Bæjarins besta - 24.02.1999, Blaðsíða 13
Heiðurshjónin á Sólhakka, Einar Oddur Kristjánsson og Björgvin Sveinsson, Ólafur Geirsson og Brynja Höskulds- Þeimhjónum,EiríkiFinniGreipssyniogGuðlauguAuðuns-
Sigrún Gerða Gísladóttir. dóttir dóttur, fannst harðfiskurinn gómsætur.
Skemmtinefndin lýkur störfum og kallar til nefndarmenn nœsta þorrablóts við undirleik
Arna Brynjólfssonar frá Vöðlum. Má þar m.a. sjá Asdísi Jónsdóttur, Halldór Mikkaelsson,
Guðrúnu Pálsdóttur og Höllu Signýju Kristjánsdóttur.
Blótað í Holti
Slæmt veður kom ekki í veg fyrir að íbúar Mosvalla-
hrepps hins forna héldu sitt árlega þorrablót í Holti sl.
föstudagskvöld. Meðan hríðarbyljirnir blésu utandyra,
snæddi fólk gómsætan þorramat og skemmti sér kon-
unglega við fjölbreytt og bráðfyndin skemmtiatriði inn-
andyra. Var m.a. sýndur sjónvarpsþátturinn Efst á haugi
þar sem Halla First (Halla Signý Kristjánsdóttir, bóndi á
Kirkjubóli) tók viðtal við valinkunna bændur í sveitinni
og vakti þátturinn mikla lukku. Er tók að líða á kvöldið,
stigu Baldur og Margrét á stokk og léku fyrir dansi fram
eftir nóttu. Um tíma leit út fyrir að dans yrði stiginn fram
til morguns því um nóttina barst tilkynning þess efnis að
ófært væri orðið á ísafjörð. Enginn varð þó veðurtepptur
í Holti og komust allir til síns heima þrátt fyrir vonsku-
veður og ófærð.
Björn Björnsson, bóndi í
Hjarðardal, með eiginkonu-
efnið sem kvenfélagið í
hreppnum valdi honum til
handa.
ísfólkið safiu
fé fyrir KFÍ
ísfólkið ógurlega á ísafirði (stuðningsfélag KFÍ) gekkst
sl. föstudagskvöld fyrir grímudansleik í Krúsinni til
fjáröflunar fyrir sína menn. Meðal gesta voru m.a. Zorró
(nokkur stykki), Hallbjörn Hjartarson (eitt stykki), biskup
og nunna, andskotinn, Neró keisari (að því er virtist, svo
framarlega sem hann hefur verið með konubrjóst), Dauð-
inn, fom víkingur með hom og þannig mætti lengi telja.
Ekki er hægt að segja að söfnuður þessi hafi verið neitt
meira ógnvekjandi en Isfólkið er yfirleitt á heimaleikjum
KFÍ. Fagnaðurinn tókst vel og var fjölsóttur en tala gesta
liggur ekki fyrir vegna þess að vitað er að einhverjir munu
hafa verið í gervi ósýnilega mannsins. Meðfylgjandi
myndir voru teknar á grímuballinu.
Leikskólinn Sóiborg á ísafiröi
Gjöf frá Kvennadeild SVFÍ
Kvennadeild Slysavarna- höfðu konurnar nokkra tugi
félagsins á ísaftrði kom fær- af fallegum skærrauðum vest-
andi hendi á leikskólann Sól- um með endurskinsborðum
borg á Torfnesi dag emn í svo að börnin sjáist betur í Nokkur barnanna á Sólborg sem fengu vestin fallegu frá Kvennadeild SVFÍ á ísafirði. Ingigerður Stefánsdóttir
síðustu viku. í farangrinum umferðinni í skammdeginu. leikskólastjóri er til hœgri á myndinni með eitt af yngstu börnunum.
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
13