Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 10
Ós/(um (B‘B tUfiamingju með 10 ára afrruzíið ogfarstzfUar íframtiðinni BÁSAFELL HF. Sindragötu 1 - ísafirði Safnari af iífi og sái, Sigurjón Samúeisson bóndi á Hrafnabjörgum. ingur." Úr frétt í 32. tbl. BB 1987. Safnaríaf lífi ogsál ,,Einn af afkastamestu hljóm- plötusöfnurum á landinu er tví- mælalaust Sigurjón Samúels- son, bóndi á Hrafnabjörgunr í Laugardal í ísafjarðardjúpi. Hann hefursafnað hljómplötum í þrjátíu og fimm ár... Sigurjón byrjaði að safna plötum árið 1952, þá 16 ára gamall og samkvæmt síðustu talningu hjá honum er safnið kornið upp í 3004 eða 3005 eintök, þar af er um helmingurinn íslenskar plötur. Elsta hljómplatan í safninu er frá árinu 1904 og er dönsk. Flytjendur á henni eru þau Tenna Fredriksen og Vil- helnt Herold. Elsta íslenska platan er frá árinu 1907 með óperusöng Péturs Jónssonar sem var í miklu uppáhaldi hjá honum en Pétur er fyrsti Is- lendingurinn sem söng inn á hljómplötu.” Úrfrétt í 36. tbl. BB 1987. Veiúúi silung með goifkyifu „Það hefur alla tíð fylgt veiði- skap og sjómennsku að segja ótrúlegar sögur af sér og sínum. Þá eru ýkjur og handapat venju- lega ekkert sparað. Svo kemur það oftast „upp úr kafinu” að þeir sem segja frækilegustu sögurnar hafa veitt minnstu og fæstu fiskana. En það eru ótrú- lega fáir sem geta sagt jafn ótrú- lega veiðisögu og Gunnsteinn Jónsson, án þess að ýkja neitt. Gunnsteinn er ntikill golfáhuga- maður, og eins og segir frá annars staðar í blaðinu, sigraði hann á Meistaramóti Golf- klúbbs ísafjarðar um helgina. A þessu móti. sent haldið var í Tungudal, varð hann fyrir því óláni á fjórðu braut að boltinn ltans fór út í á. Gunnsteinn óð út í til að leita að boltanum, og rakstþáásilung ívatninu. Hann var fljótur til og rotaði fiskinn með járnkylfu sent hann var með í hendinni. Silungurinn mun vera um pund að þyngd, og er nú vel geymdur í frysti hjá Gunnsteini." Úrfrétt í 37. tbl. BB 1987. Stórðrunií ísafjarðarkirkju „Snemma á mánudagsmorg- un átti sá hörmulegi atburður sér stað, að það kviknaði í ísa- fjarðarkirkju. Kirkjan var vígð af séra Hálfdáni Einarssyni árið 1863 og er því 124 ára gömul Allt tiltækt slökkvilið á ísafirði og íHnífsdal, alls 24menn voru kallað út um klukkan hálf fmm. Það tók um eina og hálfa klukkustund að slökkva stærsta eldinn, og um sjöleytið hafði tekistaðslökkvaallaneld. Kom þá í ljós að gífurlegar skemmdir höfðu orðið á kirkjunni. Altarið er brunarústir einar, orgel- pípurnar hafa greinilega bráðn- að eins og smjör, og stytta af Jesú Kristi, sem stóð á altarinu, sprakk af þvflíkum krafti að bort úr henni dreifðust um alla kirkiu." Úr frétt í 40. tbl. BB 1987. Fyrsta og eina kúiuhúsið á ísafirði. Fvrstakúiu- húsið „Það hefur vakið athygli ferðamanna, jafnt sem ísfirð- inga, að innst á Seljalandsvegi hefur verið byggt kúluhús. Eigendur þess eru hjónin Ást- hildur Þórðardóttir og Elías Skaftason. Þó húsið sé áberandi á sinn sérstæða hátt. t'ellur það samt ótrúlega vel inn í um- hverfið. Maður fær það á til- finninguna, að það sé bolti sem hefur verið hent af þvílíkum krafti í jörðina, að aðeins helmingurinn stendur upp úr.” Úr frétt í 42. tbl. BB 1987. Fékkhákarí áfæri „Hann var fremur óvenju- legur, at'linn sem Gunnar Valdi- ntarsson dró á land á bátnunr sínum, Sigurbjörgu ÍS-411 frá Flateyri, seinnipart mánudags. Gunnar hafði verið á handfæra- veiðunt út af Bjargarvík í Önundarfirði, þegar eitthvert stórt kvikindi beit á hjá honum. Gunnar var einn á bátnum, sem er lítill Færeyingur, og varð því að eiga við það sjálfur. Það tók hann langan tíma að þreyta skepnuna áður en honum gafst færi á að skjóta hana í hausinn. Hann gat ekki náð henni upp í bátinn og varð því að draga hana til lands. Þegar í land var konrið, kom í ljós að dýrið sem hann hafði krækt í var 140 kílóa hákarl. Ekki er vitað til þess að hákarl hafi áður verið veiddur á færi. A.m.k. ekki á þessum slóðum.” I'Jrfrétt í 44. tbl. BB 1987. Bienúinheim- þrá „Maður er alltaf með blandna heimþrá. Það er margt sem maður hefur hér, en líka margt sem maður saknar. Við reynum að fara heim á hverju ári en tvö árin höfum við ekki komist... Isafjörður er tilvalinn til staður fyrir börn að alast upp á. Þar er svo margt sem heillar barns- hugann, bæði stutt upp í fjall og niður á bryggju að dorga og svo auðvitað skíðaaðstaðan.” Við- tal í 59. tbl. BB 1987 við Þors- tein Jóhunn esson, yfirlœkn i og eiginkonu hans Friðný Jó- hannesdóttur. Gottefhann litirtil haustsins „Það var alltaf mikið líf í mér í æsku. Eg átti það til að hlaupa rnikið út á götu, án þess að líta til hægri eða vinstri. Eitt sinn var það að ég var að hlaupa yfir Hafnarstrætið að Einar Ingvarsson, fyrrverandi banka- stjóri, kom akandi á nýjum bíl. Hann hafði boðið einhverjum vini sínum með sér. Þegar hann kernur að þar sem ég er að hlaupa yfir götuna, þá munar litlu að ég verði fyrir honunt. Ég rétt slepp við hornið á bílnum. Hann hefur sennilega tekið einn rúnt niður á höfn og uppeftiraftur. Þegarhann tekur til baka að þeim stað þar sem ég hafði nærri orðið undir bílnum örskömmu áður, þá er ég enn að hlaupa yfir götuna. I þetta sinn slapp ég ekki jafn vel og í fyrra skiptið. Ég rekst utan í bílinn og féll við og ligg í götunni. Einari bregður mikið við þetta. Hann stekkur út úr bílnum og beygir sig yfir mig. Þá ranka ég við mér og hleyp í burtu. Þá segir Einar: Ég kalla það gott ef þessi drengur nær að lifa til haustsins." Viðtal í 60. tbl. BB 1987 við Sigurð Sigurðsson, Blóma-Sigga. 10 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.