Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 16
Ármann Leifsson, vöruf/utningabif
Sögusagnirnar
eru farnar að
skaða okkur
- segir Ármann um ummæli Olafs Halldórssonar, eins
eigenda ísafjarðarleiðar
eiðarstiori i
VöruflutningarArmanns Leifssonar eru ekkertað hætta á næstunni, hvað se
l/ður sögusögnum, segir Ármann Leifsson.
ÁRMANN LEIFSSON,
vöruflutningabifreiðastjóri í
Bolungarvíkhafði samband við
blaðið og vildi koma á fram-
færi eftirfarandi athugasemdum
vegna ummæla Olafs Halldórs-
sonar, eins eigenda Isafjarðar-
leiðar hf., í44. tbl. BB. þar sem
hann segist hafa gert tilboð í
rekstur Ármanns upp á 62
milljónir króna, eftir að séð
fyrirtækið auglýst á bílasölu í
Reykjavík, en engin viðbrögð
fengið.
„Ólafurhefuraldrei haftsam-
band við okkur vegna kaupa á
mínu fyrirtæki og það er ekki
til sölu, hvorki á bflasölum né
annars staðar. Menn eru að leika
sér með þessa hluti og þetta er
farið að skaða okkur. Við erum
að heyra allskonar helvítis kjaft-
æði út um allt sem engin fótur
er fyrir. Hann segist hafa gert
tilboð og engin svör fengið. Það
hefur enginn hringt í mig,
hvorki hann né aðrir og mér er
ekki kunnugt um að fyrirtæki
mitt sé til sölu. Hitt er svo allt
annað mál að ég gerði verð-
könnun á bílunum, ef til þess
kæmi að ég seldi þá, eins og t.d.
á þeint bíl sent skemmdist hjá
mér um daginn eftir veltu,”
sagði Ármann Leifsson.
„Hvað varðar kaup Eimskips
á fyrirtækinu, þá eru stað-
hæfingarÓIafs miklar. Eimskip
hefur verið í viðræðum víðar
um land og þreifað fyrir sér, en
það mál er ekki á því stigi að
menn séu að selja eða kaupa.
Við höfum átt viðræður við þá
Eimskipsmenn en það er ekkert
kornið að sölu á fyrirtækinu.
Og að Ólafur viti meira en ég
og láti hafa slíkt eftir sér, þykir
mér hart. Þetta er kjaftæði og
ég vildi gjarnan að hann komi
með rök fyrir þessum orðum,
viti hann meira um málið en ég
sjálfur. Þamaeru menn að reyna
að slá sig til riddara. Eg er ekki
farinn að sjá það, allavega ekki
með mínum rekstri, að menn
hristi 62 milljónir fram úr
erminni. En ef svo er, þá eiga
menn náttúrulega að hafa sam-
band við rétta aðila.
Við erum ekkert að hætta
neinum rekstri hér og fólk getur
leitað til okkar sem fyrr, bæði
með tilboð og annað. Við erum
búin að vera þrjátíu ár í þessu
og erunt ekkert að hætta,” sagði
Ármann. -s.
Stakkur skrifar
Bæiarins besta 10ára
UM ÞESSAR mundir er Bæjarins besta að fylla áratuginn.
Vissulega er það merkisáfangi í útgáfu héraðsfréttablaðs. Þá er
við hæfi að líta yfir farinn veg og skoða hvað hefur áunnist.
Margir velta þvf fyrir sér hvernig unnt sé að halda úti tveimur
fréttablöðum á Isafirði. Skýringin er auðvitað ein öðrum fremur.
Fréttaþorsti eða forvitni íbúanna hlýtur að vera svo mikil. BB hóf
göngu sína á mjög hógværan hátt, lítill blöðungur, fjölritaður án
mynda, en hefur vaxið og eflst að umfangi. Menn deila um efnið,
annað væri óeðlilegt. Mörgum finnst fréttir of smátt skornar, of
ntikið af brennivínsfréttum frá lögreglu og af ýmsum smábrotum.
En margt fleira kentur til, þessa. Þeir hafa að vísu orðið
skoðanakannanir fyrir bæjar-
stjórnarkosningar hafa gefist
ótrúlega vel, tækifæri til að
koma málstað á framfæri ein-
mitt í tengslum við kosningar,
viðtöl við ýmsa þekkta jafnt og
óþekkta og skoðun blaðsins í
leiðara, auk fastra dálka eins og
misjafnlega langlífir. Lífs-
seigastur varð Hákur, sem viku-
lega varpaði fram ýmsum mál-
unt bæði héraðs-og þjóðmálum
og stundum var honum svarað.
