Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Page 31

Bæjarins besta - 16.11.1994, Page 31
Afmæliskveðja ti/ BB Afgóðum stuntíum ug hallærislegum íH-Prenti ÓsfQjm ‘B‘B tiCfiaminflju með 10 ára ajmzCið og farsczCcCar íframtíðinni Jakob Falur Garðarsson. UNGIR ástfangnir menn eiga stundum bágt, sér í lagi ef þeir dvelja fjarri sinni heittelskuðu. Þannig var komiö fyrir mér á haustmánuðum áttatíuogsjö. Eg hafði skráð mig í Háskólann um haustið. og leigt mér íbúð í vesturbænum ásamt öðrum námshestum frá Isafirði, en Vigdís varennþá í faðmi hinna hláu fjalla við nánr í Mennta- skólanum. Þessi tilhögun féll mér engan veginn, og ekki heillaði íslensku kennsla Njarð- ar Njarðvík mig meira en svo, að einn góðan veðurdag sló ég á þráðinn til lians Sigurjóns rit- stjóraogfalaðisteftirvinnu sent blaðamaður hjá honum. Ég fékk vinnuna, og ég fékk sefað mitt ástsjúka hjarta. H-Prent var ennþá niðri í Neðsta þegar þetta var, hjá höfðingjanum honum Guð- mundi heitnum Marsellíussyni, sem held ég megi að ósekju kalla guðföður Bæjarins besta. Blaðið óx og dafnaði í Suður- tanganum. Fljótlega eftir að ég kom ÍH-Prent varfariðað íhuga útlitsbreytingu á blaðinu, hvorki þá fyrstu né þá síðustu. En þær breytingar sem Sigurjón og Halldór höfðu í huga í þetta skiptið voru róttækari en áður. Og þegar blaðinu var dreift í hús í fyrsta skipti með nýja út- litinu ráku Isfirðingar upp stór augu, og þeir voru ófáir sem spurðu að því næstu daga hvernig stæði á því að hægt væri að gefa út blað sem þetta. I sjálfu sér fullkomlega eðlileg spurning, því blaðið líktist mun meira vönduðu tímariti, en fréttablaði í sjávarplássi vestur á fjörðum. Oftar en ekki var eingöngu stór mynd á forsíð- unni og litlar fyrir- sagnir sem vísuðu á efnið í blaðinu. Annað lesmál var ekki á forsíðunni. Engin forsíðufrétt. Blaðið varorðið mjög glæsilegt, og mikill metnaður lagður í að hafa t'orsíðuna sem fal- legasta. Sú sem bar afheldég að hljóti að vera forsíða jólablaðsins, með mynd af Faktors- húsinu sem hann Krummi tók. Svo mikið var lagt í þessa forsíðu að hana þurfti að prenta sérstaklega suður í Odda, hvar hún var meira segja lökkuð! Síð- an var blaðið gefið í hvert hús, líkt og allar aðrar vikur í þá daga. Setn ég sit við tölvuna mína og hugsa aftur til góðra stunda í H-Prent kemur mér í hug atvik sem ég held að sé með því spaugilegra sem ég lenti í sem blaðamaður. Þannig var að á- kveðið hafði verið að taka við- tal við Davíð S. Ólafsson, Ólafs bæjarstjóra í Bolungarvík, en Davíð var þá nýkominn heim frá Þýskalandi hvar hann hafði lært píanóstillingar hjá Stein- way og sonum. Ég eyddi lung- anu úr heilum degi með Davíð, í stofu föður hans í Bolungarvík. Þar sýndi hann mér að- ferðirnarsem hann viðhefur við stillingar og allt sem þeim viðkemur. Töluðum við mikið og lengi. Síðan held ég heim í H-Prent með minn diktafón og fer að vinna ritsmíðina. Smátt og smátt fæðist viðtalið, og að lokum er svo komið að búið