Bæjarins besta - 30.04.1996, Side 4
■ WTTM.mim m innnmni
Utgefandi:
H-prent hf. Sólgötu 9,
400 ísafjörður
•s 456 4560 0456 4564
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
og Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Jóhanna Eyfjörð
Bæjarins besta er aðili að samtök-
um bæjar- og héraðsfréttablaða.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun
ljósmynda og annars efnis er
óheimil nema heimilda sé getið.
Netfang: hprent@snerpa.is
isafjorður
Vilji er allt
í sðl og sumaryl
sem þarf
Síðan Einar Benediktsson orti íslandsljóð sitt, sem hefst með
þessari meitluðu dskorun: Þú fólk með eymd í arf! / Snautfog
þyrst við gnóttir lífsins linda, / litla þjóð, sem geldur stórra
synda, / reistu I verki / viljans merki, / vilji erpllt, sem þarf...
hefur orðið meiri þjóðfélagsbyltíng hjó okkur íslendingum, en
dœmi eru um hjó öðrum þjóðum d jafn skömmum tíma.
íslendingar, snauð og þyrst þjóð, sem öldum saman nýtti
auðlindir hafsins til þess eins að draga fram lífið, en gekk
síðan svo nœrri þeim ó nokkrum hinum síðustu óratugum, að
í dag md hún þola þd niðurlœgingu að sjómenn hennar
geta ekki lengur róið til fiskjar, sem frjólsbornir menn, og að
misvitrirstjórnmólamenn úthluta því, sem eftir liggurtil útvaldra
gœðinga. Á þann veg geldur nú þjóðin „stórra synda",
grœðgi og fyrirhyggjuleysis, sem fólst ekki í hvatningu skdldsins
um „viljans merki."
íslandsljóð Einars Benediktssonar œtti að vera skyldulesning
ó öllum stigum skólaskyldu svo lengi sem íslendingar burðast
með fullveldi, halda þjóðhdtíðardag og kjósa forseta.
Sjá, hin ungborna fíð vekur storma og stríð, / leggur
stórhuga dóminn á feðranna verk. - / Heimtar kotungum rétt,
- og hin kúgaða stétt / hristir klafann og sér hún er voldug og
sterk.
Á 80 óra afmœli Alþýðusambands íslands liggja fyrir Alþingi
frumvörþ sem snerta viðkvcema strengi samtakanna, Hér og
nú er ekki tekin afstaða með eða d móti breytingum ó
vinnulöggjöfinni. Eflaust mó sitthvað þar til þetri vegar fcera,
líkt og hjó hreyfingunni sjólfri sem og d flestum sviðum
þjóðlífsins. Hitt œtti ekki að þurfa að segja róðherrum, að
breytíngar ó vinnulöggjöfinni dn samkomulags við verka-
lýðshreyfinguna eru dœmdar til að mistakast. Það er
barnaskapur að cetla sér að knýja slíkt í gegn með einföldum
meirihluta þingmanna.
Hvaða afstöðu sem menn kunna að hafa til verka-
lýðshreyfingarinnar verður ekki ó móti mcelt, að einstök
verkalýðsfélög og heíldarsamtök þeirra eiga sinn þótt í þeim
stakkaskiptum, sem ótt hafa sér stað í þjóðfélaginu og fœrt
hafa okkur mannréttindi, sem við nú teljum sjólfsögð, en sem
voru það engan veginn ó órum óður. Þau komu ekki af sjdlfu
sér og kostuðu sitt,
ísland í órdaga verkalýðshreyfingarinnar var allt annað
land, en það sem við þekkjum í dag. Húsakostur landsmanna,
atvinnutœki og tœkifœri, samgöngur, yfir höfuð allt, sem
nöfnum tjóir að nefna, hefur tekið þvílíkum breytingum að
orða er vant. En, þrdtt fyrir allt þetta blasir samt sú nöturlega
staðreynd við d því herrans dri 1996, að hluti landsmanna býr
enn við fdtœktarmörk; aðstœður, sem fyrr ó drum leiddu til
niðrandi nafngiftar d þolendum.
Senn göngum við inn í nýja öld, Þegar þar að kemur og
sagnaritarar taka til við að meta frammistöðu okkar ó þeirri
gömlu, mun koma í Ijós, - þrótt fyrir allar umbœtur í
þjóðfélaginu og velferð ó mörgum sviðum - að við fóum
falleinkunn fyrir að hafa skammtað þjóðarkökunni úr hnefa til
svo margra.
