Bæjarins besta - 13.03.1996, Blaðsíða 11
4, W wl n
. ,! .tW 1
Pessir ungu menn hafa ekki iátið sig vanta á ieiki KFÍí vetur, og styðja sitt iið dyggiiega með drynjandi Heisti stigaskorari KFÍ, Christopher Ozment, gefur
trommusiætti, hrópum og köiium. ungum aðdáendum sínum eiginhandaráritanir.
Körfuknattleiksfélag ísafjarðar sigraði ÍS tvisvar um sfðustu helgi
Keppir til úrslita um deildarmeistaratitil
Körfuboltafélag ísafjarðar vann mikilvæga sigra á liði ÍS
um síðustu helgi. Leikirnir fóru fram í íþróttahúsinu á
Torfnesi og lyktaði fyrri leiknum með 77 stigum KFÍ gegn
71 stigi ÍS, og sá síðari fór 77-69 fyrir KFÍ. Með sigrunum
er KFÍ búið að tryggja sér annað sætið í 1. deildinni og leik
um sæti í úrvalsdeildinni. Áhangendur KFÍ mættu vel á
leikina, en um fimm hundruð manns mættu á hvorn leik.
„Þetta er gríðarlegur stuðningur fyrir okkur að fá góða
áhorfendursem hvetja liðið,” sagði Guðjón Þorsteinsson
þjálfari KFÍ, sem taldi sína menn eiga helmingslíkur á að
vinna úrslitaleikinn. Þegar blaðið fór í prentun var ekki
Ijóst hvort KFÍ muni leika til úrslita um efsta sæti
deildarinnar við Þór eða Snæfell, en þau lið áttust við í
gærkvöldi. Úrslitaleikurinn ferfram næstkomandi föstu-
dag, en það er eins með hann og mótherjann, að ekki
var Ijóst hvort um heimaleik verður að ræða fyrir KFÍ. Ef
KFÍ hlýtur silfrið í 1. deildinni, er samt ekki öll nótt úti enn
um sæti í úrvalsdeild, en liðið Í2. sæti 1. deildarkeppirvið
næstneðsta lið úrvalsdeildar um úrvalsdeildarsæti, og
að þessu sinni er það íþróttafélag Akraness, sem þarf að
verja sæti sitt í deildinni.
Frá verðiaunaafhendingunni á grímudansieiknum.
Nemendurnir mættu í sína fínasta pússi á dansieikinn.
Skólastarf í Súðavfk
Samstarf skólanna hef-
ur gefiö góða raun
í vetur hafa þrjátíu og átta
nemendur stundað nám í fjór-
um bekkjardeildum við grunn-
skóla Súðavíkur auk tíu barna
sem eru í leikskólanum en þar
hefur orðið ntikil tjölgun eftir
síðustu áramót. Leikskólinn
býr við mikil þrengsli, en hann
hefur eina af kennslustofum
skólans til afnota, en verið er
að byggja við skólann fimm
kennslustofur, leikskóla, skóla-
eldhús og sal. Tvær af núver-
andi kennslustofum skólans
verða teknar undir bókasafn
Súðavíkurhrepps sem verður
sameinað skólabókasafninu.
Tónlistarskólinn fær einnig
sérstaka aðstöðu til kennslu og
verður ntikill munur þar á þar
sem þrengsli eru mikil í skól-
anum. Nýja húsnæðið er sér-
staklega hannað með tilliti til
samvinnu og samkennslu skól-
anna og einnig verður um mikla
samnýtingu húsnæðis og bún-
aðar að ræða.
í vetur hefur verið töluverð
samvinna milli leikskólans og
grunnskólans. Fimm ára börn
eru í skólanum með yngstu
deildinni tvo daga í viku en þar
er um að ræða kennslu á blokk-
flautu, í íþróttum, myndmennt,
tónmennt og heimilisfræði.
Hefur samstarf þetta gefið góða
raun og verður það aukið á
næsta skólaári.
I lok janúar komu leikskóla-
börn frá Flateyri í heimsókn,
þorrablót nemenda og foreldra
þeirra var haldið í febrúar og I.
mars síðastliðinn fór fram
grímudansleikur þar sem alls-
konar furðuverur á aldrinum
5-14ára komu saman. Á grímu-
dansleikinn konru nemendur
frá Núpsskóla, Holtsskóla og
grunnskólanum á Flateyri og
var öllum boðið upp á pylsur
við komuna til Súðavíkur.
Siðan hófst dansleikurinn sem
stóð tilkl. 22. Veitt voru fimm
verðlaun fyrir bestu og
skemmtilegustu búningana. í
fyrsta sæti urðu síamstvíburar,
í öðru sæti varð pylsa, trúður í
því þriðja, kokkur í fjórða og
svertingjastelpa hampaði
fimmta sætinu. Þessa dagana
stendur yfir undirbúningur fyrir
árshátíð skólans sem haldin
verður 30. mars nk.
Grískt kvöld með
Zorba
leikhópnum
laugardaginn 16. mars
Upplestur, grísk tónlist, grískur
matur og grísk stemmning.
Dagskráin hefur undanfarið
veríó flutt í Kaffileikhusinu í
Reykjavík viö mjög góóar undir-
tektir.
Aðgangseyrir.
Missiö ekki af frábærrí kvöld-
stund með góðum listamönnum.
‘TfóteC ýdafáwtikvi
Sútti 456 4111
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
11