Bæjarins besta - 24.02.1999, Page 8
Grúskari, flugmaður,
framkvæmdastjóri, svifdrekamaður
- en fyrst og fremst Gromsari
Flugið er í
familíunni
- samtal við firn Ingólfsson, einn af feðgunum og flugmönnunum hjá Póls á ísafirði
Örn Ingólfsson er framkvæmdastjóri Póls á
Isafirði. Hann er ekki síður þekktur um Vest-
firði fyrir ýmsa sportmennsku, grúsknáttúru og
uppáfinningasemi, en það eru líklega allt
greinar á sama meiði. Og hann er ekki einn í
sinni fjölskyldu um þessar eigindir. Allir þekkja
Halla Ingólfs, bróður hans, flugmanninn sem
fór á skíðum beina leið niður Kirkjubólshlíð og
varð ekki mikið um. Þriðji bróðirinn er Hörður,
sá fjórði Ragnar (hann býr í Noregi og á flugvél
sem hann smíðaði sjálfur) og þeir eru allir með
flugpróf. Það hefur faðir þeirra líka, Ingólfur
Eggertsson, einn af bræðrunum sem jafnan eru
kenndir við Pólinn á ísafirði. Það skortir helst í
þessari familíu að móðir þeirra Ingólfssona hafi
líka flugpróf. En hún hefur gaman af því að
fljúga með manni sínum eða sonum.
Skyldi það vera rétt, sem heyrst hefur, að hún
hafi farið í fallhlífarstökk?
„Nei, hún hefur að vísu ekki
stokkið úr flugvél, en hún hef-
ur svifið í „paraglider“-fall-
hlíf“, segir Örn sonur hennar.
Þeir feðgarnir eiga saman
tvær flugvélar, aðra heima-
smíðaða sem heitir Agnið
(TF-AGN) og hina fjögurra
sæta. „Hana notum hana
aðallega til að bregða okkur
hérna norður fyrir, í Fljótavík
og Aðalvík og á Strandirnar,
einkum í Reykjarfjörð. Mest
með fjölskyldumar, vini og
kunningja. Mamma og pabba
eiga bústað í Fljóti. Mamma
er fædd þar og er mikið þarna
fyrir norðan á sumrin. Hún
fer eins snemma á vorin og
hún kemst og kemur aftur eins
seint og kostur er.“
í föðurættina er Örn aftur á
móti Gromsari, en það ættar-
nafn þekkja víst flestir Vest-
firðingar.
Agnið - sú litla gula
Flugvélin TF-AGN er dá-
lítið óhefðbundin og flugið á
henni er líka iðulega heldur
óhefðbundið. Lendingarstaðir
eru raunar hvar sem rúmlega
lófastóran sléttan blett er að
finna. „Eg hef almennt mjög
gaman af flugi. Helstu áhuga-
málin eru flug og skíði“, segir
Örn.
- Man ég það rétt að þú
hafír einhverju sinni farið á
skíðum beint niður Kirkju-
bólshlíðina, alveg ofan af
efstu brún?
„Nei, það var Halli bróðir.
Hann er miklu meiri ævin-
týramaður en ég! Það er frekar
að ég horfi á hann en hann á
mig fremja einhverja slíka
hluti, en vissulega tek ég
stundum þátt í ævintýrunum
með honum. Hann dró okkur
öll í flugið. Hann byrjaði fyrst-
ur í fjölskyldunni að læra flug
og síðan komum við á eftir
honum.“
lipphaf drekaflugs á
íslandi var á ísafirðl
„Fyrst vorum við nú með
honum í drekafluginu. Hann
var upphafsmaður þess hér-
lendis og hreif okkur með.
Fyrsta drekann smíðaði hann
líklegaum 1973-74. Þávarég
reyndar í námi erlendis og
missti af sjálfu upphafinu. En
þegar ég kom heint aftur fór
ég með honum í þetta. Þá var
mest drift í þessu á ísafirði og
flugdrekar voru þá nánast ein-
göngu á Vestfjörðum."
- Hvaðan var flogið á
þessum flygildum?
„Við byrjuðum á Gullhóln-
um uppi við Skíðaskála. Það
var mjög róleg brekka en svo
fórum við að prófa Þverfellið
og Sandafellið við Þingeyri,
sem er mjög gott til þessarar
iðju, og reyndar fórum við
nokkuð víða hér um kjálkann.
Síðan komu Sunnlendingarnir
til skjalanna og þeir fóru að
finna miklu betri staði fyrir
sunnan. Hér standa fjöllin svo
þétt og hvert upp í öðru. Það
er miklu betra að hafa hreinan
vind af sléttu fjalli sem maður
getur unnið með. Það er fullt
af góðum stöðum fyrir sunn-
an. Úlfarsfellið í Mosfells-
sveitinni er til dæmis mjög
gott. Það er mikill áhugi fyrir
þessu þar og ákveðinn hópur
sem stundar þetta."
Væri helvíti
gaman að vera fugl
-Hvererhelsti munurinn á
því að fljúga flugvél og svif-
dreka? Og hvað fá menn út úr
þessu?
„Það sem mest greinir á
rnilli er náttúrlega hávaðinn í
flugvélinni, þar sem í svif-
drekaflugi heyrist bara hvin-
Hálfdán Ingólfsson og fleiri við Agnið skammt frá sumardvalarstað fjölskyldunnar í
Fljótavík. Þegar flinkir menn eru við stjórnina getur sú litla gula tyllt sér nærri því hvar
sem er.
8
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1999