Víðförli - 15.05.1988, Blaðsíða 16

Víðförli - 15.05.1988, Blaðsíða 16
„Fyrst verður að stöðva stríðið, “ sagði E. Kuchera frá Mosambik um væntanlegt þróunarsamstarf Norðurlandanna og landanna í sunnan- verðri Afriku. „Nú er engin víglina í átökunum, heldur er ráðist í skjóli myrkurs á þorpin og þau sprengd upp. Þessvegna þora margir ekki að sofa heima heldur leita skjóls annarsstaðar. En öll lifum við í skelfilegum ótta. Það deyja um 400 börn á dag af völdum stríðsins og heimsbyggðin virð- ist ekki kippa sér upp við það. Ef þau væru um borð í Júmbóþotu sem færist, stæðu fjölmiðlar á öndinni. En þessi harmleikur gerist daglega í Mosambik. Verst er hversu lif í langvarandi ótta, eyðir mennsku manns- ins. Börnin mín hata ekki lengur árásarmennina frá S-Afriku. Þeim virð- ist vera sama hvort þau lifa eða deyja. Við erum komin á ystu nöf, það er tímaspursmál hvenær við förumst. Það er lítið gagn fyrir hermennina okkar að vera í nýjum skóm þegar þeir eru skotnir til bana varnarlausir. Fyrst verður að stöðva striðið áður en farið er að reyna að byggja upp landið að nýju.“ Aðfá mat til viðhalds lífisínu er hin frumlcegustu mannréttindi. Hjálparstofnun kirkj- unnar starfar með kirkjunum í Mósambik að öflun matvœla og flutningi þeirra til þeirra héraða sem hafa orðið verst úti í stríðinu. Að sögn Sigríðar Guðmundsdóttir framkvœmdastjóra H.K. sem var í Mósambik fyrir skemmstu, eru engin héruð óhult fyrir árásum skæruliða og ástandið í landinu einfaldlega skelfilegt. — Við væntum þess að sjá vaxandi samstöðu kvenna á okkar landssvæðum. Við viljum koma á sérstöku stuðningskerfi kvenna. Þar er margt að læra af konum í frelsis-baráttunni syðra. — Við viljum halda áfram og þróa æskulýðsstarf milli landsvæða okkar sem og innbyrðis. — Við eigum draumsýn um vina- söfnuði, að komið verði upp slíku kerfi milli landssvæðanna sem nái að vaxa hratt. Þessi söfnuðir munu heimsækja hver annan, biðja hver fyrir öðrum, deila reynslu sinni í helgihaldi og miðla upplýsingum. Kerfið ætti ekki að einskorðast við Norður-Suður, heldur einnig innbyrðis í suðri. — Við brýnum fyrir kirkjunum í norðri og suðri að huga að nei- kvæðum áhrifum ferðaútvegs og þvi óréttlæti sem hann getur falið í sér. Við viljum að kirkj- urnar skipuleggi skiptiheim- sóknir, sem séu lausar við lesti ferðaútvegsins. Það mun leysa úr læðingi nýjan og ófyrirsjá- anlegan sköpunarkraft, þegar kirkjufólk af ólíkum bakgrunni hittist á heimavelli og miðlar hvort öðru af reynslu sinni og þekkingu. Við þetta skapast mikið afl í bar- áttunni fyrir friði og réttlæti og til boðunar fagnaðarerindisins. Við teljum að þetta samfélag verði enn sterkara, þegar aðskilnaðarstefnu hefur verið útrýmt. Eftirfylgd Kirkjurnar hafa sérstöku hlut- verki að gegna innan þess samstarfs sem Norðurlönd/SADCC sáttmál- inn skapar. Meirihluti íbúanna á þessum landssvæðum eru skirðir og tilheyra kirkju. Kirkjunum hefur verið falinn fjársjóður, boðskapur- inn um Jesú Krist, sem ber að miðla öðrum. Þær búa einnig yfir mann- legum auðlindum. Það felur í sér umtalsverða möguleika til tækni- legrar og fjárhagslegrar framþróun- ar. Ráðstefnan mælir með eftirfar- andi aðgerðum sem eftirfylgd við störf hennar. * Ráðstefnufulltrúar skuli gefa yfir- stjórn kirkna sinna skýrslu um niðurstöður ráðstefnunnar. * Við hvetjum kirkjurnar til þess að taka þessi mál til umræðu og gera áætlun um framkvæmdir. * Efna skal til framhaldsráðstefnu á SADCC landsvæðinu innan 18 mánaða. * Starfsnefnd, ekki fleiri en 6 manns, verði skipuð sem fyrst til að vinna að áframhaldandi sam- starfi. Hún komi saman árlega. Kirkjurnar eru beðnar að kynna áform sín um aðgerðir í eigin landi, uppástungur um nefndar- menn og skipulag næsta fundar fyrir 1. sept. 1988. (Norðurlanda kirkjur til NEI en SADCC kirkjur til utanríkisritara sinna). * Við væntum þess að þessi skýrsla fái sem mesta útbreiðslu. Við hvetjum kirkjur og söfnuði til að ■hefjast handa þegar í stað við að skipuleggja samstarfið innan og milli landsvæða okkar.“ 16 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.