er að líma það upp og opnan er svo gott sem tilbúin til prentunar á þriðjudagsmorgni. Eina sem vantaði vargrænt Ijós frá Davíð, en hann hafði fengið viðtalið til lestrar kvöldið áður. Rétt fyrir hádegið dettur hann inn úr dyrunum. með viðtalið upp- rúllað undir höndinni, og með lævíst bros á vör. „Jújú” sagði hann, „viðtalið er gott hjá þér, eina sem þyrfti að laga er að ég heiti Davíð, en allsstaðar í viðtalinu hefur þú kosið að kalla mig Guðjón!” Ég held að sjaldan hafi ég lent í eins hallærislegum mistökum og þessum, en enn í dag hef ég ekki getað útskýrt fyrir sjálfum tnér hvernig í ósköpunum mér tókst að klúðra þessu svona. Eina skýringin sem mögulega kemur til greina er sú að ég hafi verið undir einhverjunt annar- legum áhrifum frá þeim Hösk- uldssonum, Guðjóni og Davíð, en heldur þykir mér það þó lang- sótt skýring. En ekki orð um það meir. BB lengi lifi! Kœr kveðja, Jakob Falur. Vantar þig geymsluhúsnæði? Fyrir t.d. bíl, bát, tjaldvagn, hjólhýsi, kerru, snjósleða, mótor- hjól, reiðhjól, sláttuvél eða eitthvað annað. Við geymum hvað sem er, stórt og smátt. A AÐSTAÐAN s/f - Leiguhúsnæði fyrir allt og alla - Kirkjuból 2 • 400 ísafjörður — 94-3172 (Ómar Helga) 94-3950 (Helgi Helga) Isafjarðarkaupstaður Leikskólinn Hlíðarskjól Leikskólakennara eða starfsmenn óskast á leikskólann Hlíðarskjól eftir hádegi. Um er að ræða tvær 50% stöður. Frekari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 3185. Aðalfundur Tónlistarfélags f Isaflarðar Aðalfundur Tónlistarfélags ísafjarðar verður haldinn í Tónlistarskólanum við Austurveg, sunnudaginn 20. nóvember 1994 ld. 16:00. Dagskrá: 1. Tilnefning fundarstjóra og fundar- ritara. 2. Skýrsla stjómar (Úlfar Ágústsson). 3. Reikningar síðasta starfsárs (Gunn- laugur Jónasson). 4. Starfsemi Tónlistarskólans (Sigríður Ragnarsdóttir). 5. Tillaga um kaup á Kaupfélagshúsi. 6. Lagabreytingar (Ef fram koma). 7. Árgjöld og fjöldi áskriftartónleika. 8. Kosning stjómar og trúnaðarmanna. 9. Önnurmál. Tónlistarflutningur. Kaffiveitingar í boði velunnara félagsins. Félagar em hvattir til að mæta. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. J'íufjfeiðir fif. ísafjarðarftufiVelR ‘fisfjðjan Jreyja fif ‘freyjuflötu 1 -Suðureyri Sparisjóður Önundarfjarðar Síafnarstrceti 1 - fffateyri ‘Tceíqiijjónusta Vestfjarða STusturvegur 1 - ísafirði Vé&átaáByrgðarféfag ísfirðinga Síafnarstrceti 14 - ísafirði Versfunin ‘Bimhó PLðafstrceti 24 - ísafirði Lögsýn fif SLðafstrceti 24 - ísafirði ‘Bífatangi ff. Suðurgötu 9 - Isafirði Lífeyrissjóður Vestfirðirga Brunngata 7 - Isafirði Sparisjóður <Þingeyrar(írepps Þingeyri Cjnáff. ‘Vitastíg 1 - Bofungarvííq Véfsmiðjan Mjöfnir ff. tJVÍávafgmBi 2 - Bofungarvíf Ofíuféfagið ff. Lsso Bfafnarstrceti 8 - ísafirði Stucfio Dan Sfafnarstrceti 20 - ísafirði Bfiffsmiðja ‘Erfencfar Sfnfsdafsvegi 27 - ísafirði MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994 31

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.