Bæjarins besta - 16.11.1994, Side 28
Ós/(um BB tií fimnitigju með 10 úra afrruzCið o£farstzUar íframtíðinni FROSTI HF - ÁLFTFIRÐINGUR HF Aöalgötu - Súöavík
Óskjum BB tiffuimingju með 10 drn afmczCið og farsczCdar íframtíðinni W\ 1mUVALHF CúZJvZl íSAfl*ÐI - HNÍFSDAL - 80LUNGARVÍK
ÓsCjum BB tiC fiamingju með 10 óra afmczfíð og farsczCcíar íframtíðinni VÖRUFLUTNINGAR ÁRMANNS LEIFSSONAR Búðarkanti 2 - Bolungarvík
ÓsCjum BB ti(fwmingju með 10 óra afrruzCið og farsczícCar íframtíðinni M Landsbanki Mk íslands Útibúið á ísafirði
ÓsCjum BB tiC futmingju með 10 úm afmczCið ogfarsczCcCar íframtíðinni <X> . ÍSHÚSFÉLAG ISFIRDINGA HF.
Á tímamótum
Hvað segja þau um
Bæjarins besta?
Á TÍMAMÓTUM sem þess-
um er við hæfi að leita álits
lesendaá BB. Hvað þeim finnst
um blaðið, er það gott eða
slæmt? Hvað um útlitið, efnis-
tökin, myndirnar og stefnu þess
og fleira. Til þess að skyggnast
aðeins inn í hugarheim lesenda
hringdum við í nokkra valin-
kunnaeinstaklingaog leituðum
álits þeirra.
Önundur Jónsson.
Gotthéraðs-
íréttaMað
„ÞAÐ ER gott að geta treyst
því að blaðið kemur út á
ákveðnum tíma. Það flytur
okkur þær fréttir sem við höfum
áhuga á, þetta er gott héraðs-
fréttablað. Utlitið er mjög gott,
blaðið er smekklega uppsett og
sérstaklega eftir síðustu breyt-
ingu,” segir Önundur Jónsson,
yfirlögregluþjónn á ísafirði.
„Eini gallinn sem ég get nefnt
er að mér finnst þurfa meiri
umfjöllun um bæjarmálin, af
pólitíska sviðinu. Það er það
eina sem ég sakna. Pólitísku
blöðin standa sig ekki nema
fyrir kosningar og því finnst
mér vanta meiri umfjöllun um
bæjarmálin. Almennt er ég
mjög ánægður með blaðið,”
sagði Önundur.
Oftósammala
ritstjórnar-
greinunum
„KOSTIR blaðsins eru þeir
að þetta er dreifbýlisblað. Bara
það að hafa slíkt héraðsfrétta-
blað er mikill kostur fyrir okkur
sem hérnabúum og mikilvægur
miðill fyrir það fólk sem hér er.
Eg er yfirleitt ánægður með
fréttaflutninginn, ég er oftar en
ekki ósammála ritstjórnar-
greinunum en hins vegar finnst
mér það áberandi með bæði
blöðin, að þau eru of persónu-
leg, það kemur of mikil afstaða
fram,” segir Ulfar Ágústsson,
kaupmaður og fréttaritari Morg-
unblaðsins á ísafirði.
„Fréttamaður á að segja eins
hlutlaust frá og hægt er og mér
finnst stundum að þar sé farið
yfir markið hjá báðum blöð-
unum. I ritstjórnargreinum á að
taka afstöðu og það gerið þið,
þó svo að ég sé ekki alltaf sam-
mála ykkur. Mér finnst blaðið
yfirleitt vera vel unnið, mynd-
irnar eru yfirleitt skenimtilegar
og góðar og það er frísklegt. í
því hafa birst margar athyglis-
verðar greinar og viðtöl við fólk.
Gallamir eru þeir að umfjöll-
unin getur orðið nokkuð lituð.
