Bæjarins besta - 13.03.1996, Blaðsíða 3
Starfsmenn ísafjarðarkaupstaðar vinna að gerð kostnaðaráætiunar um
enduruppbyggingu sorpbrennsiustöðvarinnar Funa.
Sorpbrenns/ustöðin Funi
Unnið að kostnaðaráætl-
un um endurbyggingu
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort eða hvar
sorpbrennslustöðin Funi verður
endurbyggð, en beðið er niður-
stöðu kostnaðaráætlunar um
endurbyggingu sorpbrennslu-
stöðvarinnar. Sú vinna gengur
hægt en sígandi, að sögn
Þorláks Kjartanssonar stöðvar-
stjóra, en leita þarf tilboða víða
um heim í tækjabúnað stöðv-
arinnar og er ekki ljóst hvenær
því verður lokið.
Endanlegt mat á því tjóni
sem varð á Funa liggur enn
ekki fyrir. „Eg vona að það
verði í þessum mánuði. Þetta
er búið að dragast óhemjulengi,
það virðist vera mikil vinna
við að reikna út einingaverð og
finna út verð á ýmsum hlutum,
og svo þarf að ná samkomu-
lagi við Viðlagatryggingu um
upphæðir. Það hafa verið
haldnir nokkrir fundir, og ég
tel að við höfum náð saman
um hvað sé skemmt, en Við-
lagatrygging er ekki enn komin
með tölur yfir tjónið,” sagði
Þorlákur.
Stöðvarstjóri gerir ekki ráð
fyrir að Funi verði kominn í
gagnið aftur fyrr en seinnipart
sumars, ef af endurbyggingu
verður, og hann telur engra
breytinga að vænta á tækja-
búnaði stöðvarinnarfráþví sem
var. Starfsmönnum hefur verið
boðin endurráðning, en þeim var
sagt upp störfum í kjölfar snjó-
flóðsins, en að sögn Þorláks
munu þeir ekki hafa þegið boðið.
Sveitarstjórnarkosningar á norð-
anverðum Vestfjörðum
Kristinn Jnn leiöir lista
framsóknarmanna
Á sameiginlegum fundi
framsóknarfélaganna á norðan-
verðum Vestfjörðum sem hald-
inn var að Holti í Onundarfirði
á laugardag var eftirfarandi
framboðslisti félaganna fyrir
komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar, sem fram fara 11. maí
nk., samþykktur.
1. Kristinn Jón Jónsson. Isa-
firði. 2. Bergþóra Annasdóttir,
Þingeyri. 3. Jón Reynir Sigur-
vinsson, Isafirði. 4. Ásvaldur
Magnússon. Tröð Önundar-
firði. 5. Inga Ólafsdóttir, Isa-
firði. 6. Jón Reynir Sigurðs-
son, Þingeyri. 7. Þorvaldur H.
Þórðarson, Stað Súgandafirði.
8. Sigurður Hafberg, Flateyri.
9. Jón Skúlason, Gemlufalli
Dýrafirði. 10. SvanlaugGuðna-
dóttir, Isafirði.
11. Elías Oddsson, Isafirði.
12. Ólafur K. Skúlason, Þing-
eyri. 13. Guðni Jóhannesson,
Isafirði. 14. Ásvaldur Guð-
mundsson, Núpi Dýrafirði. 15.
Sigríður Magnúsdóttir, Kirkju-
bóli Valþjófsdal Önundarfirði.
16. Guðríður Sigurðardóttir,
Isafirði. 17. Kristján Grétar
Schmidt, Suðureyri. 18. Magn-
ús Reynir Guðmundsson, Isa-
firði. 19. Fárus Hagalínsson,
Suðureyri. 20. Gunnlaugur
Finnsson, Hvilft Önundarfirði.
21. Guðmundur Ingvarsson,
Þingeyri. 22. Jóhann Júlíusson,
ísafirði.
Sorpfiokkun í óiestri á ísafirði
Óbrennanlegt í rauða pokann!
Sorp sem kemur til brennslu í
sorpbrennslustöðinni á Skarfa-
skeri, er mjög illa flokkað, að
sögn Þorláks Kjartanssonar
stöðvarstjóra. „Þetta á við um
sorp frá bæði heimilum og
fyrirtækjum, og skipin eru mjög
slæm,” sagði stöðvarstjóri í
samtali við blaðið.
Flokkun sorps frá bæjar-
búum fór mjög aftur þegar
sorpbrennslustöðin Funi varð
ónothæf á haustmánuðum, og
versnaði enn þann tíma sem
stöðin á Skarfaskeri var óstarf-
hæf. Sá stutti tími sem sorp var
urðað virðist hafa dugað til að
venja bæjarbúa af flokkun sorps
í brennanlegt og óbrennanlegt.
Illa flokkað sorp veldur vand-
ræðum við sorpeyðinguna, og
Þorlákur beinir þeim tilmælum
tilbæjarbúaaðþeirtaki uppfyrri
háttu á ný, að setja brennanlegt
sorp í svarta pokann og óbrenn-
anlegt, s.s. gler og niðursuðu-
dósir, í þann rauða.
