Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 12
Úr gömlum b/öðum
Aðferðast
frítt
Égfórtil hans Sverris á Ferðaskrifstofunni nú ádögunum, því
ég þurfti að fara suður. Ætlunin var að leita að ódýrara fargjaldi
en þessu venjulega. Sverrir tók mér vel og við byrjuðum að leita
að ódýru fargjaldi til Reykjavíkur.
Ég ætlaði ekki með konuna, þannig að ekki fékkst fjölskyldu-
afsláttur. Ég var ekki nógu gamall fyrir elliafslátt og ekki nógu
ungur fyrir barnaafslátt. Ég var ekki í hópferð og fékk því ekki
hópferðaafslátt, ekki í skóla fyrir skólaafslátt, ekki íþróttamaður
fyrir íþróttaafslátt. Ef ég hefði komið fyrr hefði ég getað keypt
allskyns pexa og apexa ódýrt. Hvorki ég né konan mín vinnum
hjá Flugleiðum, þannig að ekki var þar afslátt að fá, né var ég
hluthafi í Flugleiðum og fékk því ekki hluthafaafslátt.
Við vorum ekki komnir lengra er við vorum truflaðir af
tveimur góðum viðskiptavinum sem voru á leið til Danmerkur.
Þeir sóttu farseðla og fengu sérstakan innanlandsafslátt, hins
vegar var ekki hægt að skilja hvers vegna annar fékk innanlands-
„legg” frá Kaupmannahöfn til Alaborgar frítt. Síðan héldum við
Sverrir áfram. Hann bauð mér ódýran farseðil áfram t.d. til
Vestmannaeyja eða Akureyrar. Já, hann Sverrir, hann bauð fram
marga möguleika á afslætti en einhvern veginn var enginn fyrir
mig. En þegar Sverri datt í hug að spyrja hver vegna ég væri að
fara suður og ég sagði honum að ég væri að fara til læknis, kom
kostaboðið. Frítt far - eða því sem næst. Ég fengi fargjaldið
endurgreitt í sjúkrasamiaginu hjá Haraldi, bara að fá rétta pappíra.
Þetta voru sko viðskipti í lagi og góð þjónusta. Fór inn til að
fá ódýran farseðil og fékk frían. Bara að finna góða ástæðu.
Ég var svo ánægður er ég kom frá Sverri að ég kom við hjá
Pétri bæjarfógeta og borgaði með glöðu geði inn á skattinn. Svo
var það þegar ég var sestur upp í flugvél inn á velli að ég fór að
hugsa: Hve margir farþegar í vélinni skyldu nú hafa greitt fullt
fargjald? Hvað ætli séu margar tegundir afsláttar í boði? Væri
ekki möguleiki að farþegarnir 44 hafi greitt sitt fargjaldið hver
og engir tveir það sama?
Kannske var það flugfreyjan sem tók af öll tvímæli þegar hún
las upp nýjan texta: „Góðir farþegar, fyrir hönd Flugleiða,... og
vinsamlegast hafið beltin spennt. Vinsamlegast ræðið ekki far-
gjaldið sem þér greidduð við sessunaut yðar. Takk fyrir og góða
ferð.”
Já, með sömu vél á sama tíma og á sama stað geta verið yfir40
mismunandi fargjöld og það má ekki ræða.
Dálkahöfundur í 35. th. BB, 1. októher 1985.
varð til þess að ég fór við fyrsta
tækifæri. Þarna var töluvert af
fólki, aðallega sjómenn af
ýmsum þjóðernum. Þar heyrði
ég boðskap Biblíunnar og að
maður yrði að frelsast til að
öðlast eilíft líf.” ViOtal í41. tbl.
BB1988 viðSigfús Valdimars-
son, kristniboða með meiru.
Svörtbókum
starfsfó/k
„Verkstjórar Hraðfrystihúss
Dýrfirðinga héldu bók um
starfsfólk fyrirtækisins síðast-
liðin 6-7 ár, þar sem þeir færðu
inn ýmsar athugasemdir um
það. TrúnaðarmaðurH.D. kom-
st að þessu fyrir nokkru og fór
hann þá fram á það á fundi
verkalýðsfélagsins að beðið
yrði um álit lögfróðra manna á
lögmæti þess að halda slíka bók.
Verkalýðsfélagið sinnti því ekki
og skömmu síðar var bókin
eyðilögð af yfirmönnum fyrir-
tækisins. „I bókina voru færðar
frásagnir af ýmsum deilumálum
milli verkstjóra og starfsmanna
og stundum voru jafnvel háðs-
yrði í garð viðkomandi starfs-
manns,” sagði Jóhannes F.
Jóhannesson, trúnaðarmaður
starfsmanna í samtali við blað-
ið.” Frétt Í46. tbl. lílt 1988.
Bjó tilrigningu
fyrir Gatidafi
„Ég hef nú tekið mér frí frá
turninum stöku sinnum, farið
til útlanda og 1982 fór ég að
vinna t' fjóra mánuði í Líbýu.
