Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1996, Side 8

Bæjarins besta - 30.04.1996, Side 8
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún er einnig ljós- móðir og lærður dagskrárgerðartæknimaður, og hefur verið búsett á Isafirði í hálft annað ár. A þeim tíma hefur hún tekið á móti fjölmörgum nýjum Vestfirðingum af margvíslegum uppruna, en Guðrún er önnur tveggja Ijósmæðra Fjórðungssjúkrahússins. Guðrún hefur nú sagt starfi sínu lausu og flytur í Þingholtin í Reykjavík á ný með vorinu. Þar sem stúlkan sú hefur fengist við marga og ólíka hluti um ævina, þótti tilhlýðilegt að rekja úr Guðrúnu garnirnar, áður en hún hverfur Vestfirðingum sjónum, í bili að minnsta kosti. Blaðamaður mælti sér mót við Guðrúnu á heimili hennar og fljótlega kom í ljós að Guðrún hefur haft taugar til Vestfjarða frá barnæsku, en faðir hennar, Baldvin Halldórsson, er fæddur og uppalinn á Arngerðareyri, og bjó á Isafirði á unglingsárum sínum. „Hann var í skóla hjá Hannibal og bjó við Sólgötuna. Þetta á sinn þátt í að ég kom hingað. Eg hafði komið hingað einu sinni eða tvisvar áður, ættingjar mömmu, Vigdísar Pálsdóttur búa í Borgarfirðinum og þangað var styttra að fara. Maður var búinn að heyra af þessu fyrir vestan og hinu fyrir vestan í gegnum tíðina,” segir Guðrún. Henni bauðst starf á Fjórðungs- sjúkrahúsinu sem ljósmóðir og segir að fyrir sig hafi það verið að hrökkva eða stökkva. „Eg var búin að vinna sem tæknimaður það lengi, að ég hefði líklega aldrei starfað aftur sem ljósmóðir, ef ég hefði ekki drifið mig af stað, ég hefði ekki haft kjark til að taka upp þráðinn mikið seinna.” Guðrún er borgarbarn, alin upp í miðbæ Reykjavíkur frá tíu ára aldri. „Eg er alin upp á besta stað. Fjölskyldan flutti á Tjarnargötuna áður en gömlu húsin urðu vinsæl, og svo breyttist þetta í Hollywoodhverfi þegar aðrir leikarar fluttu í nágrennið. Það var yndislegt að búa í miðbænum og ég er átthagafjötruð þar, og hef eiginlega aldrei búið annars staðar en öðru hvoru megin við tjörnina.” Guðrún á lítið hús við Bergstaðastrætið og segir Þingholtin vera lítið þorp. „Það eru mikil samskipti á milli íbúanna og svo margir sem maður þekkir. Flestir vinir mínir búa í nágrenninu, og mamma og pabbi eru ekki langt frá.” Nóg af leikurum í fjðlskyldunni Þegar Guðrún er spurð að því hvort æskuheimili hennar hafi mikið mótast af starfi föður hennar, en Baldvin er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, svarar hún því til að fólk vinni svo margs konar störf. að líklega hafi heimilislífið ekki verið mikið frá- brugðið því sem gerðist á öðrum heimilum. „Eg held að það skipti engu máli hvort maður er alinn upp á leikaraheimili eða ekki, fólk vinnur alls konar vinnu. Jú. það var voða gaman að fá að fara mikið í leikhús, sem við gerðum auðvitað. Pabbi vann alltaf mikið eins og allir menn á Islandi, hann vann mikið sem leikstjóri þegar ég var krakki og setti upp leikrit hér og þar.” Leiklistarbakterían lagðist einnig á Guðrúnu, þó hún hafi ekki staðið á fjölunum sjálf, en hún segir nóg af leikurum í fjölskyldunni og túlkunin heilli sig ekki. En við uppsetningu á leikriti þarf fleira fólk en leikara, þar koma búningahönnuðir, Ijósamenn og sviðssmiðir ásamt fleirum við sögu. A mennta- skólaárum sínum starfaði Guðrún með Herranótt. leikfélagi Menntaskólans í Reykjavík. „Eftir að ég varð ljósmóðir vann ég með Hugleik í ein tíu ár, bæði sem ljósamaður og hljóðupptöku- maður. Eg byrjaði sem Ijósamaður vegna þess að ég hef mikinn áhuga á öllu á milli himins og jarðar, meðal annars rafmagni. Við skulum segja að ég hafi mikinn áhuga á alls konar iðnum, nema pípulögnum.” Guðrún lagði samt ekki fyrir sig iðnnám eftir stúdentsprófið, í samræmi við bernskudrauminn lærði hún hjúkrun og hún segist vera hjúkrunarkona af gamla skólanum. „Þetta er mjög praktískt nám til að fá vinnu og ákvörðunin helgaðist að hluta af því að ég var mikið menguð af útþrá þegar ég var unglingur. Eg fór mikið til útlanda og vann í fríum, eitt sumar í Kaupmannahöfn, annað í Edinborg, og enn annað í fsrael, ég eyddi öllum mínum frftíma og peningum í útlönd. Mér fannst það spennandi að geta nýtt þessa menntun alls staðar, sem ég hef svo ekki gert, en það er allt annar handleggur. Ég varð stúdent vorið 1980 og þá var komin háskólabraul í hjúkrun, sem ég var mikið á móti. Mér fannst það vera mikið frumhlaup, líkt og svo margt á íslandi, það er aldrei skipulagt heldur hlutunum bara skellt á án mikils undirbúnings. Þarna var ákveðið að gera hjúkrunarnám að háskólanámi, þó að fullgilt hjúkrunamám væri í gangi við Hjúkrunarskóla íslands á sama tíma.” Fyrst eftir