Bæjarins besta - 24.02.1999, Side 3
ð ræða að menn
sinnar byggðar“
nga til að fiska í soðið
hann hafi aldrei áður á sjó
komið."
- En hvað segirðu frekar
um hinn umdeilanlega
„ramma laganna“ og hvort eða
hvernig kunni að verða stigið
út úr honum?
„Eg veit nú ekki hvort rétt
er að fara að hefja hin þyngri
vopnin á loft strax.“
- En þau eru tiltæk...
„Já, þau eru á sínum stað
og þeim verðurbrugðiðef þörf
krefur. Þróunin í stjórn fisk-
veiðanna hefur verið dálítið
óhugnanleg að ýmsu leyti,
finnst manni. Þar má nefna þá
nánu samtryggingu sem virð-
ist hafa myndast milli þeirra
tveggja sjávarútvegsráðherra
sem hafa haft forgöngu um að
skapa þetta kerfi og ráðuneytis
þeirra annars vegar, og Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna hins vegar. Þar virðist
hnífurinn aldrei ganga á milli.
Og síðan má líta á stöðu Haf-
rannsóknastofnunar gagnvart
þessum aðilurn. Hún á að vera
óháð vísindastofnun en er í
raun verulega háð þeim báð-
um. Þarna styrkir hver annan
og það verður til þess að erfitt
er að finna höggstað á þessum
þríeina þurs“, sagði Tryggvi
Guðmundsson.
I yfirlýsingu tólfmenning-
anna segir m.a.:
„Þessi áskorun er sett fram
af eftirfarandi ástæðum:
1. Til að hin mikla fiski-
gengd sem verið hefur við
Vestfirði nýtist íbúunum og
menn afli sér matarforða fyrir
heimili sín.
2. Til þess að nýta ákvæði í
6. gr. laga um stjórn fiskveiða
nr. 38/1990 með áorðnum
breytingum, svohljóðandi:
„Heimilt er án sérstaks leyfis
að stunda fiskveiðar í tóm-
stundum til eigin neyslu. Slík-
ar veiðar er einungis heimilt
að stunda með handfærum án
sjálfvirknibúnaðar. Afla, sem
veiddur er samkvæmt heimild
í þessari málsgrein, er óheim-
ilt að selja eða fénýta á annan
hátt.“
3. Siðast, en alls ekki síst,
til þess að vekja athygli á því
hrópandi óréttlæti sem kvóta-
kerfið veldur strandbyggðum
sem fá ekki að nýta sjálfbærar
auðlindir við húsdyr sínar, á
sama tíma og ýmsar aðrar auð-
lindir landsmanna eru nýttar
af einstaklingum, sveitarfé-
lögurn eða Iandshlutum, þeim
sjálfum til hagsbóta. Öllum
má vera ljóst, að kvótakerfið
felur óhjákvæmilega í sér
auðn landsbyggðar í náinni
framtíð ef ekki verða gerðar á
því grundvallarbreytingar."
Einnig segir: „Við hvetjum
til almennrar þátttöku í þess-
um róðri, en hún mun vekja
athygli á óréttlætinu sem
núverandi fiskveiðistjórnun-
arkerfi býður upp á... Þing-
menn hafa reynst vanmegnug-
ir til þess að reka þessa baráttu
og Alþingi aðhefst ekkert. Nú
er komið að því að leita nýrra
nar hf. á ísafirði dæmdur í Hæstarétti
tebundð fang-
ikrmasekt
ilu skattrannsúknastjúra hefur ekki verið skýrt
sjóðs skil ákr. 3.965.173, sem
haldiðhafði veriðeftiraflaun-
urn starfsmanna félagsins til
staðgreiðslu opinberra gjalda
þeirra..."
