Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1996, Síða 6

Bæjarins besta - 30.04.1996, Síða 6
Sigurður R. O/afsson efsti maður á lista Alþýðuflokksins skrifar Iskmp sknhnakiiniwinr RR Það leikur ekki við okkur kratana lánið, þegar BB birtir sínar fyrstu skoðanakannanir fyrir kosningar, það liggur við að við tvö, núverandi bæjar- fulltrúar Alþýðuflokksinsá Isa- firði þurfum að falast eftir plássi á byggðasafninu, sem sýnishom af síðustu krötunum í þessum fyrrum rauða bæ. Persónulega bregður mér ekki við, því ég man ekki til að ég hafi nokkru sinni unnið í happdrætti. Aftur á móti hef ég alla tíð uppskorið ásættan- leg laun fyrir vinnuframlag mitt, hvort heldur hafi verið um að ræða launagreiðslur frá atvinnurekanda ellegar í formi þakklætis vegna sjálfboða- vinnu. A sama hátt efast ég ekki um að upp úr kjörkössunum í Isa- fjarðarkjördæmi þann 11. maí, mun ég undirritaður hljóta þá umbun, er kjósendur telja mér hæfa og í fullu samræmi við mat þeirra á störfum mínum. Fulltrúar Alþýðuflokksins hafa stutt öll þau þýðingarmeiri málefni, er snerta málefni byggðalagsins samkvæmt okk- ar bestu sannfæringu og því hefur það margoft komið fyrir að við höfum verið samstíga meirihlutanum og afgreiðsla samkvæmt því farið 9:0 í at- kvæðagreiðslum. Jafnframt, þó seta í minni- hluta gefi ekki tilefni tii stórrar uppskeru, þá hafa bæjarfull- trúar Alþýðuflokksins, með góðum stuðningi hinna stjórn- arandstöðuflokkanna, náð á ýmsan hátt að sveiga harð- neskjulegar áætlanir meiri- hlutans í þann farveg að þær yrðu bæjarbúum sem létt- bærastar, þó við hefðum ekki atkvæðamagn til að geta endan- lega, komið í veg fyrir margvís- legt klúður, sem ísfirðingar þekkja af eigin raun. En þrátt fyrir málefnalega andstöðu, neita ég því alfarið að hafa orsakað það mikinn tímaskort hjá Sjálfstæðis- flokknum (sbr. yfirlýsing odd- vitaD-listai B.B. 25.10. 1995) með málþófi, að ekki hafist unnist tími hjá þeim á kjör- tímabilinu, til að efna jafn ein- falt kosningaloforð og borgara- fundina með kjósendum og mikið vantar á, að það séu einu svikin. Sé kosningaspáin sem birtist 24. apríl s.l. borin saman við fyrstu spá fyrir tveimur árum, á hún eftirfarandi sammerkt: 1) Báðar spámar eru gerðar áður en kratar hafa formlega Sigurður R. Óiafsson. hafið kosningabaráttu sína með útgáfu blaðs síns. 2) Af spurðum hlaut A-listinn 1994 5,0%, hékk þó inni með einn mann, nú 4,44% en engan bæjarfulltrúa. Stór hluti er óá- kveðinn eða neita að svara, þó 13% færri nú en 1994. 3) Báðar kannanirnar náðu til tiltölulega stórs hóps og ættu því að gefa ákveðna vís- bendingu 1994 til 8,5% kjós- enda, nú 10,3%. Þær voru báðar aftur á móti framkvæmd- ar af heimafólki og stór hluti spurðra, þekktu málróm þeirra sem í þá hringdu og svörun í samræmi við það. 4) Samsvarandi mistök koma t.d. fram í báðum. Árið 1994 var í fyrsta úrtakinu hringt þrívegis í einn frambjóðanda á B-lista, en 1996 jafnoft í einn frambjóðenda á D-lista. Eins og ég sagði hér að ofan minnist ég ekki þess að hafa nokkru sinni unnið í happ- drætti, því síður að lenda í úr- taki, þó ég fari nú ekki fram á að vera svo ljónheppinn að fá tvívegis upphringingu, því þá hefði ég fellt sjöunda bæjar- fulltrúa D-lista út úr glans- myndinni. ÞessifyrstaspáB.B. hefur því ekki skapað mér and- vökunætur. Alþýðuflokkurinn valdi þá uppsetningu á framboði sínu, að í fjögurra efstu sætin skyldu valdir frambjóðendur frá sér- hverju hinna fjögra kauptúna innan hins nýja byggðarlags og sýnum því eitt framboða hvern hug við berum til þeirrar sameiningarvinnu, sem fram- undan er í sveitarfélaginu og frambjóðendur A-lista eru reiðubúnir að leggja þar hönd á plóginn. Alþýðuflokkurinn stefnir að tveimur fulltrúum í nýrri sveitarstjórn og ég er fullviss um að kjósendur í hinu nýja sveitarfélagi, munu veita okkur það brautargengi. Sigurður R. Olafsson. Óðinn Gestsson, sjötti maður á iista Sjáifstæðisfiokksins skrifar Ferskir nndar... í blaði framsóknarmanna um daginn var stór og mikil grein eftir aðstoðarskólameistara Framhaldsskóla Vestfjarða, en hann er jafnframt þriðji maður á lista Framsóknarflokksins. I greininni kemur fram það álit, að framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins sé „skólamálafæl- inn". Raunar hafa æðstu menn skólans komið þeim skoðunum sínum á víðar á framfæri en í fjölmiðlum. I stuttu