Undan þeim dómi verður ekki vikist. En það er aldrei of seint
að reisa í verki, viljans merki og vilji er allt, sem þarf.
s.h.
Fjölmargir Vestfirðingar nutu veðurblíðunnar á
föstudag og spásseruðu um götur eða lágu í sólbaði,
enda langur tími liðinn frá því hægt var að stunda slíka
iðju til að ná lit á kroppinn. Meðal þeirra sem nutu
veðurblíðunnar á ísafirði á föstudag voru Bubbi Mort-
hens og félagar sem voru á tónleikaferð um Vestfirði á
helginni. Þegar Ijósmyndari blaðsins varð þeirra var á
efri hæð veitingahússins Á Eyrinni á föstudag, voru þeir
félagar ánægðir með móttökurnar hjá veðurguðunum
og nutu þess að ná örlitlum lit á kroppinn í faðmi fjalla
þlárra.
Skírð Aprí! Eik Stefánsdóttir á sumardaginn fyrsta
HeíUr Ásta Júlía Beck í þjöðskrá
Apríl Eik Stefánsdóttir var skírð við hátíðlega athöfn á
sumardaginn fyrsta. Athöfnin var frábrugðin hefðbundnum
skírnarathöfnum að því leyti að skímarbarnið sagði sjálft til
nafns, enda komin á fjórtánda árið og fermist í vor. Hitt er öllu
óvenjulegra að vegna afstöðu mannanafnanefndar er Apríl Eik
ekki til í opinberum bókum, þar heitir stúlkan Asta Júlía Beck.
Séra Magnús Erlingsson skírði Apríl og að lokinni athöfninni
var haldið skírnarkaffi fyrir vini og vandamenn Apríl.
,,Það hefur ekki fengist leyfi fyrir nafninu Apríl, en presturinn
skírði hana Apríl Eik, og það er hennar vígða nafn.
Mannanafnanefnd viðurkennir ekki nafnið, þannig að Apríl
ákvað sjálf að heita Ásta Júlía í þjóðskrá,”segir Sigrún
Magnúsdóttir, móðir Apríl. Ásta er nafn föðurömmu Apríl og
Júlía nafn móðurömmu hennar. Apríl ákvað að nýta sér ný lög
um erfðir ættamafna, en í dag erfast þau í kvenlegg jafnt sem
karlleg, og þar sem föðuramma hennar hefur ættarnafnið Beck
(sem tæplega er hægt að telja til alíslenskra nafna) má Apríl
taka það upp.
Apríl hefur verið skráð stúlka Stefánsdóttir í þjóðskrá þar til
nú. Foreldrar Apríl hafa lengi reynt að fá nafn dótturinnar
viðurkennt af mannanafnanefnd, en án árangurs. Rök
nefndarinnar eru m.a. þau, að Apríl sé karlkynsheiti, því mánuður
sé ætíð karlkyns, og það þykir ekki samræmast íslensku
beygingarkerfi. Sigrún bendir þó á að nafnið Dagmar sé
kvenmannsnafn, en Hilmar, Sigmar og Guðmar karlmannsnöfn.
„Hún hefur alltaf verið kölluð Apríl Eik og verður það áfram, en
það á að fara að ferma stúlkuna og hún var sátt við þetta sjálf.
Það verður ekkert sjokk fyrir hana að fá ekki nafnið sitt í
þjóðskrána, því það hefur verið talað mikið um þetta á heimilinu.
En hún er svolítið ákveðin, stúlkan og það getur meira en verið
að hún fari fram á að nafninu verði breytt í þjóðskrá, ef lögum
um mannanöfn verður breytt. Núna verð ég líklega að tilkynna
þetta á pósthúsið, því hún fer að fá ýmsan póst á nafn Ástu Júlíu
Beck. Ég á nú ekki von á að þetta valdi miklum vandræðum í
svona litlu samfélagi, en við erum við öllu búin og hún líka,”
segir Sigrún.
Aprí! Eik Stefánsdóttir eða Ásta Júiía Beck?
Apríi Eik ásamt foreidrum sínum, þeim Sigrúnu
Magnúsdóttur og Stefáni Brynjóifssyni.
4
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1996