Víðförli - 15.05.1988, Page 15

Víðförli - 15.05.1988, Page 15
sem hafa lofað að veita um miljarð bandaríkjadala til SADCC landa ár hvert næstu fjögur árin. Engu að síður er þetta framlag aðeins lítið prósentubrot af því tjóni sem stríðið veldur auk hinna gífur- legu manntjóna. Það bendir á hina bráðu þörf fyrir skipulegar neyðar- ráðstafanir á átakasvæðum sérstak- lega varðandi samgöngu- og upplýs- ingarkerfið. Við hvetjum kirkjur Norðurlanda til þess að stuðla að þeirri þjálfun, menntun og miðlun tækni, sem styð- ur sjálfshjálp og sjálfstraust þjóða á SADCC svæðinu. Ennfremur skyldi þess vera strengilega gætt að slík miðlun tækni og efling verslunar verði ekki verkfæri til arðráns úr norðri. Við hvetjum ennfremur ríkis- stjórnirnar til þess að grípa til beinna aðgerða á grundvelli samkomulags Norðurlanda og SADCC þjóða til þess að létta skuldabagga hinna síð- arnefndu. Slíkt myndi styðja að því að koma á fót varanlegri, heilþrigðri efnahagsskipan i þeim heimshluta. Kirkjulegar stofnanir á Norður- löndum verða að styðja samverka- menn sína á SADCC svæðinu til þess að atgervi fólksins þar andlegt og líkamlegt megi þroskast og nýtast sem þest. Ennfremur lagði ráðstefnan áherslu á að kirkjulegar stofnanir í SADCC löndum yrðu styrktar og studdi jafnframt þá beiðni kirkn- anna í suðri að þær ættu aðild að því þegar starfslið er valið og þjálfað til starfa í löndum þeirra, sérilagi erlent starfslið sem á að vinna bæði að þró- unarmálum og í kirkjustarfi. 3. Að gefa af okkur sjálfum sem kristið fólk Auðlindir þessara svæða, Norður- landa og Suðurhluta Afríku eru gíf- urlegar. Þar eru ekki aðeins miklar auðlindir náttúrunnar heldur hinar mannlegu auðlindir og þær eru verð- mætastar. Samstarf kirknanna og kirkju- legra stofnana á þessum svæðum verður að byggjast á jafnstöðu, en ekki á hinu gamla kerfi þar sem ann- ar gefur en hinn þiggur. Það er mikilvægt að finna leiðir til þess að miðla auðlindum með gagn- kvæmri ábyrgð. Við viljum deila kjörum sem jafningar, sem bræður og systur í Kristi. Við viljum deila hvort með öðru helgisiðum og tilbeiðsluformum. Við viljum læra sálma hvers annars og taka saman sálmabók til sameig- inlegra nota. Norrænar kirkjur munu kynna sér Kairos skýrsluna, Lusakaályktunina og „The Evangelical Witness in South Africa“ til þess að skilja þetur aðstæður þar syðra og komast að niðurstöðum sem gætu orðið grund- völlur fyrir skuldbindingar kirkn- anna i þessum efnum. Styrkja skal guðfræðinám og guð- fræðiiðkan með því að taka það besta úr guðfræðiarfi kirknanna í suðurhluta Afriku inn í þjálfun og menntun starfsmanna kirkjunnar. Norrænu kirkjurnar og stofnanir þéirra munu ganga til samstarfs við EDICESA (Ecumenical Docu- mentation and Information Centre for Eastern and Southern Africa) og nota gagnabanka þeirra. Flóttamenn miðla ýmsu í Afríku er helmingur af flótta- mönnum heimsins. Mjög fáir þeirra eru hinsvegar á Norðurlöndum. Sögulega séð, hafa flóttamenn ævin- lega verið mikilvæg uppspretta upp- lýsinga sem hafa leitt til félagslegra breytinga og hleypt nýju lífi í menn- ingu viðkomandi lands. Við metum þann stuðning sem norræn stjórnvöld veita flóttamönn- um i suðurhluta Afríku. Við biðjum norrænu kirkjurnar að leggja fastar að stjórnvöldum að þau opni löndin fyrir flóttamönnum og öðrum sem leita hælis frá Suður-Afríku og Namibiu. Við hvetjum líka kirkjurn- ar til þess að taka vel á móti flótta- mönnum á heimaslóðum og aðstoða þá til að fá atvinnu og afla sér starfs- menntunar. Við teljum jafnframt að öllum væri það til ávinnings að nýtt væri stórum betur hæfni þess fólks að sunnan sem býr í norðri. Andleg kreppa í norðri Kirkjur norðursins telja að þær búi við andlega kreppu. Vandamál einsemdar, tilgangsleysis, sjálfsvíga og glæpa eru allt um kring, þótt frið- ur ríki i löndunum, vaxandi velmeg- un og lýðræði. Fólk snýr í vaxandi mæli baki við kirkjunni. Norðurkirkjur sjá líka glögglega lífskraft og hið ríka helgihald, vitnis- burð og andann að starfi í hinum ört vaxandi Suðurkirkjum. Norður- kirkjurnar vilja njóta þess sama og vilja læra af bræðrum og systrum í suðri. Gagnkvæm skipti og kynning Við viljum miðla af menningu okkar. Við þurfum að koma á skipu- legum skiptum og kynningu milli norðurs og suðurs á tónlist, kvik- myndum, kórum, bókmenntum og sögu. Til slíks þarf sérstaka fjár- hagsaðstoð. Þess háttar menningar- tengsl ætti einnig að efla milli þjóða suðursins innbyrðis. VÍÐFÖRLI — 15

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.