Bæjarins besta - 16.11.1994, Side 26
Hífingarvindurnar eru 12,0/
21,0 tonna miðað við átak á
tíma tromlu og dráttarhraði er
31 metri ámínútu. Pokalosunar-
vindur eru 8,5/15,0 tonna og
dráttarhraðinn er 25 metrar á
mínútu miðað við tóma tromlu.
Utdráttarvindurnar eru 4,0/6,5
tonna og dráttarhraðinn er 52
metrar á mínútu. Flottrolls-
vindurnar eru 11,0/15,4 tonna
miðað við átak á tóma tromlu
og dráttarhraðinn er 61 metri á
mínútu. Stjórntæki fyrir fram-
angreindar vindur frá Rafboða-
Rafur eru í brúnni aftanverðri.
Togvindurnar eru útbúnar með
sjálfvirkum búnaði til þess að
jafna togátak. Einnig er hægt
að stjórna vindukerfinu úr sér-
stökum vindustjórnarklefa á
togþilfarinu.
Hjálparvindurnar frá Osey
hf., og Héðni hf., eru m.a.
ætlaðar fyrir bakstroffuhífingar
og til að draga út gilsavír.
Losunarkranarnir eru annars
vegar með 5,0 tonna lyftigetu,
miðaðvið 14metralanganarm.
Skipið er útbúið með sér-
stökum ísgálgum, sem eru
vökvaknúnir toggálgar, en þessi
búnaður hentar einkar vel þegar
togað er í ís. Með gálgunum er
hægt að minnsta bilið á milli
togvíranna og stýra vírunum
svo til beint aftur í kjölfarið úr
skipinu. Það dregur úr hættunni
á að ísjakar skemmi vírana. Allir
toghlerar eru af gerðinni Poly-
Ice frá J. Hinrikssyni hf. Til
botntrollsveiða verða notaðir
tveir 10 fermetra og 3500 kg
hlerar og til flottrollsveiða tveir
13 fermetra og 3400 kg hlerar
með spoiler. Þess má geta að
þetta er þriðja Guðbjörgin sem
notar Poly-Ice toghlera en út-
gerðin keypt fyrsta toghlera-
parið árið 1979 og hafa ekki
aðrar gerðir toghlera verið í
notkun í Guðbjörginni síðan.
Fullkomið
frystihús
I hinum nýja frystitogara er
fullkomið frystihús, rækjuverk-
smiðja og mjölverksmiðja. Svo
fjölbreytilegir vinnslumögu-
leikar hafa ekki áður verið í
nýju íslensku fiskiskipi.
Fyrirkomulag vinnsluþil-
farsins var hannað af Skipa-
tækni hf., en um útfærslu, smíði
fiskvinnslubúnaðar með til-
heyrandi færiböndum og niður-
setningu á þessum búnaði sá
Landssmiðjan hf. Snyrti- og
flokkunarkerfi er frá Marel hf.
Fiskmóttakan í Guðbjörginni er
alls um 86 rúmmetrar að stærð.
Frá móttökunni fer fiskurinn á
færibandi að blóðgunaraðstöðu
en þar geta allt að níu manns
unnið samtímis við blóðgun á
fískinum. Tíu blóðgunarköreru
inn af móttökunni og er krapís,
sem framleiddur er um borð.
notaður til að kæla fiskinn. Af-
kastageta ísframleiðslubúnað-
arins, sem er frá Sunwell, er
fimm tonn á sólarhring.
Um fjórar vinnslurásir er að
velja um borð í Guðbjörginni. I
fyrsla lagi má nefna flaka-
vinnslu fyrirbolfisk, í öðru lagi
heilfrystingu fyrir t.d. karfa og
grálúðu, í þriðja lagi rækju-
Óskum útgerö
og áhöfn
Guöbjargar ÍS 46
til hamingju
meö nýtt og
glœilegt skip.
Guöbjörgin er
útbúin snyrti-
og flokkunarkerfi
frá Marel hf.
Marel hf„ Höfðabakka 9,112 Reykjavík
Sími: 91-878000, Fax: 91-878001
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýja skipið.
Eftirtalinn búnaður frá BRIMRÚN HF. er í skipinu:
FURUNO F9JRUNO SKANTI
CSH-22F litasónar FAX 214 veðurkortamóttakari TRR-8400 MF/HF talstöð
CN-22 höfuðlínumælar T-2000 sjávarhitamælir VHF: 3000 VHF talstöð
FR 2030S radar FM-2520 VHF talstöð VHF: 9110 talstöðvar
GD-500 radarplotter FM-7000 VHF talstöð WR: 6020 vörður
NX-500 navtex móttakari FD-527 VHF miðunarstöð EPIRP TP-2 neyðarbauja
Annað:
• Alcatel, símakeiýi hannað <?g byggt af Brimrún hf. • Motorola, NMT farsímar. • Steenhans, kallketfi. y Hólmaslóð 4 K rímrun ht Revkjavík Sími 91-610160
Skipstjórarnir á Guóbjörgu, Guðbjartur Ásgeirsson og Ásgeir Guóbjartsson.
vinnslu og síðast en ekki síst
ntjölvinnsluna.
Eftirtalin fiskvinnslutæki frá
Baader er að finna í Guð-
björginni. Baader 161 slæingar-
og hausunarvél fyrir bolfisk,
tvær Baader429A hausunarvél
með innyflasugu fyrir karfa,
grálúðu og bolfisk, Baader 185
PK tölvustýrð flökunar- og roð-
flettivél fyrir bolfisk og Baader
187 flökunarvél fyrir bolfisk.
