Víðförli - 15.05.1988, Side 8
Hvað er leikmaður?
Leikmannastefnan virðist komin
á fastan grunn og hefur aukið enn á
hressilega umræðu innan kirkjunnar
um starf og sess leikmanna. Pétur
biskup hefur lagt mikla áherslu á
leikmannastarf og í erindisbréfi sínu
fjallar hann ítarlega um það. Þar
segir m.a.
Leikmaður er hinn óvígði og
óprestlærði kirkjunnar maður, hinn
almenni þátttakandi í kirkjunnar lífi
og starfi, hvort heldur honum er fal-
in sérstök þjónusta eða ekki. Þannig
er það til komið, að einstaklingar,
karlar og konur í kirkjunni nefnast
leikmenn. Það er því um að ræða
sjálfa kirkjuna, fólkið sem byggir
upp safnaðarstarfið, lif kirkjunnar.
Af þessu má ljóst vera, hve mikið
veltur á því að leikmannastarfið sé
lifandi og virkt. Sú stefna sem miðar
að því að efla og auka samtök og
verkefni leikmanna, er hreyfing, sem
öðru fremur mætti kalla vaxtar-
brodd kirkjunnar.
Kirkjan hefur á mönnum að skipa
til ákveðinnar þjónustu, sem varðar
alla uppbyggingu og árangur safnað-
arstarfsins. Sá misskilningur er enn-
þá víða landlægur að presturinn sé
allt að því hið sama og kirkjan, að
honum einum beri þjónustan við
kirkjuna og aðrir hafi þar ekki erindi
með höndum nema svo sem í viðlög-
um. Hvílík fásinna! Leikmenn skipa
mörg og mikilvæg embætti, sem öll
þurfa á árvekni og aðgæslu að halda.
Það á við alla sem Páll postuli lét
skila til Arkippusar í bréfinu til
Kólossumanna: „Gættu vel embætt-
isins, sem þú hefur tekið að þér í
Drottni, og ræktu það vel“ (4:17).
Ástæða er til að vekja athygli
sóknarnefnda á því skyldustarfi sem
að guðsþjónustuhaldi snýr og and-
legu lífi safnaðarins. Sóknarnefnd-
armönnum er ekki aðeins ætlað að
hafa umsjón með kirkjuhúsinu, end-
urnýjun þess og viðgerðum, heldur á
sóknarnefndin líka að vera presti
sínum til halds og trausts í helgihaldi
og andlegri uppbyggingu safnaðar-
ins. Það tel ég aðalskyldu sóknar-
nefndar. Af því starfi leiðir svo aftur
að hin ytri ásýnd kirkjunnar, ásig-
komulag byggingarinnar haldast í
hendur við hina innri andlegu þjón-
ustu. Sóknarnefnd á að vera prestin-
um til aðstoðar í því að viðhalda og
efla góða reglu og siðsemi í söfnuð-
inum og stuðla með eigin þátttöku
meðal annars, að guðsþjónustu-
gjörðin í kirkjunni fari vel og til-
hlýðilega fram. Þessi ábending um
að sækja kirkju á við um hvern og
einn starfsmann kirkjunnar, hvort
sem um hlutastarf er að ræða eða
fullt starf.
(Úr Kirkjan öllum opin, Hirðis-
bréfi herra Péturs biskups Sigur-
geirssonar).
f't'll ÍTI
w wfL Jl JH JH
Nýtt símanúmer sendiráðs-
prests í London.
Símanúmer sr. Jóns A. Baldvins-
sonar í London í Árbók kirkjunnar
misritaðist og leiðréttist hér með.
Heimasími hans er: 90 441 947 9827.
Afleysingarþjónusta í Reykja-
víkurprófastsdæmi.
Á fundi Safnaðarráðs Reykja-
víkur var nýlega á það bent að ekki
mætti bjóða einni stétt upp á það að
eiga aldrei helgarfrí nema í sumar-
leyfum eins og sóknarprestarnir í
prófastsdæminu búa við.
Safnaðarráðið ítrekaði því fyrri
samþykktir um nauðsyn þess að
ráða presta til afleysingaþjónustu í
prófastsdæminu og til að sinna þeim
störfum öðrum sem þeim verða
falin. Töldu menn að einn prestur
myndir ekki nægja í þessari þjón-
ustu.
8 — VÍÐFÖRLI