Evrópumeistari frá
Bíldudaí
Vala Flosadóttirfrjálsíþróttakona, sem náói þeim
frábæra árangri að verða Evrópumeistari í stangar-
stökki innanhúss í Globen-höllinni í Stokkhólmi á
föstudagskvöld á ættir sínar að rekja til Vestfjarða
en hún er dóttir Flosa Magnússonar sóknarprests
á Bíldudal. Um þriggja ára skeió hefur hún æft og
keppt í Svíþjóð en áður en hún hélt þangað mun
hún hafa getió af sér gott orð í keppni í hinum
ýmsu íþróttagreinum á Bíldudal.
Aðstæður skoöaóar
viö Skollahvilft
Hópur sérfræðinga á vegum Ofanflóðasjóös
skoóaði aðstæður á Flateyri um
miðja síðustu viku vegna undir-
búnings fyrirhugaðra varnar-
virkja snjóflóða. Sérffæðingunum
mun hafa litist vel á aðstæóur
fyrir ofan byggðina á Flateyri og
telja svæðið hentugt til gerðar
snjóflóóavarnagarða. Framund-
an er vínna við hönnun varnar-
mannvirkjanna en áætlað er að
framkvæmdir við þær hefjist í
sumar og verði lokió fyrir næsta vetur.
Á annan tug stjórn-
sýslukæra
Bæjarfulltrúar minnihlutans í Vesturbyggð
undirbúa nú á annan tug stjórnsýslukæra á hendur
meirihluta bæjarstjórnar, og munu kærurnar verða
sendar félagsmáiaráðuneytinu á næstunni. Bæjar-
fulltrúar minnihlutans telja að meirihlutinn hafi
ítrekað gerstsekur um brot á sveitarstjórnarlögum
og bæjarmálasamþykkt og aó málið sé komið á
það stig að félagsmálaráðneytið verði að grípa inn
í málið. Meðal þess sem minnihlutinn gagnrýnir er
aó meirihlutinn loki fundum aó eigin geóþótta og
bóki mál I einkamála bók í staó opinna fundar-
gerðabóka.
Tumi sýnir í Slunkaríki
Tumi Magnússon opnar sýningu á verkum
sínum í Slunkaríki á laugardag kl. 16. Tumi hefur
um nokkurt skeið verið í framvarðarsveit íslenskra
málara en á sýningunni í Slunkaríki mun Tumi
sýna á séraðra hlió en sést hefurtil þessa. Sýningin
stendur til 7. apríl nk. Slunkaríkí er opið frá
fimmtudegi til sunnudags frá kl. 16-18.
Myndíistin á ári
endurmenntunar
Sama dag kl. 17 veróur efnt til fyrirlestrar á
Hótel ísafiröi þar sem aðalþemað verður
„Myndlistin á ári endurmenntunar." Það er
Menningarmiðstöðin Edinborg í samvinnu við
Hótel ísafjörð sem standa fyrir lýrirlestrinum og
hafa þau fengið til liðs við sig Halldór Björn
Runólfsson listfræðing, sem fjalla mun um efnið
eins og honum er einum lagið.
Dúfan og fiskurinn
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Hallfríður Ólafsdóttír flautu-
leikarí, og Trio Borealis koma fram
á þriðju áskriftartónleikum Tón-
listarfélags ísafjarðar, sem haldnir
verða sunnudaginn 17. mars
kl. 17 í sal Grunnskólans á ísafiröi.
Tónlistarmennirnir, sem eru í
fremstu röð íslenskra tónlista-
rmanna munu leika þrjú verk,
Dúfuna og fiskinn eftir Jónas
Tómasson, Vorsónötu Beethovens og Kvartettinn
um endalok tímans eftir Messiaen. Miðar verða
seldir vió innganginn, en áskriftarkort T.í. gilda á
tónleikana. Aðgangur er ókeypis fyrír alla
skólanema yngri en 20 ára.
Aldarafmæli
á Þingeyri
Sparisjóður Þingeyrarhrepps á eitt hundrað ára
afmæli á þessu ári, en hann var stofnaður áríð
1896. í tilefni af þessum merka áfanga verður
íbúum Dýrafjarðar, viðskiptavinum og velunnurum
sparisjóósins boðið til kaffisamsætis í húsakynnum
sparisjóðsins. Að sögn 7\ngantýs Vals Jónassonar
sparisjóðsstjóra hefur afmælisbarninu farnast vel
þau hundrað ár sem liðin eru síðan sjóðurinn tók
til starfa. Hófið hefst klukkan 15 á morgun, og
stendur til kl. 18.
áI*
Wun'
\daW°
Sjóngleraugu í úrvali:
hálf á kr. 700,-
heil á kr. 1.000,-
Vídeóspólur
Leikföng
Hafnarstræti 8 • Isafirði
Sími 456 3990
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
3