Bæjarins besta - 30.04.1996, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 *Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verö kr. 170 m/vsk
Heilsugæslustöðin á ísafiröi
Leitt ef hjörðin er dæmd af
fáeinum svðrtnm sauðum
- segir Helgi Kr. Sigmiindsson, læknir á heilsugæslustöðinni á ísafirði
um meinta misnotkun á svonefndum tíundasjúði heilsugæslustöðvanna
Undanfarna daga hafa borist
fréttir af meintri misnotkun á
svonefndnum tíundarsjóðum
heilsugæslustöðva og hefur í
því sambandi verið haldið fram
að sjóðurinn hafi verið notaður
til skemmtiferða starfsfólks
heilsugæslustöðvanna erlendis.
Blaðið hafði samband við
Helga Kr. Sigmundsson, lækni
á heilsugæslustöðinni á Isafirði
og spurðist fyrir um notkun
sjóðsins hjá stofnuninni og
sagði hann að farið hefði verið
með fjármuni þessa af ráðdeild-
arsemi.
..Sjóðurinn sem skapaðist
við þessa gjaldtöku hér á
heilsu-gæslustöðinni á ísafirði
hefur verið nýttur nær eingöngu
til tækjakaupa. Má þar nefna
vaktbíl og bætta aðstöðu fyrir
þá sérfræðinga sem koma
hingað á vegunr stöðvarinnar.
Þannig hefur á mjög skilvirkan
hátt verið aukin sú þjónusta
sem við getum boðið Isfirð-
ingum og íbúum nágranna-
byggða. Farnar hafa verið tvær
námsferðir sem hafa verið
kostaðar að minnsta kosti að
hluta af þessum sjóði. Báðar
voru innanlands og í annarri
var einn starfsmaður í för en í
hinni tveir. Ég held að flestir
geti verið sammála um það að
hér á bæ hafi ekki verið bruðlað
með þessa peninga,” sagði
Helgi.
Aðspurður um þær fregnir
sem hafa borist um misnotkun
þessa sjóðs sagði Helgi. „Fyrst
vil ég minna á það að hugs-
anlega viturn við ekki alla
málavöxtu og geri ég ráð fyrir
því að verið sé að vitna til
nýlegra frétta í DV og fleiri af
þessu máli. Því finnst mér
ótímabært að fella dóma í
einstökum málum enda er það
ekki mitt hlutverk. Mín skoðun
er einfaldlega sú að það er alltaf
leitt ef hjörðin er dærnd af
fáeinum svörtum sauðum.”
41, þing Fjóröungssambandsins
Samgöngumál endurskoðuð
Þing Fjórðungssambands
Vestfirðinga sem haldið var í
síðustu viku, var óvenju vel
sótt og árangursríkt að mati
Eiríks Finns Greipssonar fram-
kvæmdastjóra sanrbandsins.
Helstu mál þingsins voru
stofnun byggðasamlags um
rekstur skólaskrifstofu við
flutning grunnskólans frá ríki
til sveitarfélaga á þessu ári,
stofnun atvinnuþróunarfélags
á Vestfjörðum og endurskoðun
á stefnumörkun í samgöngu-
málum fyrir Vestfirði sem
unnin var árið 1976.
Einnig var ákveðið að efna
til málþings í haust um sam-
skiptamál sveitarfélaga og
gerðar voru breytingar á lögum
sambandsins. Tillaga laga-
breytinganefndar um að at-
kvæðavægi sveitarfélaga fari
eftir íbúafjölda þeirra náði ekki
fram að ganga, en í hennar stað
var samþykkt að atkvæðavægi
fari eftir margfeldi íbúatölu
sveitarfélags með vogtölu.
Sveitarfélag með færri en 200
íbúa hefur vogtölu 3, en sveitar-
félag með fleiri en 1000 íbúa
hefur vogtölu 1.
„Umræður í nefndum urn at-
vinnumál, skólamál og laga-
breytingar voru mjög fjörlegar,
og einnig urðu miklar umræður
um hvort okkur beri að breyta
um stefnu í uppbyggingu sam-
göngukerfisins, þ.e. eigum við
að draga úr uppbyggingu Djúp-
vegar og leggja í tengingu norð-
ur- og suðursvæðanna í staðinn.
Niðurstaðan varð sú að fara í
stefnumótunarvinnu í sam-
göngumálum,” sagði Eiríkur.
ihíiJ UiJIUJ
aiVi'í i
IjJ II88II
- s|| vlltsl ili yissiiirlDi
sngjiil I, Buirlns Jsririii l
niisiii
ferðinni nemendur Framhaidsskóia Vestfjarða sem voru að,,dimmitera " með
öiium þeim óhijóðum og ærsium sem siíkri athöfn fyigir. Voru stúdentsefnin
kiædd eins og bangsar og voru mörg þeirra orðin fremur framiág er ieið á
daginn enda hafði skemmtunin þá staðið um iangan tíma. Biaðið vonar að
heiisan hafi skiiað sér enda veitir ekki af, því framundan er annasamur tími við
prófiestur. Hér má sjá tvö stúdentsefni, þær Örnu Láru Jónsdóttur (tv) og Evu
Hiín Gunnarsdóttur. Á minni myndinni sést eðaivagninn sem merktur var
,,úrgangur" á ieið með stúdentsefnin um bæinn.