Víðförli - 15.05.1988, Side 14
Kirkjan, Norðurlönd
og SADCC-löndin
„Það er ögrun öllum þeim sem vilja lífinu vel, hversu stjórnarfar í Suður-
Afríku hefur valdið stórauknu ofbeldi og eyðingu mannlegs lífs um alla suður-
hluta Afríku.
Kirkja Krists getur ekki skellt skollaeyrum við neyðarópum hinna kúguðu.
Þess vegna gengust Kirknasamband Norðurlanda (Nordiska Ekumeniska
Institutet) og Utanríkisdeild norsku kirkjunnar fyrir ráðstefnu um samstarf
milli kirknanna á Norðurlöndum og í svonefndum SADCC löndum (Southern
African Development Coordination Conference), en það eru nágrannalönd
Suður-Afríku.“
Svo segir í greinargerð frá ráð-
stefnunni sem þeir sóttu fyrir íslands
hönd, dr. Björn Björnsson, sr. Bern-
harður Guðmundsson og Jónas
Þórisson kristniboði.
Þessi ráðstefna var haldin á
Granavolden í Noregi dagana 4.-7.
febrúar 1988 og sóttu hann 80 manns
frá Angólu, Botswana, Mosam-
bique, Namibiu, Swasilandi, Tanz-
aniu, Zambíu, Zimbabwe, Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi, Noregi
og Svíþjóð. Makhullu erkibiskup frá
Botswana stýrði ráðstefnunni.
Ráðstefnan fór fram að loknum
fundi utanríkisráðherra beggja hóp-
anna í Arusha í Tansaniu í janúar
1988, og byggði á sameiginlegri yfir-
lýsingu þeirra um aukna fjárhags-
Iega og menningarlega samvinnu
milli Norðurlandanna og SADCC
ríkjanna.
Meginþættir
Síðan segir m.a. í greinargerð ráð-
stefnunnar: „Helgihald og umræður
ráðstefnunnar vörpuðu skýru ljósi á
þá trú okkar að Guð er Guð lífsins.
Hlutverk kirkjunnar er að bera vitni
um líf sem byggist á trú, von og kær-
Ieika.
Umræður ráðstefnunnar mótuð-
ust af anda kærleika og samstöðu
um eftirfarandi málefni:
1. Útrýming aðskilnaðarstefnu
hvítra í S. Afríku (Apartheid).
2. Aukin þróunaraðstoð til
SADCC-landa.
3. Að við gefum af okkur sjálfum
sem kristið fólk.
1. Útrýming
aðskilnaðarstefnu
Ráðstefnan var einhuga um að að-
skilnaðarstefnu hvítra verði að út-
rýma og stríðsátökum í sunnan-
verðri Afríku verði að linna. Afneit-
un kirkjunnar á aðskilnaðarstefnu
krefst þess að menn vinni að því
heilshugar að:
* frelsi ríki í Suður-Afríku.
* Namibía fái sjálfstæði.
* stríðsátökin hætti í Angóla og
Mosambique en þau eiga sér rætur
og stuðning í aðskilnaðarstefn-
unni.
* árásum á grannríki SrAfríku
(Front line states) linni.
Þessi sameiginlegi skilningur er
undirstaða samstarfs okkar.
Fulltrúar kirknanna í SADCC
löndunum hvetja norrænar kirkjur
eindregið til þess að leggja að ríkis-
stjórnum sínum að veita stjórn
Mosambique aðstoð til sjálfsvarnar.
Fulltrúar frá norrænum kirkjum
gera sér grein fyrir því hversu brýnt
þetta ákall er frá fulltrúum kirkn-
anna í SADCC löndunum. Norrænu
kirkjufulltrúarnir samþykktu að
flytja þetta bænarákall til kirknanna
heima, svo að þær geti rætt það og
tekið málið upp við almenning og
stjórnvöld á Norðurlöndum.
Efnahagsþvinganir
Á ráðstefnunni var áréttuð sú þörf
sem er fyrir stuðning kirkju og ríkis-
stjórna við viðtækar afdráttar-
lausar efnahagsþvinganir gegn að-
skilnaðarstefnu.
Ráðstefnan lét í ljós ánægju yfir
hinni norrænu stefnumörkun varð-
andi efnahagstengsl við S.-Afríku og
hvatti kirkjurnar til þess að vinna að
því að þessari stefnu verði dyggilega
fylgt.
Ennfremur ættu kirkjurnar að
æskja þess af rikisstjórnum sínum
að þær beiti áhrifum sínum á önnur
vestræn stjórnvöld og stofnanir til
þess að binda endi á fjárhagslegt
samstarf við stjórnvöld S.-Afríku,
meðan aðskilnaðarstefnan rikir þar.
Þeirri ákvörðun SAS flugfélagsins
að hætta flugi til S.-Afríku ætti að
fylgja eftir með auknum þrýstingi á
önnur vestræn flugfélög að gera hið
sama.
Norrænar kirkjur ættu jafnframt
að leggja áherslu á það við kirkjur í
löndum sem eru mjög tengd S.-
Afríku efnahagslega, hversu nauð-
synlegt er að rjúfa öll þessi tengsl.
Norrænar kirkjur skulu einnig
leita eftir því við ríkisstjórnir sínar
að þær fylgist með þegar vopnasölu-
bann Sameinuðu þjóðanna er brotið
og gera jafnframt allt sem í þeirra
valdi stendur til þess að bannið verði
virt.
Kirkjurnar ættu einnig að leggja
að norrænum ríkisstjórnum að und-
irrita úrskurð Sameinuðu þjóðanna
nr. 1 um Namibíu, sem er áhrifamik-
ið skref til þess að koma í veg fyrir
það arðrán sem í því felst að aðrar
þjóðir hagnýti sér jarðmálma og
aðrar auðlindir Namibíu.
Norrænar kirkjur eru hvattar til
að efla upplýsingastarf sitt til mót-
vægis við árásir formælenda að-
skilnaðarstefnunnar. Um þessar
mundir skyldi sérstaklega bent á af-
leiðingar aðskilnaðarstefnu og stríð-
ið gegn Angóla og Mosambique.
2. Aukin þróunaraðstoð til
SADCC landa
Ráðstefnan metur mjög mikils
það örlæti norrænna stjórnvalda
14 — YÍÐFÖRLI