Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 16

Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 16
Tilboö 13. - 16. mars Öll glervara 20% afsláttur Sími: 456 5188 Opiö / hádeginu <4iVx Sími: 456 5188 íþróttahúsið á Torfnesi vei nýtt Yfir jirjátfu þúsund gesfir á síðasta ári Mjög góð nýting hefur verið á íþróttahúsinu á Torf- nesi það sem af er þessu ári, að sögn Björns Helgasonar íþróttafulltrúa Isafjarðar- kaupstaðar, en húsið er nánast fullnýtt frá morgni til kvölds. Almenningi hefur gefist kostur á að kaupa tíma í húsinu, þegar kennslu og æfingum íþróttafélaganna lýkur, og hafa þeir flestir verið seldir. Verð á almenn- ingstímum hefur verið óbreyttfrá 1993, og erverðið áþekkt því sem annars staðar gerist, eða 1.500,- kr. fyrir þriðjung úr sal, 3.000,- kr. fyrir tvo þriðju, og 4.000,-kr. fyrir salinn allan í 50 mínútur. Við íþróttahúsið á Torfnesi starfa þrír starfsmenn auk for- stöðumanns, og sagði Björn að rekstarkostnaður yfirstandandi árs væri áætlaður um 10 millj- ónir króna. Iþróttahúsið stend- ur lítið notað yfir sumar- mánuðina, líkt og önnur íþróttahús, að sögn Björns, en unnið er markvisst að því að húsið standi undir nafni sem fjölnota íþróttahús. I athugun er að í sumar verði húsið m.a. nýtt undir bílasýningu. tónleika og afmælishátíðir. Ekki er gert ráð fyrir tækjakaupum fyrir íþróttahúsið á þessu ári, en Björn sagði rekstrarstjórn hússins hafa áhuga á að fá senu- aðstöðu í húsið til að auka nýtingarmöguleika þess. Tekjur fþróttahússins á síð- asta ári námu 12,3 milljónum króna, þar af komu 2,4 millj- ónir frá sölu á íþróttatímum til almennings. Alls sóttu yfir þrjátíu þúsund manns húsið á síðasta ári, þátttakendur í æfingum á vegum I.B.I voru 17 þúsund, gestir á kapp- leikjum voru ríflega 3 þúsund, tæplega 5500 íbúar bæjarins æfðu í húsinu í almennum tímum og 4400 manns sóttu húsið vegna annarra viðburða, en m.a. voru tvær minningar- athafnir haldnar í íþróttahúsinu á síðasta ári. Yfir þrjátíu þúsund manns nýttu íþróttahúsið á Torfnesi á síðasta ári. Heiðrún ÍS-4 heidur brátt ti/ veiða á Fiæmska hattinum. Frystitæki sett um borð í Heiðrúnu Heldur öl veiða á Flæmska hattinn Skipasmíðastöðin á ísafirði er að setja frystitæki um borð í Heiðrúnu ÍS-4, sem er í eigu Bakka Bolungarvík hf., og á verkinu að vera lokið í viku- lokin. Að sögn Sævars Birgis- sonar, útgerðarstjóra Bakka Bolungarvíkur hf., er ætlunin sú að skipið haldi til veiða á Flæmska hattinum eftir breyt- ingarnar. „Þessar breytingar eru ekki kostnaðarsamar, þetta er bara bráðabirgðaredding,” sagði Sævar, en sett verða upp plötufrystitæki og lestar skips- ins einangraðar. Hann sagði skipið ekki skila verðmætara hráefni eftir breytingamar, en það yrði ekki bundið af nálægð við heimahöfn. „Eg veit ekki hvort það er beinlínis stefna hjá okkur að sækja á fjarlægari mið, en það var álitið hag- kvæmt að senda Heiðrúnu á Flæmska hattinn. fyrst það er opið þangað, við erum bara að sækja hráefni fyrir verksmiðj- una,” sagði Sævar. Heiðrún verður ekki til frambúðar á tjarlægari miðum, f september kemur hún aftur til veiða á ferskfiski. Brotist inn í töivukerfi Snerpu á ísafirði Allt hreinsað dt af annarri aðaltölvu fyrirtækisins Rétt um kl. 01 aðfaranótt síðastliðins sunnudags braust óþekktur aðili inn á tölvukerfi Tölvuþjónustunnar Snerpu á Isafirði og eyddi öllum gögnum á annarri af tveimur Internets- vélum fyrirtækisins. Að sögn Jóns Amar Gestssonar, annars eiganda Sneipu eru innbrot sem þessi algeng í tölvuheiminum og erfitt getur reynst að hafa uppi á þeim sem eru að verki. „Sá sem þama var að verki mun hafa hafið skemmdar- verkið um kl. 01.03 aðfarar- nótt sfðastliðins sunnudags. Þessi harðsvíraði aðili sem við vitum ekki hver er, braust inn á tölvukerfi okkar í gegnum há- hraðanetið. Hann fór inn á aðal- tölvuna og hreinsaði allt út af henni þannig að hún fór ekki einu sinni í gang. Þar var allur Internetsvefur okkar og hann hvarf allur. Þessi sami aðili var síðan byrjaður að reyna að eyðileggja gögn á hinni vél- inni en gat ekki klárað verkið þar sem kerfið brást rétt við í það skiptið. Vegna þess að honum tókst ekki að eyðileggja þá vél komst samband á mjög fljótlega eða eftir um þrjár klukkustundir. Ef honum hefði tekist það, þá hefði stoppið geta varað í a.m.k. 5-6 klukkustundir. Við áttum afrit af flestum upp- lýsingunum sem voru á vél- inni og gátum því keyrt þær inn aftur. Það eina sem við misstum út var nýjasti Inter- netpósturinn ásamt öðru smá- vægilegu. Innbrot sem þetta geta valdið tilfinnanlegu tjóni og því má segja að við höfum sloppið vel,” sagði Jón Arnar. Jón Arnar sagði að aðilar í tölvuþjónustu væru í varnar- stöðu gegn innbrotum sem þessum og yrði brugðist við þannig að slíkt gæti ekki endur- tekið sig. „Við sjáum nokkurn veginn hvað hefur gerst og munum snúa okkur að þeim kafla til að vama því að slíkt komi ekki fyrir aftur. Hvað við gerum er ekki gefið upp,” sagði Jón Arnar. Sameiginiegt sveitar- féiag á Vestfjörðum Dháðin KvennalisU og Alpýðubandalag saman í framboð Óháðir, Kvennalisti og Alþýðubandalag hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista til sveitarstjórnar í hinu nýja sveitarfélagi á norðanverðum Vest- fjörðum. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi flokkanna þriggja sem haldinn var á laugar- dag. Kosin hefurverið þriggja manna uppstill- ingarnefnd til að gera tillögu að framboðslista og verður tillaga nefnd- arinnar kynnt á fundi sem haldinn verður að Núpi í Dýrafirði á laugardaginn kemur. Fundurinn sem hefst kl. 13 er opinn öllu stuðn- ingsfólki framboðsins.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.