I rækjuverksmiðjunni eru
þrjárCamitech rækjuflokkunar-
vélar, sem hver um sig afkastar
um 1250 til 1500 kílóum á
klukkustund, tveir Carnitech
rækjusjóðarar og tvö Carnitech
litunarkör sem hvort um sig af-
kastar um 700 kílóum á klst.
Fiskimjölsverksmiðjan er frá
Stord International og geturhún
unnið úr 25 til 30 tonnum á
sólarhring. Mjölinu er pakkað í
35 kílóa sekki og þeim er síðan
komið fyrir í mjöllestinni.
MikHsjáltvirkni
í vinnslunni er alls níu Marel
tölvuvogir og ein flæðivog að
auki. Búnaðar til frystingar
kemur frá Midt- Troms a/s og
samanstendur hann af þremur
sjálfvirkum plötufrystum frá
Odin, einum handvirkum plötu-
frysti frá A/S Dybvad Staal
Industri og lausfrysti frá Lands-
miðjunni. Afköst plötufryst-
anna eru um 70 tonn af afurðum
á sólarhring. Sjálfvirku fryst-
arnir afkasta liver um sig 18,8
tonnum af flökum og sá hand-
virki getur afkastað 14 tonnum
miðað við heilfrystan fisk. Af-
köst lausfrystisins eru um 7,5
tonn á sólarhring miðað við
frystingu á flökum en 20 tonn
miðað við lausfrystingu á rækju.
Sjálfvirku plötufrystarnir eru
þannig gerðir að þegar búið er
að pakka afurðunum í öskjur
og setja þær í pönnur, þá raðast
pönnurnar sjálfvirkt inn í tækin.
Hið sama gerist við losun.
Pönnurnar flytjast sjálfkrafa úr
tækjunum og öskjurnar slást
sjálfkrafa úr pönnunum. Frosnu
öskjurnar fara sjálfkrafa á færi-
bandi til pökkunar í kassa.
Öskjunum er handraðað í kassa-
na og fyrir þá er bundið með
Strapack bindivél og þeir eru
merktir sjálfvirkum umbúðar-
prentara frá Willet. Frá bindi-
vélinni fara kassarnir á færi-
bandi að lyftu og þaðan niður í
lest. í lestinni er sjálfvirkt færi-
bandakerfi, sem líkt og út-
sláttarbúnaðurinn er frá Odin,
en svipaður búnaður hefur t.d.
verið tekinn í notkun í Arnari
HU og Vigra RE.
Færibandakerfið, sem líkja
má við hringekju, virkar þannig
að kassarnir færast sjálfkrafa
eftir iestinni þangað til bandið
er fullt en þá þurfa skipverjar
að stökkva til og losa bandið.
Þess má og geta að plastum-
búðir fyrir afurðimar eru allar
frá Acoplast og sala afurða er í
höndum Seifs hf., nema hvað
Isberg hf., sér um sölu á Bret-
landsmarkaði.
Tæknin í brúnni
Líkt og í öðrum nýjum fiski-
skipum eru mjög fullkomin
fiskileitar-, fjarskipta- og sigl-
ingatæki í Guðbjörginni. Flest
ný siglingar- og fiskileitartæki
í skipinu eru frá framleiðendum
sem Ismar hf., og Brimrún hf.,
hafa umboð fyrir en nokkuð er
einnig um eldri tæki. Helstu
tæki eru þessi:
Ratsjáreru þrjártalsins. Atlas
9600 (1 Osm S), Atlas 9600 (3m
X), Arpa og Furuni FR 2030
(lOsm S) með innbyggðum
plotter. Seguláttaviti, gýró-
áttaviti, sjálfstýring og veg-
mælir eru frá C. Plath. Ör-
bylgjumiðunarstöð er af gerð-
inni Furuno FD 527. Leiðar-
ritar eru alls þrír: Furuno
GD500 (ratsjárplotter) meðlita-
skjá, Ocean Tech. Sea Plot og
Macsea stjómtölva. Loran/GPS
tæki er frá Trimble Navigation
en frá sama fyrirtæki eru einnig
tveir gervitunglamóttakarar af
gerðinni NT200 með Nav-
beacon XL leiðréttingarbúnaði.
Dýptarmælar eru frá Atlas.
Báðireru djúpsjávarmælarmeð
veltibotnsstykkjum og eru þeir
tengdir litaprentara frá Hewlett
Packard. Tveir sónarar eru í
skipinu. Annar er Furuno CSH
22 F Omni sónar með litaskjá
og hinn er höfuðlínusónar t'rá
Simrad og er sá með kapli.
Einnig má nefna tvo þráðlausa
Furuno CN22 höfuðlínumæla
og Scanmar aflamæli með lita-
skjá. Aflamælirinn er með SRU
400 móttakara og tveimur troll-
augum.
Mið- og stuttbylgjutalstöð er
frá Skanti og er hún 400W. Ör-
bylgjustöðvar eru frá Skanti og
Furuno. Veðurkortamóttakari
er af gerðinni Furuno og sjávar-
hitamælirer afgerðinni Furuno
T2000. Vindhraða- og vind-
stefnumælir er frá Aanderaa. I
skipinu er Steenhans kallkerfi,
innanhússsímakerfi frá Alcatel
og sjónvarpsbúnaður frá Nor-
ma.
Fjórir 20 manna Viking
gúmbjörgunarbátar og flot-
gallar eru um borð og neyðar-
talstöðvar eru frá Skanti.
Heimildir: ESEIFiskifréttir.
Aug/ýsinga- og
áskriftarsímar
4560 & 4570
26 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994