Það kom þannig til að kunningi
minn á varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins spurði
mig hvort ég væri tilbúinn til að
fara í nokkra mánuði til Líbýu
og halda gangandi fyrir þá
radartækjum. Ég þóttist klár í
það. Það verkefni sem ég vann
aðallega að var kallað „Cloud
seeding”, skýsæðing. Það fólst
í því að finna ákveðna tegund
skýja sem nefnast Nimbus
Cumulus og sprengja þau til
þess að fá úrkomu. Þessir
Nimbusar eru yfirklæddirhagl-
strókar í um 8-15 þúsund feta
hæð. Við flugum að þeim á
litlum flugvélum með sprengju-
vörpu sem var hlaðin með 20
litlum sprengjum sem innihéldu
silfuroxíd. Þegar því er skotið í
Nimbusinn fer hann að falla
niður sem regn." Viðtal í 50.
tbl. 1988 i’ið Gríms Jónsson,
flugradíómann með meiru.
Vínið varðhiuti
afmér
„Vínið var eins og hluti af
mér. Ég var byrjaðu á þessu og
því gat enginn breytt. Það var
orðiö vandamál strax í upphafi.
Ég man að eftir fyrsta fylleríið,
þá leið mér aldrei vel ófullum.
Það var í mér einhver óróleika-
tilfinning sem ég vissi að ég gat
lagað með brennivíni og ég
gerði það. Ég man aldrei eftir
mér öðruvísi en til einhverra
vandræða, það voru alltaf ein-
hverjir að segja mér að hætta en
és hlustaði ekki á neinar rök-
ræður um þessu mál. Ég get
hvorki kennt sjálfum mér né
öðrum um þetta. Og músík-
bransinn kemur þessu ekkert
við. Málið er að sumt fólk er
þannig tilfinningalega gert að
það sér, á vissum tímum, enga
aðra lausn. Sumir fara þessa
leið. Mennirnir verða að geta
lært hver af öðrum. Ég er sá
maður sem fer þessa leið. Síðan
breytist þetta í sjúkdóm.” Við-
tal í52. tbl. 11111988 viðRúnar
ÞórPétursson, tónlistarmann.
1989
Í300manna
tangeisi
„Þegar komið var með mig
var mér hent inn í biðklefa sent
menn voru settir í áður en þeir
fara í sjálft fangelsið... I þessu
fangelsi eru um 300 manns og
því er skipt í þrjár álmur, varð-
haldsálmu sem ég var settur og
90 manns voru í, álma fyrir
fanga sem höfðu hlotið dóma
og sú þriðja fyrir þá sem höfðu
vinnu innan fangelsisins. Þar
voru aðallega fagnar sem höfðu
hlotið langadóma, þvíþað tekur
a.m.k. ár að fá vinnu í fang-
elsinu... Síðasti mánuðurinn,
desember, var sá allra erfiðasti.
Þegar fór að dimma þá gjör-
breyttist ástandið. Þá voru teknir
margir ungir eiturlyfjaneyt-
endur sem voru flestir illa
haldnir. Þann tíma sem ég sat
inni styttu sex ungir drengir sér
lífið þarna, aðeins 18-20 ára
gamlir... Ég fór í nokkur partý
og þar sá ég meðal annars 12
ára stúlku sprauta sig ineð
heróíni. Þann dag sá ég hvaða
áhrif eiturly fjaneysla getur haft
og þá fékk ég ógeð. Og á næstu
dögum fór líf mitt að taka nýja
stefnu.” Úr viðtali í2. tbl. 1989
við Úlfar Sigurðsson, ungan
lsfirðingsem sat ífangelsi íV-
Þýskalandi fyrir eiturlyfja-
smygl.
Bræðiriifur
niðuríiýsi
„Nú um áramótin byrjuðu
sjómenn áGuðbjarti ÍS að hirða
alla lifur úr fiski sem veiðist
síðustu fjóra daga í hverjum
túr. Þeir fá 15.50 krónur fyrir
hvert kíló og geta því bætt
nokkuð við launin með þessum
hætti. Síðustu tvær vertíðir
hefur Norðurtanginn einnig
greitt sjómönnum á línubátun-
um þremur fyrir lifur en að sögn
Jóns Páls Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra Norðurtangans
er verðið fyrir lýsi nú orðið það
gott að ástæða þótti til að hirða
lifur á Guðbjarti líka.” Úrfrétt
í 4. tbl. 1989.
Tveimur
mönnum
bjargað
„Rækjubáturinn Kolbrún ÍS
sökk í svokallaðri Prestabugt
út af Hraðfrystihúsinu Norður-
tanga hf„ um klukkan 22 í gær-
kvöld. Tveir menn, þeir Gísli
Jón Kristjánsson, skipstjóri og
Haraldur Konráðsson voru á
Kolbrúnu. Þeim var bjargað
eftir nokkurra mínútna volk í
sjónum um borð í rækjubátinn
Oskar IS. Voru þeir oðnir kaldir
og þrekaðir. Líkamshiti Gísla
mun hafa verið kominn niður í
32gráður. Báðirmennimirvoru
í flotgöllum og mun það hafa
orðið þeim til lífs.” Úrfrétt í7.
tbl. 1989.
