Víðförli - 15.05.1988, Side 12

Víðförli - 15.05.1988, Side 12
Á fundi Kristilegs féiags heilbrigisstétta ræddu læknarnir Ásmundur Magnússon og dr. Ásgeir B. Ellertsson um iífsviðhorf sín. Víðförli rabbaði við þá um þau mál. Reynslusönnun kristninnar er mér ekki minna virði en vísindaleg skoðun Dr. ÁsgeirB. Ellertsson eryfirlæknir á Grensásdeild Borgarspítalans. Hvað er heilbrigði, Ásgeir? — í læknisfræði skilgreinum við hugtök eftir ákveðnum reglum. Malaría er t.d. malaría, hvar sem hún er. Heilbrigði samkvæmt þessum reglum er því, þegar líkamlegt, sálar- legt og félagslegt ástand mannsins er í samræmi. Orsakir sjúkdóms geta því verið af ýmsum þeim toga, sem rýfur þetta samræmi. í einstaka þjóðfélögum hafa menn notað aðra skilgreiningu á heilbrigði og t.d. kall- að sjúklegt, það sem ekki hentar stefnu stjórnvalda. Þannig telst í guðlausu þjóðfélagi sá sjúkur, sem trúir á Guð og þess vegna settur í meðferð á geðveikrahæli. Reiknar læknisfræði með Guði? — Nei, í sjálfu sér ekki, því hann verður ekki sannaður með mæli- tækjum hennar. Hina kristnu trú byggi ég hins vegar á reynslu, sem er mér ekki minni sönnun en vísindaleg skoðun. Þetta er reynslusönnun, sem er mér jafnmikils virði, en birtist á annan hátt. Hvernig mælir þú kær- leika, sem þú finnur í handtaki vin- ar? Samt er hann staðreynd. Hvað er kristin trú þér? — Fyrir mér er kristin trú traust á Guði, að eiga lifandi samfélag við hann, sem lætur sér annt um okkur öll og grípur inn í líf okkar. En hvað er sameiginlegt með krist- inni trú og Iæknisfræði? — Jú, við sinnum manninum öll- um, sál og líkama. Kristindómur höfðar líka til mannsins alls, ekki síst anda mannsins, sem ég tel vera innsta kjarna sálarlífsins, þann sem snýr að Guði. Er þverstæða fólgin í að vera krist- inn læknir, ef læknisfræðin reiknar ekki með Guði? — Kristnir læknar sjá alla lækn- ingu, þar sem unnið er að fyrr- greindu samræmi, sem verk Guðs. Hver sem framkvæmir það, hvaða aðferð sem er beitt, þá er Guð þar að verki. Við sjáum einnig lækningu gerast fyrir bæn og samræmið eflast. Þegar ég mæti sjúkum meðbróður, kem ég í stað Jesú, sem samverka- maður hans, og um leið sé ég Jesú í náunga mínum og reyndar öllum mönnum. Þetta er í sjálfu sér þver- stæða, en lífið er þverstæða. En þegar við mætum þörfum mannsins, líkamlegum, sálarlegum, andlegum, erum við að uppfylla kröfu Jesú að vitja náungans, og þá eru allir jafngildir, hver sem staðan er, t.d. innan sjúkrahússins, því að öll erum við limir á líkama Krists, og þar eru allir jafn nauðsynlegir. Við eigum einfaldlega að vera góðir ráðs- menn, hver á sínum stað. Rithöfundurinn og læknirinn A.J. Cronin lýsir þessu svo vel í bók- inni „Töfrar tveggja heima“ Hann talar um, að maðurinn eigi að rækta garðinn sinn fyrir Frelsarann og annast blómin hans. En hver er garð- urinn minn, og hvernig vinn ég mitt verk? Mér mistekst það svo oft og þarf daglega fyrirgefningu, sem Guð veitir um leið og ég drekk af upp- sprettu hins andlega kletts. Cronin minnir á bænina, samfélagið um Guðs orð og sakramentin, til þess að halda áttum í flóknu lífi. Mér er þetta mikilvægt. Við þurf- um að vera heil, þar sem við erum að ganga fram með Drottni í hversdags- lífi okkar, þótt það gangi þversum á ríkjandi aðstæður i kringum okkur. Það er ekki alltaf létt að vera krist- in manneskja á sjúkrahúsi, en fyrir- heit Drottins breytast ekki þar frem- ur en annars staðar. 12 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.