Víðförli - 15.05.1988, Page 6

Víðförli - 15.05.1988, Page 6
Leikmannastefnan hefur haslað sér völl Önnur leikmannastefna þjoð- kirkjunnar var haldin í Reykjavík fyrir skömmu. Sóttu hana fulltrúar úr öllum prófastsdæmum landsins, sem gerðu samþykkt um starfssvið og form leikmannastefnu framtíðar- innar. í áliti Starfsháttanefndar Þjóð- kirkjunnar sem Prestastefnan sam- þykkti árið 1977, kom fyrst fram hugmyndin um leikmannastefnu kirkjunnar. Prófastafundur áréttaði síðan þessa tillögu og Pétur biskup Sigurgeirsson hefur fylgt henni eftir. Fyrsta leikmannastefnan var haldin í fyrra og var þar kjörin nefnd til að gera tillögur um störf og skipulag slíkrar stefnu. Birna Friðriksdóttir var formaður hennar. í samþykktum leikmannastefn- unnar kemur fram að stefnan skuli vinna að eflingu leikmannastarfs með margvíslegum hætti innan kirkjunnar. Stefnuna skuli sækja tveir fulltrúar úr hverju prófasts- dæmi nema 3 úr Reykjavík. Kosið skuli leikmannaráð sem annist fram- kvæmdir stefnunnar. Til þess voru kjörin Helgi Hjálmsson form., Birna Friðriksdóttir og Guðný Guðnadótt- ir. Leikmannastefnan fjallaði um tvö mál sem Kirkjuþing vísaði til hennar um veitingu prestakalla og um bisk- upskjör. Ályktanir Lögin um veitingu prestakalla eru aðeins ársgömul, en nokkrir ann- markar hafa komið frma á þeim. í ályktunum leikmannastefnunnar segir m.a.: Á meðan gildandi lög hafa ekki verið endurskoðuð sbr. ákvæði til bráðabirgða hlutist Kirkjuráð og biskup til um að kirkjumálaráðherra kveði nánar á um framkvæmd lag- anna eða einstakra greina þeirra. Ekki er rétt að fella lögin alveg úr gildi og taka upp beina veitingu bisk- Kaffihléá Leikmannastefnu. Emil R. Hjartarson rœðir við Birnu Friðriksdóttur Kópa- vogi, Árdísi Björnsdóttur Skagafirði og Guðrúnu Guðmundsdóttur Hólmavík. ups eða ráðherra að fenginni um- sögn biskups. Ekki verði felldur niður að svo stöddu þriðji kafli laganna (8. til 20. gr.)um að áfrýja megi ákvörðun kjörmanna óski 25% sóknarfólks þess og ganga þá til almennra kosn- inga. Hinsvegar verði ákvæðunum breytt þannig að ósk ákveðins hluta sóknarbarna komi fram áður en kjörmannafundur skal haldinn, en komi slík ósk ekki fram innan ákveð- ins frests verði úrslitum kjörmanna- fundar ekki áfrýjað. Óskað verði eftir því við sóknar- nefndir að þær tjái sig um gildandi lög og æskilegar breytingar. Um- sagnirnar sendist héraðsnefndum, sem taki málið til meðferðar næsta haust og skili álitsgerð fyrir hlutað- eigandi prófastsdæmi til Kirkjuráðs. Eigi síðar en á Kirkjuþingi 1990 liggi fyrir fullmótaðar tillögur um hugsanlegar breytingar á lögunum. í umræðum um biskupskjör kom fram að eðlilegt væri að leikmenn ættu beina aðild að kosningu bisk- ups en tryggja þyrfti að sú kynning færi fram á biskupsefnum að það kjör gæti farið fram með ábyrgum hætti. Fræðsluátak Þá samþykkti leikmannastefna tilmæli til Kirkjuráðs: Leikmannastefna 1988 beinir þeim tilmælum til Kirkjuráðs, að það hlutist til um í samráði við próf- asta að fræðslufundir um störf starfsmanna kirkna og áhugafólks um safnaðarkirkju- og leikmanna- störf verði haldin sem allra fyrst í prófastsdæmum landsins. Fengnir verði þrír til fjórir menn til að leiðbeina á þessum fundum. Fulltrúar leikmannastefnu eru sammála um nauðsyn slíkrar fræðslu og vísa til mjög jákvæðra funda um þetta efni í Kjalarnespróf- astsdæmi. Slit Leikmannastefnu var slitið í Bisk- upsgarði. í ræðu sinni þar fagnaði biskup tilurð og starfi stefnunnar, sem væri tjáning á nýjum viðhorfum innan kirkjunnar. Næsta leikmannastefna verður haldin í mars að ári. 6 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.