Bæjarins besta - 13.03.1996, Blaðsíða 7
Suóureyrarhreppur staðfestir ekki fram-
kominn ársreikning hei/brigðíseftir/itsfns
Kostnaöur virðist hækka
jafnt og þétt á milli ára
Hreppsnefnd Suðureyrar-
hrepps hefur tilkynnt Heil-
brigðiseftirliti Vestfjarða að
hreppsnefndin staðfesti ekki að
sinni, fyrir sitt leyti, fram-
kominn ársreikning heilbrigð-
iseftirlitsins fyrir síðasta ár.
Hefur hreppsnefndin jafnframt
óskað eftir fundi með stjóm og
framkvæmdastjóra Heilbrigð-
iseftirlits Vestfjarða.
Halldór Karl Hermannsson,
sveitarstjóri á Suðureyri sagði
í samtali við blaðið að sveitar-
stjórn vildi ræða kostnað við
heilbrigðiseftirlitið nánar.
„Menn voru sammála um að
þeir vildu fá yfirstjórn heil-
brigðiseftirlitsins á sinn fund,
því kostnaðurinn virðist hækka
jafnt og þétt á milli ára og
ýmsir liðir sem ntenn vildu
gjarnan fá nánari skýringu á,”
sagði Halldór.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða
var sett á laggimar fyrir fjórum
árum síðan og var kostnaður
við rekstur þess á árinu 1992
5,2 milljónir króna, árið 1993
var hann 5 milljónir kr., 1994
var kostnaðurinn 5,3 milljónir
kr. og á síðasta ári tæpar 5,8
milljónir kr.. Fjárhagsáætlun
fyrir árið 1996 hljóðar upp á
rétt rúmar 6 milljónir króna,
en heilbrigðisfulltrúi segir að
einu hækkanir á áætluninni séu
verðlagshækkanir milli ára.
Kostnaðarhlutur sveitarfél-
aganna hefur á sama tíma vaxið
verulega en hann var -1,29%
fyrir árið 1992, 4,7% á árinu
1993, 18,43% áárinu 1994 og
19,48%áárinu 1995. Áætlaður
kostnaður sveitarfélaganna af
rekstri heilbrigðiseftirlitsins á
árinu 1996 er um 20%.
Anton Helgason heilbrigðis-
fulltrúi sagðist í samtali við
blaðið, telja að um misskilning
í bókun hreppsnefndar væri að
ræða, menn hefðu verið að
fjalla um fjárhagsáætlun yfir-
standandi árs en ekki árs-
reikninga fyrir árið 1995, og
frestur til að skila athuga-
semdum um áætlunina væri
löngu liðinn. Hann sagðist ætíð
tilbúinn að mæta til fundar með
sveitarstjórnum, en í stjórn
heilbrigðiseftirlitsins sæti fólk
víðsvegar úr kjördæminu, og
hann sæi ekki ástæðu til að
kalla stjómina saman.
Regiur um mæiieiningaverð þverbrotnar í
versiunum á norðanverðum Vestfjörðum
Engar verslanir með
merkinpmar í bgi
í næsta mánuði eru tvö ár
liðin síðan Samkeppnisstofnun
gaf út reglur um mælieininga-
verð í verslunum, en þær tóku
gildi þegar Islendingar gerðust
aðilar að evrópska efnahags-
svæðinu. I stuttu máli sagt
skylda reglurnar þá aðila sem
selja vöru til neytenda til að
merkja vörurnar skilmerkilega
með verði á t.d. hverjum lítra
eða kílói, auk söluverðs.
Tilgangurinn er sá að gera
neytendum kleift að velja vörur
með því að bera saman t.d.
kílóverð á sömu vörutegund
frá mismunandi framleið-
endum. Ekki hefur enn reynt á
viðurlög vegna brota gegn
reglunum, að sögn Kristínar
Færseth hjá Samkeppnisstofn-
un, en einu úrræðin gegn
brotum er að kæra viðkomandi
söluaðila til rannsóknarlög-
reglunnar. Kristín sagði stofn-
unina hafa gefið söluaðilum
nokkurn frest til að koma
merkingum í lag, en hann var
ekki nákvæmlega tilgreindur.
„Hinsvegar er verið að fara út
í það núna að gera seljendum
að koma hlutunum í lag, og þá
sérstaklega þeim sem notast
við strikamerkingar,“sagði
Kristín.
