Víðförli - 15.05.1988, Side 24
Söfnunartekjur Hjálparstofnunar
26 milljónir á síðasta starfsári
Nýjar aðstæður á finnska
kirkjuþinginu.
Finnar kusu nýtt kirkjuþing 7.
mars. Þar sitja um 64 leikmenn og
eru konur í meirihluta. Prestar hafa
32 fulltrúa. Fyrstu konurnar voru
vígðar til prests í Finnlandi deginum
áður, 94 talsins, og tvær þeirra voru
þegar kjörnar á kirkjuþing.
Finnar hafa kannað hverjir leik-
manna veljast á kirkjuþing. Þriðj-
ungur þeirra eru kennarar af öllum
skólastigum. Læknar, lögfræðingar
og bændur næstir að fjölda, en eng-
inn leikmanna á kirkjuþingi tilheyrir
verkalýðssamtökunum.
Trúarhugmyridir Finna.
Finnar hafa ekki hætt að trúa á
Guð, en margir telja sig trúa með
öðrum hætti en kirkjan kennir.
Reyndar eru þeir margir sem þekkja
ekki kenningu kirkjunnar, né heldur
hvað kristin trú er í rauninni segir
dómprófasturinn í Helsinki um ný-
útkomna könnun á trúarviðhorfum
Finna.. Athyglisverðustu atriði
könnunarinnar að hans mati eru:
* Trúarlífið verður æ meira einka-
mál.
* Óskað er eftir tilfinningalegri
upplifun og mystik í helgihaldinu.
* Fólk snýr sér æ meir til kirkjunn-
ar með spurningar um lífsstíl og sið-
ferðileg efni.
í könnuninni kom fram að sjö af
tíu finnum trúa á Guð, þrír af hverj-
um fjórum hafa jákvæða afstöðu til
Lúthersku kirkjunnar. Nær tíundi
hver Finni lítur á sig sem guðleys-
ingja. 77°/o trúa að Jesús sé sonur
Guðs, en þriðjungur töldu sig trúa
með öðrum hætti en kirkjan kennir.
Ritun Kirkjusögu íslands
undirbúin.
Kristnitökunefnd þjóðkirkjunnar
sem undirbýr hátíðahöldin árið 2000
hefur kallað saman starfsnefnd til
að undirbúa ritun Kirkjusögu ís-
lands. í nefndinni eiga sæti: sr.
Jónas Gíslason, sr. Heimir Steins-
son, dr. Pétur Pétursson og sr. Sigur-
jón Einarsson.
Fyrsti aðalfundur Hjálparstofn-
unar kirkjunnar að lokinni endur-
skipulagningu var haldinn í apríllok
í Langholtskirkju í Reykjavík.
í skýrslu stjórnar kom fram að alls
söfnuðust 26 milljónir króna á
starfsárinu, auk mikilla fatabirgða
sem erfitt er að meta til fjár en
tryggðar eru fyrir 7 milljónir. Tekjur
stofnunarinnar fara nær allar til
hjálpar og þróunarstarfs, þannig að
afla verður nauðsynlegs rekstrarfjár
m.a. með öðrum tekjustofnum. Á
hinum Norðurlöndunum fá hjálpar-
stofnanir kirkjunnar mikinn hluta
starfsfjár síns frá hinu opinbera
framlagi til þróunarmála, sem á öll-
um Norðurlöndunum er í kringum
1% af þjóðartekjum. íslendingar
greiðar 0.06% og er þá auk talið
bæði opinbert framlag sem söfnun-
arfé t.d. H.K. og Rauða krossins.
Miklar umræður voru á aðalfund-
inum um framtiðarstarf Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Var samþykkt
að koma á fót tveimur starfshópum
sem væru ráðgefandi við stjórnun í
fjáröflunarmálum og fræðslumál-
um. Kom fram að brýnt væri að
halda áfram því fræðslustarfi sem
stofnunin hefur annast og samþykkt
að veita 3% af söfnunarfé til fræðslu
um þróunarmál og neyðaraðstoð.
Það verður skipuð nefnd til að
endurskoða skipulagsskrá Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar en minni hátt-
ar ágallar hafa komið þar í ljós.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur
ekki komið á fót varasjóði sem er þó
mjög aðkallandi fyrir slíka stofnun.
Var samþykkt á fundinum að verja
framlagi úr Jöfnunarsjóði sókna til
Hjálparstofnunarinnar til stofn-
framlags varasjóðs hennar.
Aðalstjórn var endurkjörin:
Árni Gunnarsson formaður,
Haraldur Ólafsson varaformaður og
sr. Þorbjörn Hlynur Árnason.
í varastjórn voru kosin:
Hanna Pálsdóttir og sr. Úlfar
Guðmundsson.
Kirkjugarður í Reykholti nýtur góðrar umönnunar sóknarnefndar og sóknarprestsins
sr. Geirs Waage. Garðurinn hefur verið stœkkaður og sléttaður, minnismerki reist við
ogsnyrt ogallargamlar menjar notið virðingar. Kirkjan ogreyndarstaðurinn allurhef-
ur fengið nýjan svip við svo prýðilega ásýnd kirkjugarðsins. Þarna er dæmi um hversu
velgetur tekist um skipulag og viðhald kirkjugarða og eru reyndar mörg slík dœmiþótt
hin séu ekki fœrri sem vitna um hið gagnstœða. Mynd: Aðalsteinn Steindórsson.
24 — VÍÐFÖRLI