I atvikalýsingum Héraðs-
dóms Vestfjarða segir m.a.:
Samkvæmt fundargerðum
stjórnarNiðursuðuverksmiðj-
unnar hf. tók ákærði við stöðu
framkvæmdastjóra félagsins
15. september 1982 og gegndi
því starfi óslitið til 1. október
1991... Ákærði satjafnframt í
stjórn félagsins ásamt...“ Síð-
an segir að tilgreindur stjórn-
arformaður og stjórnarmaður
muni ekki hafa haft „bein af-
skipti af rekstri félagsins á
því tímabili, sem ákæra tekur
til. Ákærði viðurkenndi fyrir
dómi, að hafa sem fram-
kvæmdastjóri félagsins borið
einn ábyrgð á daglegum rek-
stri, þar á meðal fjármála-
stjórn, mánuðina október til
desember 1990 og janúar til
og með maí 1991. Sökum
erfiðleika í rekstri félagsins á
greindu tímabili hefði íslands-
banki, sem verið hefði stærsti
kröfuhafi félagsins, móttekið
allar greiðslur fyrir afurða-
framleiðslu félagsins og
skammtað því peninga inn á
reikning til greiðslu á útborg-
uðum hluta launa starfsmanna
og til að halda rekstinum
gangandi. Félagið hefði ekki
haft aðra fjármuni til ráðstöf-
unar og því hefði ákærði ekki
getað staðið að fullu lögmælt
skil á launatengdum gjöld-
um... Vorið 1991 hefði ís-
landsbanki síðan íkrafti stöðu
sinnar krafist þess að ákærði
viki úr starfi framkvæmda-
stjóra... Ákærði hefði látið af
störfum um mánaðmót maí/
júní 1991... Um leið hefði
ákærði afsalað sér lyklavöld-
um að skrifstofu félagsins og
hætt öllum afskiptum af dag-
legum rekstri. Einhverra hluta
vegna hefði dregist að til-
kynna um framkvæmdastjóra-
skiptin og geta þeirra í fundar-
gerðum stjórnar. Ákærði
kvaðst engu að síður ekki bera
ábyrgð á vangoldnum iðgjöld-
um til lífeyrissjóðanna tveggja
mánuðina júní til september
1991 og krafðist sýknu af
þeim hluta 1. liðar í I. kafla
ákæru.“
Síðar segir: „Við ákvörðun
refsingar ber annars að líta til
þess, að með greiðunr fram-
burði við rannsókn og með-
ferð málsins lagði ákærði sitt
af mörkum til að brot hans
yrðu upplýst. Ákærði gerði
sér einnig far um að bæta úr
skaðlegum afleiðingum brot-
anna, m.a. með margra millj-
óna króna greiðslum eftir
gjaldþrot Niðursuðuverk-
smiðjunnarhf. vegna ábyrgða,
sem hann hafði tekist á hendur
fyrir hlutafélagið og skilum á
vangoldnum vörslusköttum
tengdum rekstri Utgerðarfé-
lagsins Iðunnar ehf. eftir
gjaldþrot félagsins. Þá ber að
horfa til þess, að engin leynd
hvíldi yfir auðgunarbrotun-
um, óvíst er hvert tjón hefur
Tryggvi Guðmundsson.
leiða á vegum fjöldans..."
Tólfmenningarnir eru
þessir: Á Patreksfirði: Ulfar
B. Thoroddsen. Á Tálkna-
firði: Ársæll Egilsson. Á
Bíldudal: Örn Gíslason. Á
Þingeyri: Elís Kjaran Frið-
finnsson. Á Flateyri: Eiríkur
Finnur Greipsson. Á Suður-
eyri: Árni Árnason. Á Isa-
firði: Pétur Bjarnason,
Tryggvi Guðmundsson og
Þorsteinn Jóhannesson. I
Bolungarvík: Ólafur Bene-
diktsson. ISúðavíkurhreppi:
Salvar Baldursson. Á
Hólmavík: Brynjólfur Sæ-
mundsson.
ÞeirhvetjaVestfirðingaog
aðra sem kunna að hafa
áhuga á málinu að hafa
samband.
orðið af þeim og langt er um
liðið frá framningu þeirra.