Aðalheiður Steinsdóttir,
starfsmaður Neytendafélags
Vestfjarða, sagði ástand þess-
ara mála afar slæmt á Vest-
fjörðum, þrátt fyrir að Neyt-
endafélagið hafi haft samband
við verslanir á svæðinu. „I
fréttabréfi Neytendafélagsins
sem kom út í desember sl.
hvatti ég fólk til að vera
vakandi og ýta við seljendum.
Eg er búin að vara þær verslanir
við sem eru verstar, en það eru
engar verslanir hér sem hafa
þessi mál í góðu lagi. Vöruval
og Björnsbúð eru þó með vísi
að þessum merkingum. Það er
í verkahring Samkeppnis-
stofnunar að fylgja þessum
málum eftir, en það er hverjum
og einum frjálst að kæra þá
sem brjóta reglurnar til stofn-
unarinnar, og það kemur alveg
til greina,” sagði Aðalheiður.
Myndiistarnámskeið fyrir börn á Suðureyri
Pappír, grafík og litameðferð
Listaskóli Rögnvaldar
Ólafssonar hélt myndlistar-
námskeið fyrir börn á Suður-
eyri á dögunum. Guðrún
Guðmundsdóttir myndlistar-
kennari kenndi þátttakendum
pappírsgerð, grafikvinnu og
undirstöðuatriði í meðferð lita.
Námskeiðið var vel sótt, en á
annan tug barna á aldrinum
átta til tólf ára tóku þátt í
því.Námskeiðinu laukmeð
sýningu þar sem nemend-
urnir sýndu þau verk sem
unnin voru á námstímanum.
Krakkarnir sem nutu kennslu
Guðrúnar voru sérlega
ánægð með árangurinn og
hafa ámálgað það að fram-
hald verði á námskeiðinu, og
verður það væntanlega með
haustinu.
Guðrún Guðmundsdóttir myndlistarkennari ásamt hluta nemenda sinna á
Suðureyri.
^ jfc-r, SVÆÐISSKRIFSTOFA
|§|S§íí MÁLEFNA FATLAÐRA
^SíSlIí Á VESTFJÖRÐUM
Svæðiskrifstofa málefna fatlaðra á Vest-
fjörðum leitar eftir starfsfólki til lengri eða
skemmri tíma. Lögð er mikil áhersla á að
starfsmenn séu stundvísir, reglusamir og
áhugasamir um starf sitt. Ekki eru gerðar
kröfur um að umsækjendur kunni skil á
málefnum fatlaðra, þeim verður tryggð næg
fræðsla og stuðningur til að geta tekist á við
starf sitt.
Auglýst er eftir fólki í eftirtalin störf:
Bræðratunga
Starfsfólk vantar til sumarafleysinga á
sambýlum og einnig til lengri tíma. Um er
að ræða vaktavinnu í mismunandi starfs-
hlutföllum. Nánari upplýsingar gefa Rann-
veig Halldórsdóttir og Hugrún Kristinsdóttir
í síma 456 3290.
Skammtímavistun
í Bolungarvík
Forstöðumann vantar í vaktavinnu frá 15.
maí til 30. ágúst. Starfsfólk vantar í
vaktavinnu frá 1. júní til 30. ágúst. Nánari
upplýsingar gefa Helga Björk Jóhannsdóttir
og Laufey Jónsdóttir í síma 456 5224.
Vinnslusalur í Bræðratungu
Starfsmann vantar í 100% starf og til
afleysinga frá 15. apríl til lengri tíma. Um er
að ræða dagvinnu frá kl. 08.00 til 16.00 alla
virka daga. N ánari upplýsingar gefur Nanna
Þórisdóttir í síma 456 3290.
Frekari liðveisla
„Aðstoð við fatlað fólk í sjálfstæðri búsetu
og sem býr í foreldrahúsum."
Starfsmenn vantar í tímabundna vinnu og
einnig til lengri tíma. Nánari upplýsingar
gefur Sigfriður Hallgrímsdóttir í síma 456
5224.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingum starfsmanna ríldsins.
Umsóknarfrestur er til 31. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
Svæðisskrifstofunni, Mjallargötu 1, ísafirði.
Flateyrarhreppur
Leikskólakennari
Flateyrarhreppur óskar eftir að ráða
leikskólakennara eða fólk með aðra
uppeldismenntun til starfa á leikskólanum.
Til greina kemur að ráða aðila sem ekki
uppfyllirofanskráð skilyrði, enhefurreynslu
í starfi með bömum. Umsóknarfrestur er til
18. mars nk.
Upplýsingar um starfið veita leikskóla-
stjóri í síma 456 7775 og sveitarstjóri í síma
456 7665.
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
7