máli sagt: Þeir sem eru ekki með starfandi kennara í framboði eiga ekki að skipta sér af skólamálum! Og lausnin erþessúEfþiðviljiðað ferskir vindar fái að blása um Fram- haldsskóla Vestfjarða, þá skul- uð þið kjósa Framsóknar- flokkinn! Vissulegaerég ekki kennari. Ég er aftur á móti foreldri. Sem foreldri leyfi ég mér að hafa skoðun á skólamálum. Sem foreldri leyfi ég mér að hafa áhyggjur af stöðu Framhalds- skóla Vestfjarða. Og sem kjörinn fulltrúi fólksins í byggðarlagi mínu leyfi ég mér að hafa nauðsynleg afskipti af byggðamálum, hverju nafni sem þau nefnast. Þar eru skóla- inálin á meðal hinna allra mikilvægustu. Ég leyfi mér á sama hátt að hafa skoðun á dagvistarmálum og láta þar til mín taka - jafnvel þó að ég sé ekki fóstra að mennt. Ég leyfi mér einnig að hafa skoðun á samgöngum í héraðinu - jafnvel þó að ég hafi aldrei unnið hjá Vega- gerðinni. Og ég leyfi mér að hallast að því, að nauðsynlegar umbætur á Framhaldsskóla Vestfjarða og ímynd hans séu betur komnar í höndum einhverra annarra en þeima sem þar eru nú starfandi. Þeir vindareru sjaldnastmjög ferskir, sem blása innan frá. Oðinn Gestsson. Óðinn Gestsson. Aðaifundir Kaupfeiags Dýrfirðinga Samdráttur í rekstri kaupfélagsins Aðalfundir Kaupfélags Dýr- firðinga og dótturfyrirtækis þess Fáfnis hf., á Þingeyri voru haldnir 9. apríl sl. Á aðalfundi Kaupfélags Dýrfirðinga kom fram að hagnaður hafði orðið af rekstri félagsins sem nemur rúmum 5 milljónum króna og þar af var hagnaður af reglu- legri starfsemi um 1,5 milljón. Heildartekjur fyrirtækisins voru 106,4 milljónir, sem er nokkur samdráttur frá fyrra ári. Rekstur sérvörudeildar fyrir- tækisins var dreginn saman á árinu með takmarkaðri opn- unartíma og mun minna vöru- úrvali og nam söluminnkunin á þeirri deild einni um 26%. TapKaupfélagsinsáárinu 1994 var 131,2 milljónir króna og þar af 130,6 milljónir vegna afskrifta hlutafjár og viðskipta- krafna hjá dótturfyrirtækinu Fáfni hf. Fyrir utan 60% eignaraðild Kaupfélags Dýrfirðinga í Fáfni hf., er kaupfélagið nær helm- ings hluthafi í Sláturfélaginu Barða hf. Bæði þessi félög hafa átt í fjárhagslegum erfiðleikum og skiptir miklu fyrir framtíð kaupfélagsins að vel takist til í rekstri þeirra og efnahag í fram- tíðinni. Tap af reglulegri starfsemi 84,3 milljónir Á aðalfundi Fáfnis hf.. var fjallað um afbrigðilegt rekst- ursár eftir nauðasamninga fé- lagins, en þeir byggðust á því að selja frystitogarann Slétta- nes IS í byrjun apríl 1995. O- reglulegar tekjur Fáfnis vegna sölu togarans og niðurfellingu skulda urðu um 498 milljónir króna, Tap af reglulegri starf- semi var um 84,3 milljónir og því var hagnaður ársins til ráðstöfunar um 413,4 milljónir króna. Árið 1994 var tap af reglulegri starfsemi 120,2 milljónir og heildartap 100,5 milljónir króna. Tap af reglulegri starfsemi á árinu 1995 fór lækkandi enda átti það verulegar rætur í tap- rekstri Sléttaness fyrstu mánuði ársins og rekstrarstöðvun í frystihúsi Fáfnis vegna hrá- efnaskorts. Engu að síður er taprekstur í bolfiskvinnslu mikið áhyggjuefni og leita for- svarsmenn fyrirtækisins leiða til að vinna félagið úr þeirri stöðu. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur framleiðsla Fáfnis í frystingu og söltun nær þre- faldast miðað við sömu mánuði ársins 1994. Áhersla Ifigð á aukið hlutafé Við núverandi aðstæður í rekstri Fáfnis er ekki reiknað með taprekstri í ár. Lögð hefur verið áhersla á að fá aukið hlutafé inn í félagið auk þess sem vilji er hjá stjómendum fyrirtækisins fyrir þátttöku í viðræðum á Vestfjörðum um öflugt fiskvinnslu- og útgerðar- fyrirtæki eða skoðun á hverri þeirri samvinnu sem gæti orðið til ávinnings fyrir atvinnulífið og þar með grundvöll fyrir- tækjanna. Þær breytingar urðu á stjóm Kaupfélags Dýrfirðinga að Guðmundur Friðgeir Magnús- son gaf ekki kost á sér til endur- kjörs og var Sævar Gunnars- son kosinn í lians stað. Áður hafði Ólafur Kr. Skúlason færst upp í aðalstjóm í stað Kristins Jónassonar. Á aðalfundi Fáfnis var sú breyting á stjórn að Ólafur Steinþórsson var kjörinn aðalmaður í stað Kristins Jónassonar. Stjómarformaður Fáfnis hf., og Kaupfélags Dýrfirðinga er Guðmundur Ingvarsson en framkvæmda- stjóri og kaupfélagsstjóri er Sigurður Kristjánsson. 6 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1996

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.