Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.1996, Page 10

Bæjarins besta - 13.03.1996, Page 10
Kvenfélagið Ársó/ á Suðureyri Færði leikskólanum í Súöa- vik fe til leikfangakaupa Stjórn kvenfélagsins Ársólar á Suðureyri færði leikskólanum í Súðavík fjármuni að gjöf á dögunum. Gjöfinni, fimmtíu þúsund krónum, er ætlað að bæta við leikfangasafn skólans, en allt leikfangasafn hans eyðilagðist í snjóflóðinu fyrir ári síðan. Steinunn Aldís Einarsdóttir, leik- skólastjóri tók við gjöfinni fyrir hönd leikskólans. Viðstödd afhendinguna voru þau Sigríður Hrönn Elíasdóttiroddviti Súða- víkurhrepps og Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóri. Eftir að gestirnir frá Suðureyri höfðu þegió góðgerðir heimamanna, var haldið með þá í skoðunarferð um leik- skólann, grunnskólann og nýju byggðina í Súðavík. Undirskriftum safnað vegna vegasambands á Vestfjörðum Vilja heilsársveg yfir Þorskafjarðarheiði Nokkrir framtakssamir ein- staklingar hafa hrundið af stað undirskriftarsöfnun á norðan- verðum Vestfjörðum þar sem skorað er á þingmenn Vest- fjarða að beita sér fyrir lagn- ingu heilsársvegar yfir Þorska- fjarðarheiði í tengslum við byggingu Gilsfjarðarbrúar. Listamir voru lagðir fram tii undirskriftar í upphafi mán- aðarins, og hafa forsvarmenn- imir gefið sér þrjár til fjórar vikur til verksins. Sigurður Olafsson verkstjóri er einn þeirra sem hratt undir- skriftasöfnuninni af stað, og sagði hann í samtali við blaðið að ástæða söfnunarinnar væri fyrst og fremst tenging við Gilsfjarðarbrúna. „Þetta kemur til með að stytta leiðina geysi- lega mikið, og í framhaldi af því hlýtur slík framkvæmd m.a. að lækka vöruverð á svæðinu, ef landflutningar aukast í kjöl- farið,” sagði Sigurður. Undir- tektir almennings hafa verið ótrúlega góðar, að sögn Sig- urðar, en listarnir liggja frammi á nokkrum stöðum, m.a. á bensínstöðinni á Isafirði, báð- um olíuverslununum og f ýmsum stærri atvinnufyrir- tækjum á svæðinu. Ennþá hafa forsvarsmenn söfnunarinnarekki tekið neinar ákvarðanir um hvenær eða hvernig þingmönnum Vest- fjarða verða afhentir listarnir, en Sigurður er bjartsýnn á að þeir muni beita sér fyrir fram- gangi málsins. „Þetta er slíkt hagsmunamál fyrir okkur á norðanverðum Vestfjörðum að fá veg þarna yfir, svo ekki þurfi að keyra allar Strandimar. Með tilkomu Gilsfjarðarbrúar verð- ur þetta ein stærsta samgöngu- æðin okkar, ef við fáum heils- ársveg yfir Þorskafjarðarheiði” sagði Sigurður. Umhverfisráðherra gefur út regiu- gerð um varnir gegn snjófióðum Varnarvirki skulu reist Umhverfisráðherra hefur gefið út reglugerð um varnir gegn snjóflóðum og skriðu- föllum þar sem meðal annars eru settar reglur um þátttöku Ofanflóðasjóðs í gerð vamar- virkja og uppkaup og flutning á húseignum í sveitarfélögum sem búa við snjóflóðahættu. Samkvæmt reglugerðinni sem þegar hefur tekið gildi, skal jafnan bregðast við snjóflóða- hættu með því að reisa vamar- virki nema talið sé hagstæðara að kaupa eða flytja húseignir. Samkvæmt lögum er Ofan- flóðasjóði heimilt að greiða allt að 90% af kostnaði við gerð varnarvirkja vegna ofanflóða eða kaupa eða flutninga á hús- næði á hættusvæði og skal kaupverð húseigna þá miðað við markaðsverð sambæri- legrar eignar utan hættusvæða í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að