Einnig hafa aðrir lifað, en
skemur, og er þar að minnast
Kjóa auk annarra. Lesendur
hafa einnig ritað BB bréf og
ekki alltaf komið fram undir
nafni. Fámennið getur gert
mönnum erfitt fyrir. Það er
einhvern veginn svo, að Is-
lendingar eiga erfitt með að
skiptast á skoðunum án þess að
verða persónulegir. Með því er
átt við fyrst og fremst að
persónan sem heldur frarn
skoðun verður stærri þáttur um-
ræðunnaren skoðunin sjálf. Svo
virðist sem skoðunin skipti
minna ináli ef það erekki réttur
maður sem hefur Itana.
En hvaða tilgangi þjónar BB.
Er ekki nóg að hafa Vestfirska
fréttablaðið, sent gefur var út
áður, auk pólitísku blaðanna
sem vakna af dvala um jól, á
sjómannadaginn og unt kosn-
ingar? Nú er líka komið Svæðis-
útvarp Vestfjarða í eigu Ríkis-
útvarpsins. Á þá BB nokkurt
erindi lengur?
Að sjálfsögðu eiga allir
miðlar erindi. Undir þeint
sjálfum er komið hversu mikið
og hvort þeir þjóna öðru en að
segja frá einhverju sem er ein-
faldlega staðreynd. Lítið hér-
aðsfréttablað hefur ekki sömu
möguleika og stóru dagblöðin
á því að fjalla á vandaðan hátt
um þá málefni sent hæst ber í
umræðunni hverju sinni. Oft
kynni reyndar að vera um
endurtekningu að ræða vegna
eðlismunar dagblaðs og viku-
blaðs. I þessu samhengi á
héraðsfréttablað möguleika á
umfjöllun um staðbundin mál
og birtingu viðtala við hina
hæversku landsbyggðarmenn
um þau málet'ni er jafnan hljóta
ekki umfjöllun stóru fjölmiðl-
anna. Ekki er ósennilegt að þau
hafi haft áhrif á dagblöðin í þá
veruna að einbeita sér að lands-
byggðinni frekar en áður var.
Ekki má gieyma því að oft
vitna bæði dagblöð og ljósvaka-
ntiðlar í efni héraðsfrétta-
blaðanna og er framtak Ríkis-
útvarpsins að lesa úr þeim á
mánudögum virðingarvert. Á
þennan hátt halda þau og þar á
Erum búnir að opna
Vélaverslun
að Smdragötu 8, ísafirði
Hitachi rafmagnsverkfæri
Kempí suðuvélar og rekstrarvörur
Verkfæri Slípivörur
Nsk kúlulegur Búkkalegur
Flangslegur Astengi
Drifkeðjur
Asamt miklu úrvali af boltum,
V
skrúfum og ýmsu fleiru!
w
Vélsmiðjan
Prístur hf.
ísafirði • Sími 4750
Opið virka daga kl. 8-18
Laugardaga kl. 10-12
meðal BB nafni landsbyggð-
arinnar hátt á lofti og mun ekki
af veita. Hins vegar ber ávallt
að varast að stilla Reykjavík og
nágrenni annars vegar og lands-
byggðinni hins vegar upp sem
andstæðum. Okkur Islend-
ingum er öðru fremur nauðsyn
þess að standa saman. Eilíft
skæklatog skilar okkur ekki
fram um veg. Sama gildir að
sjálfsögðu um einstakarbyggðir
landsins austan Elliðaáa.
Stundum mætti leiða saman,
frekar en gert er, forsvarsmenn
á landsbyggðinni. ekki síst á
Vestfjörðum, og skoða og skil-
greina sameiginlegar þarfir
Vestfirðinga. Allt of oft gleym-
ist að aldamótin nálgast og
aldrei er spurt hér um slóðir
hvert við ætlum okkur á næstu
öld. Hvað bíður okkar? Því er
ekki gott að svara, en þá kemur
að því hlutverki sem héraðs-
blöð mega gjarnan rækja betur.
Þau eiga að sinna því að vera
samviska byggðarinnar.
Til hamingju með afmælið.
-Stakkur.
3X-STÁL í
Starfsmenn
óskast
Óskum að ráða
menn vanasmíðiúr
ryðfríu stáii. Upp-
iýsingar eru veittar
á staðnum eða í
síma 5079.
3X-STÁL hf.
Suðurtanga 7,
ísafirði.
16 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994