Heiúéggangi
heim
„Það Itefur líklega aldrei
verið jafn mikið að gera á ntið-
vikudegi í Ríkinu á ísafirði og
1. mars sl. Á einum degi seldust
16.000 dósir af bjór og 3.840
dósir voru sendar á staði utan
ísafjarðar. Og á föstudag var
öll fyrsta sendingin uppseld,
960 kassar. Allhörðustu bjór-
aðdáendurnir voru mættir fyrir
klukkan níu fyrir utan áfengis-
útsöluna og biðu þar í bílum
sínum eftir að lásinn yrði tekinn
af og mjöðurinn góði fengist
keyptur á löglegan hátt á ís-
landi í fyrsta sinn í 70 ár.” Úr
fréttílO. tbl. 1111 1989.
Fiuttínýja
sjúkrahúsið
,,Það var handagangur í
öskjunni síðastliðinn fimintu-
dag á sjúkrahúsunum tveimur á
ísafirði þegar flutt var í nýja
sjúkrahúsið úr því gamla. Þegar
BB kom á staðinn var verið að
bera sjúklingana út í sjúkrabíla,
raða ýmsum búnaði á vörubíl,
ákveða hvað færi yfir og hvað
ekki, taka til og ganga frá. Ekki
létu allir þennan fyrirgang hafa
áhrif á sig, náttúran hefur sinn
gang og á fimmtudagskvöld
kont nýr Vestfirðingur í heim-
inn á gamla sjúkrahúsinu.” Úr
frétt í 11. tbl. 1989.
Kristján G. Jóakimsson.
Hneigðum
okkur í símann
„Hneigingarnar og beyging-
arnar eru kapítuli út af fyrir sig.
Menn hneigja sig þegar þeir
heilsast og kveðjast og því oftar
sem meiri virðing er borin fyrir
viðmælandanum. Ef menn bera
mikla virðingu fyrir þeim sem
þeir sig oft og mörgum sinnum
og snúa sér jafnvel við þegar
þeir eru komnir spöl í burtu og
hneigja sig í viðbót. Við pöss-
uðum okkur svo vel að við
vorum farin að hneigja okkur í
símann.” Úr viðtali í 14. tbl.
BB 1989 við lijónin Sigrúnu
Sigvaldadóttur og Kristján G.
Jóakimsson, sem bjuggu um
18 mánaða skeið í Japan.
Útskritaður án
próttöku
„Einn ef nemendum Iðn-
skólans á ísafirði var útskrifaður
með 2. stigs vélstjórnarpróf
vorið 1988 eftir tveggja anna
nám, með réttindi til að vinna
við 1000 hestafla vél, án þes að
hafa tekið öll tilskilin próf. Að
jafnaði tekur slíkt nám fjórar
annir. Kennslustjóri iðnsviðs
skólans bjó til einkunnir fyrir
nemendann í fimm fögum án
vitundar skólastjóra en að eigin
sögn í samtölum við skólanefnd
eftir viðræður við kennara.” Úr
frétt í 16. tbl. 11B 1989.
HáttáníBúð
kemur
„Nýtt skip sem Hraðfrysti-
húsið Norðurtangi hf„ hefurátt
í smíðum síðasta ár í Svíþjóð
kom til heimahafnar á Isafirði
helgina. Skipið er 252 tonn og
hefur hlotið nafnið I lálfdán í
Búð. Skipið byrjar á grálúðu-
Nú er rétti
tíminn tii
að panta
augiýsinga-
pláss fyrir
jóiin.
Hringið í
síma 4560
eða 4570
og kannið
hvað /
boði er.
Úr göml-
um blöð-
um
Okintiin
Gróðurreitinn girðir
gaddavír á streng.
Vörðinn standa stirðir
staurarnir í keng.
Rolla liggur í leyni
laumast inn um gat.
Bítur brum af reyni
bólgnar út af mat
Börk af birki nagar
blæðir saftin römm.
Yfir kjarrið kjagar
kjaftfull rolluskömm.
Fura fjalli bundin
flýr ei örlög sín.
Dimm er dauðastundin
dýrið gráðugt hrín.
I valinn fellur fífill
sem fól sig inn um grjót.
Um rjóðið ráfar hnýfill
og rífur gras við rót.
Vargur vígamóður
vægir engu tré.
Etur allan gróður
sem áður náði í hné.
Þegar foldin fýkur
og flýr út á sæ.
Hold á hrúti strýkur
höndin inn í bæ.
Bóndi brosir rjóður
býst við vænum dilk.
Hann grætur ekki gróður
sem grær á mjóum stilk.
Gæðakjötið góða
er gefið út um lönd.
Húsfreyjur þar hljóða
og henda fiturönd.
Útlend öskutunna
ávöxt jarðar fær.
Bert er landið brunna
þér blæðir móðir kær.
Höf : Jón.
Með kveðjufrá baráttu-
samtökum um sauðlausan
bœ.
er verið að kveðja þá hneigja
Ú/far Sigurðsson kynntist þýsku fangeisi.
12 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994