tillögur sveitarstjóma um vamaraðgerðir verði lagðar fyrir Ofanflóðanefnd, sem fer yfir framkvæmda- og kostnað- aráætlanir og öðlast þátttaka Ofanflóðasjóðs í framkvæmd- unum gildi að fengnu samþykki nefndarinnar og staðfestingu umhverfisráðherra. Getraunaieikur Bi Björn sigraði í annarri umferð Björn Jóhannesson lögmaður á ísafirði stóð uppi sem sigurvegari í öðrum hluta getraunaleiks Boltafélags ísafjarðar sem lauk fyrir stuttu. Getraunaleiknum, sem stendur yfir í 24 vikur, er skipt niður í þrju átta vikna tímabil og hlýtur sigurvegari eftir hvert tímabil ferðavinning í boði Flugleiða. Eftir fyrstu átta vikurnar stóð Frank Guðmundsson uppi sem sigurvegari, en Björn sigraði í öðrum hluta eins og áður sagði eftir harða viðureign við Sveinfríði Högnadóttur. Fékk Bjöm atbentan vinning sinn á laugardag en þá tipparar á beina útsendingu á leik ensku knatt spyrnunni. Eftir að síðasta átta vikna lýkur, kemur í Ijós hver tipparanna hefur náð bestum árangri í vetur og hlýtur sá hinn sami væntanlega ferð á Wembley að launum. A meðfylgjandi mynd afhendirJakobOIasonformaðurknattspymudeildar Bl, Birni Jóhannessyni ferðavinninginn. Ný vöruskemma Eimskips á ísafirði Fullbúin í vor Fyrirtækið Garðasmiðjan hf„ frá Garðabæ hefur reist burðargrind nýrrar vöru- skemmu sem Eimskip er með í byggingu á Sundahafnar- svæðinu á Isafirði. Að sögn Helga S. Gunnarssonar hjá Verkfræðistofu Stefáns ÓI- afssonar sem hefur yfirum- sjón með framkvæmdum á vegum Eimskipa, er ráðgert að taka húsið í notkun á vor- mánuðum. Allir verkþættir hússins eru boðnir út, og sá fyrir- tækið Agúst og Flosi hf. um að steypa undirstöður undir húsið. Garðasmiðjan átti lægsta tilboð í að reisa húsið sjálft og að ganga frá því að utan, en lokafrágangur innan- húss verður einnig boðinn út. Enn sem komið er, er bygg- ingarkostnaður við húsið ná- lægt þeirri kostnaðaráætlun sem gerð var í upphafi. Gott veður að undanförnu hefur nokkuð létt undir með verk- taka hússins við framkvæmd- ir, að sögn Helga, en bygging hússins á að ganga nokkuð hratt fyrir sig. Framkvæmdir við nýja vöruskemmu Eim- skips ganga mjög vei, og á húsið að vera tii- búið á vormánuðum. Góður afii hjá Guðbjör Á Flæmska hatt- innframíjúlí Frystitogarinn Guðbjörg ÍS- 46 landaði 335 tonnum af rækju á Isafirði á fimmtudag í síðustu viku að verðmæti um 65 millj- ónir króna. Togarinn landaði svipuðum afla í febrúar og er heildaraflinn frá áramótum því kominn í vel á sjöunda hundrað tonn. Stærsta rækja fer á markað í Japan, suðurækjan fer til Dan- mörku og iðnaðarrækjan fer til vinnslu hjá Strýtu á Akureyri. Guðbjörgin hélt aftur á veiðar á sunnudagskvöld og var stefna tekin á Flæmska hattinn, en þar mun skipið verða að veið- um fram í miðjan júlí. Áhafna- skipti munu fara fram um miðjan næsta mánuð í gegnum St. John áNýfundnalandi. Guð- Óvenjuieg tiikynning við brottför íslensks fiski- skips. Þar sagði: Brott- för ki. 23.00 þann 10. mars. Skipstjóri. P.s. Munið eftir vegabréfum og atvinnuskírteinum. mundur Einarsson fór með Guðbjörgina á Flæmska hattinn en Guðbjartur Ásgeirsson mun leysa hann af í næsta mánuði. Unnið við iöndun á tonnunum 335 um borð í Guð- björgu á fimmtudag í síðustu viku. 10 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.