævinnar, og rankar svo ekki við
sér fyrr en maður er búinn að
byggja. Ef mann langar svo að
breyta til, að fara eitthvað
annað, þá er ekki hægt að selja.
Þetta er bæklun.” Viðtal í 16.
tbl. BB 1987 við Aðalbjörn
Jóakimsson, framkvœmda-
stjóra Bakka hf, í Hnífsdal.
Meðvitunðar-
iaus íálta vikur
„Það var 19. febrúar 1983.
Ég var að koma til baka frá því
að fara með yngri son ntinn inn
á flugvöll... Ég var svo heppinn
að vera einn í bílnum... Ég var
fluttur suður nteð þyrlu. Þeir
voru einmitt að kynna hérna
þyrlu frá Sikorski-verksmiðj-
unum. Þeir flugu með mig beint
suður á gjörgæslu, og þar var
ég meðvitunarlaus meira en átta
vikur. Þaðeróskiljanlegt hvern-
ig ég gat sloppið lifandi úr
brakinu. Ég tvíhálsbrotnaði og
viðbeinsbrotnaði og fékk mikið
höfuðhögg.” Viðtal í 17. tbl.
BB1987 við Hrein Eggertsson
frá Bolungarvík sem slasaðist
illa í bílslysi á Hnífsdalsvegi.
Hjólastólarall
„Á miðvikudaginn var haldið
svokallað hjólastólarall á plan-
inu fyrir framan nýja sjúkra-
húsið. Framkvæmdaaðili ralls-
ins var Svæðisstjórn Vestfjarða
um málefni fatlaðra. Mark-
miðið með framtakinu er að
vekja athygli fólks áferlimálum
fatlaðra, þeim hindrunum sem
verða daglega á vegi fatlaðs
fólks og hve mikluni erfið-
leikum það er bundið að komast
yfir þröskulda, skábrautir, í
gegnum dyr o.s.frv. Meðal
keppenda voru bæjarfulltrúar,
sveitarstjórar, byggingarfull-
trúi, skattstjóri, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi, yfirlæknir,
knattspymumenn og sálfræð-
Hefurðu
Þú getur meðal annars:
• Prentað út ókeypis
fœrsluyfirlit af tékkareikningi
• Tekið út peninga
• Athugað stöðu reiknings
Hraðbankinn er einfaldur
í notkun og opinn
allan sólarhringinn.
ISLANDSBANKI
/
Hafnarstrœti 1, Isafirði
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
9