Yfir höfuð finnst mér þetta bara
ágætis blað. Mín skoðun er sú
að það sé ofrausn að tvö frétta-
blöð geti gengið á svona litlu
svæði og ég óttast um að það
endi nteð þvt' að bæði bresti. Eg
hefði rniklu frekar viljað sjáeitt
sterkt fréttablað.
Mér finnst bæði blöðin hafa
með tilkomu sinni, gjörbylt um-
fjöllun um málefni Vestfjarða
frá því sem var í göntlu pólitísku
blöðunum og þið eigið allir
heiðurskiliðfyriraðhafakomið
því í gegn. Þið eruð miklu
sterkari miðill og það er mikið
meira mark takandi á ykkur en
pólitísku blöðunum,” sagði
Úlfar.
Sigríður Hrönn Eiías-
dóttir.
Btað ohkar
attra
„MÉR finnst BB mjög gott
blað í okkar samfélagi. Það
fjallar á réttlátan hátt um okkar
samfélag. Það er opið og skýrir
vel frá því sem er að gerast,
bæði hvað varðar sveitarstjórn-
irnar sem og í hinu mannlega
lífi. Það er gott að geta treyst á
að fá það einu sinni í viku því
það er alltaf á réttum tíma sem
er mjög mikilvægt. Það er eins
og að fá sér morgunverð á
morgnana að fá BB á miðviku-
dögum,” segir Sigríður Hrönn
Elíasdóttir, sveitarstjóri í Súða-
vík.
„Mér finnst útlitið á blaðinu
gott, sérstaklega eftir að þið
breyttuð því síðast. Gallarnir
eru mjög fáir en ef ég á að
nefna eitt, þá finnst mér vanta
fleiri fréttir af sunnanverðum
Vestfjörðum. Ég veit að það
getur verið erfitt um efnistök
og því speglar blaðið meira
ástandið hér fyrir norðan. Ég
get ekki sagt neitt annað nei-
kvætt um blaðið og mér finnst
alveg nauðsynlegt að það haldi
áfram að koma út. Ég lít á blaðið
sem fréttablað okkar Súðvík-
inga, jafnt og annarra nábúa
okkar,” sagði Sigríður Hrönn.
Óiafur Kristjánsson.
Fréttir biaðsins
vehia umræðu
„ÉG HELD að það svari sig
sjálft, því ef maðurfær ekki BB
að þá saknar maður þess, það
segir allt um blaðið. Mér finnst
alveg nauðsynlegt að hafa slíkt
blað sem færir okkur fréttir af
heimahögunum sem að önnur
blöð fjallaekki um. Ég finn það
að fréttir blaðsins vekja um-
ræðu og það er af hinu góða og
því óska ég blaðinu gæfu og
gengis og vona að það komi út
um ókomin ár,” segir Ólafur
Kristjánsson, bæjarstjóri í Bol-
ungarvík.
„Ég lít áblaðiðsem blað Bol-
víkinga en ég verð að játa það
að norðursvæðið hafi frekar
notið frétta þess og því mættu
suðurfirðirnirog Strandassýlan
fá nteiri umfjöllun, þá væri ég
alsæll. Mér finnst útlitið mjög
gott og andlitslyftingin sem
gerð var á þessu ári, var mjög
til bóta. Það er vandaður pappír
íþví og maðurferekki að hnerra
af prentsvertunni eða fær bólur
og því get ég ekki sagt annað en
að blaðið sé mjög vandað blað.
Gallana sé ég ekki í fljótu
bragði. Ég er ekki alltaf sam-
mála því hvemig fréttirnar eru
sagðar en það er hlutur sem við
getum aldrei verið á eitt sáttir
um. Blaðið hefur náð til breiðs
hóps og spannar vel yfir mann-
lífið á Vestfjörðum,” sagði
Ólafur.
Sjá einnig bls. 33.
Geríst
áskrífendur
að BB
28 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994