að hjúkrunarnáminu lauk.starfaði Guðrún sem hjúkrunarkona, en ákvað svo að læra til ljósmóður. Börn eru bestu sjúklinparnir „Ég var með skurðstofufóbíu og ákvað að reyna að komast yfir hana, og fór því að vinna á skurðstofu við Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi. Seinna vann ég á bamadeildinni á Landa- koti, og komst að þeirri niðurstöðu að af sjúklingum eru börn bestu sjúklingarnir. Þau eru heiðarlegust og einlægust, annað hvort eru þau veik eða ekki veik. Þau eru mikið veik og svo er það búið, þegar þau fara að leika sér. Þegar ég fór að kynnast hjúkrunarstarfinu betur, langaði mig frekar í hinn endann á því ferli sem fylgir spítala, í upphafið en ekki veikindin. Ég dreif mig því í ljósmóðurnám, og vann því um tíma á Fæðingardeild Landsspítalans. Mér líkaði ekki alveg þessi ópersónulega færi- bandaskipulagning sem þar var, þar sem verðandi móðir fékk alltaf nýja og nýja ljósmóður í gegnum meðgönguna, enn ein sem tók á móti barninu og svo sá móðirin hana aldrei aftur. Til að fá að upplifa allt ferlið, mæðraskoðun, sónarinn, foreldra- fræðsluna og fæðinguna, fór ég að vinna á Akranesi,” segir Guðrún sem starfaði þar í eitt ár. Um svipað leyti festi hún kaup á agnarlitlu húsi við Bergstaðastrætið í Reykjavík, húsið var svo lítið að í opinberum gögnum var það skráð íbúðarherbergi. Guðrún vann á Akranesi, og notaði frítímann til að lagfæra húsið. „Ég hafði búið í leiguhúsnæði hér og þar, að meðaltali átta eða níu mánuði á hverjum stað eins og gengur, og var farin að leita að íbúð sem ég gæti keypt. Þá hitti ég tvo vini mína á skemmti- stað, og þeir voru báðir svona glerfínir í nýjum jökkum.” Þegar Guðrún spurði þá hvort þeir hefðu keypt sér ný föt, urðu þeir dálítið skrítnir í framan, og sögðu henni að þeir hefðu farið að skoða hús, og þar hefðu líknarsamtök staðið fyrir fatagjöfum. „Ég spurði þá hvar húsið væri, og við fórum svo og skoðuðum húsið, sem var rétt um þrjátíu fermetrar. Ég skoðaði húsið aftur og aftur, og það bauð upp á ýmsa möguleika. Því fylgdi ágætur garður og ég keypti það á endanum. Það fékkst fyrir lítinn pening, en samt var það mun dýrara en ég hefði viljað, því húsið var svo gott sem ónýtt.” Úr hjúkrun í dagskrárgeröartækni Þegar Akranesdvöl Guðrúnar lauk, starfaði hún um stundar- sakir á deild fyrir nýrnabilað fólk og liðagigtarsjúklinga á Landsspítalanum. Guðrún var ekki ánægð í því starfi, og segist hafa tekið það of mikið með sér heim. Dag einn benti vinnu- félagi Guðrúnar henni á auglýsingu í blaði, þar sem Ríkisút- varpið auglýsti eftir nemunt í dagskrárgerðartækni. Guðrún sló til og sótti um í hálfgerðu bríaríi. „Við vorum nokkuð mörg sem sóttum um og fórum í alls konar próf, meðal annars heyrnarpróf, tóndæmapróf og ís- lenskupróf. Við vorum á endanum fimm sem fengum nemapláss og tveggja ára samning hjá Ríkisútvarpinu. Við sóttum alls konar námskeið í hljóðupptökutækni og ég vann þama allt of lengi,” segir Guðrún en hún starfaði í sex ár sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu og líkaði það ágætlega. „Ég var lengi á frétta- stofunni og þar var alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast. Mér fannst mjög gaman þar, að verða að halda haus í öllu fárinu þegar eitthvað mikið var að gerast, Hekla að gjósa og þess háttar. En ég er kannski svona nýjungagjörn, þegar mér finnst ég kunna eitthvað of vel, langar mig að byrja að læra á ný,” segir Guðrún en tekur fram að það eigi alls ekki við ljósmóðurstarfið, þar sé alltaf eitthvað nýtt að gerast. „Tæknivinna verður að rútínustarfi, að taka upp sögur og fréttir, að vera útsendingar- stjóri rásar eitt, þetta getur maður gert næstum því sofandi á endanum. Maður kann á klukkuna aftur á bak og getur reiknað útsendingartíma fram og til baka, og þá er starfið hætt að vera manni ögrun. Ég veit ekki hvort það var kynjamisrétti eða hvað, en við stelpurnar fengum lítið að taka upp tónlist, allt of lítið, því miður.” Þrjátíu flautur og margir kórar Þegar grennslast er fyrir um tónlistaráhuga Guðrúnar, kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Hún lærði á flautu og gítar, og svo safnar hún hljóðfærum. „Ég á fimm gítara og það eru engir tveir gítarar eins. Hljóðt'ærin koma bara upp í hendurnar á mér, ég á klarinett, saxófón og einar þrjátíu flautur og ég æfi mig stundum þegar ég er í einbýlishúsinu mínu, ég spila svolítið á saxófón og aðeins á þverflautu. Saxófóninn fékk ég í arf, og klarinettið keypti ég í Prag árið sem Berlínarmúrinn féll. Ég var þar á ferð 8 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1996

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.