Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 5

Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 5
Nýir h/uthafar að koma inn í rekst Leiðir kannaðar til styrkja tyrirtækið til frekari átaka Eigendur Fáfnis hf., á Þingeyri kanna nú ieiðir tii að styrkja fyrirtækið tií frekari átaka í sínu fagi og er m.a. verið að skoða innkomu nýs hiuthafa. Samkvæmt upplýsingum blaðsins munu viðræður hafa átt sér stað á milli eigenda Fáfnis hf., á Þingeyri, og eigenda fyrirtækis á Suður- nesjum um kaup þeirra síðar- nefndu á meirihluta hlutafjár í Fáfni hf. Sigurður Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Fáfnis vildi í samtali við blaðið ekkert segja um málið á þessari stundu en sagði að niðurstaða myndi liggja fyrir á næstu dögum. „Það getur vel verið að í gangi hafi verið skoðun á því hvernig mætti styrkja fyrir- tækið með nýjum hluthöfum en það er ekkert um þetta mál meira að segja í augnablikinu. Ef af einhverju slíku verður getum við sagt frá því fljót- lega, ég get ekkert sagt meira um málið á þessari stundu,” sagði Sigurður. Sigurður sagði að menn þar á bæ væru að hugsa leiðir til að styrkja fyrirtækið til frekari á- taka í sínu fagi en hvað yrði ofan á kæmi í ljós á næstu dögurn. Sigurður sagði Fáfni hafa verið í fullum rekstri og stöðugri vinnu en uppgjör síðasta árs lægi ekki fyrir sökum niðurröðunar hjá endur- skoðanda fyrirtækisins. „Eins og menn þekkja sem eru í fisk- vinnslu, þá er ekki mikil von á gróða en menn böslast áfram eins og þeir geta,” sagði Sigurður. Fáfnir hf., rekur frystihúsið á staðnum auk fiskimjölsverksmiðju. Mestspurtefl stærrt ennim Fasteignamarkaðurinn á ísa- firði hefur verið í þónokkurri uppsveiflu að undanförnu og virðist sem loforð og samn- ingar um uppkaup húseigna á snjóflóðahættusvæðum í Hnífsdal hafi haft þar nokkur áhrif á. Meira er spurt unt stærri eignir nú en áður en sala á stærri eignum hefur verið í mikilli lægð undanfarin miss- eri. „Það er uppsveifla á fast- eignamarkaðnum um þessar mundir. Fyrir um tveimur til þremur vikum síðan fór eftir- spurn að aukast og síðan þá hefur þetta verið smám saman að aukast. Hreyfingin er mikil um þessar mundir en svo hefur ekki verið síðan í fyrra haust. Það er meira spurt um stærri eignir í dag en verið hefur og þar hafa Hnífsdælingarnir á- hrif, þeir eru yfirleitt að leita að sérbýli, en þær eignir hafa verið í lítilli hreyfingu undan- farin misseri,” sagði Tryggvi Guðmundsson, Iögmaður og fasteignasali á Isafirði í sam- tali við blaðið. Tryggvi sagði engin sérstök hverfi vinsælli en önnur og um- ræða um snjóflóðahættu hefði engin áhrif á eftirspurnina. Hann sagði erfitt að segja til um verð á fasteignum en ljóst væri að bilið á milli fasteigna á ísafirði og í Reykjavík hefði verið að minnka að undan- förnu. „íbúðarverð á ísafirði hefur staðið í stað en svo virðist « M ! Uppsveifia hefur verið á fasteignamarkaðnum á isafirði undanfarnar vikur og virðist sem mest sé spurt eftir stærri eignum. sem íbúðarverð í Reykjavík förnu. Það er langt síðan á milli þessara staða,” sagði hafi farið lækkandi að undan- munurinn hefur verið svo lítill Tryggvi. Gamlar syndir hrista þjóöfélagiö Um fátt er nú meira rætt þessa dagana en málefni biskupsins yfir Islandi og ásakanir nokkurra kvenna um kynferðislega áreitni hans í þeirra garð. Tekur þetta mál á sig ótrúlegustu myndir og stundum geta jafnvel skynsömustu menn ekki látið sér neitt til hugar koma annað en það, að um samantekin ráð andstæðinga biskups sé að ræða. Því verður ekki trúað að óreyndu að hin geistlega stétt sláist með svo óvönduðum vopnum sem hér sýnast viðhöfð. En óneitanlega vekur það athygli að hvert