Loks þykir mega líta til þess,
að vegna framangreindra
ábyrgða er ákærði enn í dag
skuldum vafinn og hefur þó
fyrir sex manna fjölskyldu að
sjá.“
I reifun Hæstaréttar segir
m.a.: Meðal málsgagna er
viðskiptayfirlit sýslumanns-
ins á Isafirði 14. maí 1998 um
gjöld áðurnefnds félags [Ut-
gerðarfélagsins Iðunnar] á
þeim árum, sem hér um ræðir,
þar á meðal um virðisauka-
skatt. Gætir verulegs ósam-
ræmis milli þessa skjals og
skýrslu skattrannsóknarstjóra
ríkisins 27. september 1996,
sem tekur meðal annars til
sama efnis. Sýnir fyrrnefnda
skjalið mun lægri álagningu
virðisaukaskatts á árinu 1993
en hið síðarnefnda, þar sem
munar rúmlega einni milljón
króna. Lætur nærri að inn-
borganir á því ári samkvæmt
skýrslu skattrannsóknarstjóra
hefðu nægt til að greiða upp
þá skattálagningu, sem fram
kemur í yfirliti sýslumanns,
en ekki hefur verið skýrt við
meðferð málsins í hverju
misræmi þetta liggur. Þá fæst
ekki séð að endurgreiddur inn-
skatturáárinu 1994séfærður
lil lækkunar skattsins í yfirliti
skattrannsóknarstjóra á því
ári, en ákært er fyrir vanskil á
öllum virðisaukaskattijanúar-
og febrúarmánaða þessa árs
án frádráttar. Að öllu virtu
þykir þessi þáttur málsins ekki
hafa verið skýrður með full-
nægjandi hætti. Verður sam-
kværnt því ekki komist hjá að
vísa þessum lið ákærunnar frá
héraðsdómi.“
Strákarnir í 5. ýlokki BI með heiðursskjölin ásamt þjálfara
sínum, Mattlnasi Hinrikssyni.
íslandsmeistar-
arnir heiöraðir
Bæjarstjórn Isafjarðar-
bæjar heiðraði sl. föstudag
nýbakaða Islandsmeistara í
fimmta flokki BI í innan-
hússknattspyrnu.
Piltarnir fengu þar sérstök
heiðursskjöl úr hendi Ragn-
heiðar Hákonardóttur, for-
seta bæjarstjórnar Isafjarðar-
bæjar.
Fyrirliðinn Birkir Halldór Sverrisson og Ragnheiður Há-
konardóttir, forseti bœjarstjórnar.
Árshátíð finfirö-
innaffélagsms
Vigdís Finnbogadóttir, fv.
forseti Islands, verður sér-
stakur heiðursgestur á árs-
hátíð Önfirðingafélagsins
sem haldin verður laugar-
daginn 6. mars í Akógessal-
num, Sóltúni 3 í Reykjavík.
Aðrir heiðursgestir verða
hjónin Snæbjörn Ásgeirsson
og Guðrún Jónsdóttir.
Veislustjóri verður Eiríkur
Finnur Greipsson, spari-
sjóðsstjóri.
Að loknum málsverði og
fjölbreyttri skemmtidagskrá
leikur Hjónabandið fyrir
dansi. Miða þarf að panta
fyrir 4. mars hjá Jónu (555
2226) eða Guðrúnu Ágústu
(551 5923).
Tóniistarhátíð æskunnar
Þrennir tnnleikar hjá
Tonlistarsknlanum
Dagur tónlistarskólanna á
Islandi er á laugardaginn,
27. febrúar. Á Isafirði verður
af þessu tilefni boðið til
„Tónlistarhátíðar æskunnar"
um helgina. Haldnir verða
þrennir nemendatónleikar
Tónlistarskóla Isafjarðar og
verður dagskráin afar fjöl-
breytt þar sem áhersla er
lögð á samleik. Ymsir
hljóðfærahópar og hljóm-
sveitir koma fram, dúett,
tríó, kvartettar og stærri
hópar, svo sem Barnakórinn
sem syngur á laugardag og
Djasssveit skólans, sem
leikur á sunnudag. Viða-
mesta atriðið er þó flutning-
ur Hljómsveitar Tónlistar-
skólans á Vorinu úr Árstíð-
unum eftir Vivaldi. Þar er
vissulega ekki ráðist á garð-
inn þar sem hann er lægstur.
Tónleikarnir verða í sal
Grunnskóla Isafjarðar á
laugardag kl. 15 og 17 og á
sunnudag kl. 15. Mismun-
andi efnisskrár eru á þessum
tónleikum. Tilgangur þeirra
er að efla samhug og félags-
kennd meðal nemenda, enda
er markviss þjálfun í sam-
leik veigamikill þáttur tón-
listaruppeldis. Þarna fá for-
eldrar og annað áhugafólk
urn tónlistaruppeldi tækifæri
til að skemmta sér með
nemendum og kynna sér
jafnframt starfið í skólanum.
Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill en ágóði af
sölu veitinga í hléi rennur í
byggingarsjóð skólans.
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
3