viðbragð af hálfu biskups kallar á annað frá einhverjum presti eða konum sem telja sig hafa orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni biskups. Biskup er nú kominn með tvo hæstaréttarlögmenn til að sinna sínum málum, þá Ragnar Aðalsteinsson og Tryggva Gunnarsson, sem báðir hafa getið af sér gott orð fyrir störf sín og þykja vandaðir og góðir. Hvernig sem það má vera þá eru ásakanir á hendur biskupi að minnsta kosti 17 ára gamlar. Konan og þau hjón bæði, sem báru á hann sakir vegna at- burða í Kaupmannahöfn, hafa dregið þær til baka og telja sig sátt við þjóðkirkjuna, vænt- anlega bæði við guð og menn. Að slepptum öllum vanga- veltum um siðferði, þá eru þessar ásakanir gamlar. Furðu- legt má telja að koma t'ram með þær í dagsljósið svo seint. Þess vegna þarf almenningur miklu betri skýringar af hálfu þeirra kvenna sem hlut eiga að máli. Sú spurning vaknar hvort það sé siðferðilega rétt að vinna með þeim hætti sem Stígamót hafa gert í máli biskups. Syndirnar sem bornar eru á biskup þjóðkirkjunnar eru gamlar. Syndir munu víst ekki fymast. En þurfa þær þá ekki að sannast? Og hver er sá synd- lausi að kasta fyrsta steininum? Mál þetta hefur haft áhrif á þjóðkirkjuna og um þessar mundir ekki til góðs. Fram- tíðin ein sker úr um það hvort kirkjan muni standa þessar hremmingar af sér eða hvort þær muni verða vatn á myllu þeirra sem telja að aðskilja beri ríki og kirkju með öllu og láta hana sjá urn sig sjálfa, án af- skipta skattborgaranna. Geirfinns- ng Guðmunúarmál Um þessar mundir fara fjöl- miðlar mikinn vegna annarra gamalla „synda”. Þar er um að ræða ofannefnd sakamál. En Hæstiréttur sakfelldi nokkra einstaklinga fyrir dráp á þeim Guðmundi Einarssyni og Geir- finni Einarssyni, sem báðir hurfu árið 1974 og ekkert hefur spurst til síðan. Fyrir um það bil tuttugu árum skóku þessi tvö mál þjóðfélagið og um- ræður teygðu anga sína um allt, létu ekki einu sinni Alþingi ósnortið. Allir höfðu þá skoðun á málinu. Sumir hafa reyndar efast alla tíð um það að rétt hafi verið að málum staðið við rannsóknina, sem leiddi til játningar sakborninganna, sem síðar voru dæmdir. Séra Jón Bjarmann, fyrrum fangaprestur hefur nýlega komið fram í sjón- varpi og rifjað upp sín afskipti af föngunum og málinu öllu. Hann ritaði í Morgunblaðið og benti á það um 1980 að ekki virtist allt eðlilegt varðandi nteðferð fanganna á sínum tíma. I sjónvarpi í síðustu viku sagði hann að sér hefði verið tjáð að fangarnir vildu ekkert við fangaprestinn tala. Síðar hefði komið í ljós að vilji fanganna hefði staðið til þess að fá að ræða við hann strax í upphafi fangavistarinnar. Viðtal við Magnús Leó- poldsson, sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í lengri tíma gaf slæma mynd af aðbúnaði og meðhöndlun fanganna. Hvort sem málið verður tekið fyrir á nýjan leik eða ekki er ljóst að þama hafa ýmsar brotalamir komið í ljós. Það vekur athygli að Hæsti- réttur skipaði Sævari Ciselski talsmann, hæstaréttarlögmann- inn Ragnar Aðalsteinsson, sem CTAIflfllD einnig gætir hagsmuna bisk- ups. Ragnar segir ljóst vera að starf sitt muni leiða ýmis- legt í Ijós. Ný gögn muni koma fram. Einnig sé ljóst að meðferð fanganna í gæsluvarðhaldinu á sínum tíma sé ekki í samræmi við alþjóðlega samninga. Það verður fróðlegt að sjá hvemig mál þessara tveggja umbjóðenda lögmannsins, biskupsins og hins dæmda fara að lokum. Ef til vill ættu bæði þjóðin og fjölmiðlarnir að fara sér hægt um sinn og bíða og sjá hverja meðhöndlun þessar göntlu syndir fá hjá lög- manninum. -Stakkur. MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996 5

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.