Víðförli - 15.12.1995, Page 10
Gerðuberg í samstarfi við
kirkjuna
Þróttmikið og fjölbreytt starf er á vegum Öldrunardeldar Reykjavíkur-
borgar fyrir aldraða í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þangað kemur
virka daga hópur ellilífeyrisþega, þiggur þar ýmisa þjónustu og unir við
margs konar störf. Frá 1986 hefur verið starfræktur kór eldri borgara sem
í er 31 félagi. Stjórnandi er Kári Friðriksson. Kórinn hefur undirbúið mikla
aðventudagskrá og syngur í kirkjum og á aðventusamveru í Gerðubergi.
Gubrún jónsdótir forstöbumabur
afhendir jólaglabning eftir ab
lögreglan
hafbi bobib fólkinu í
Gerbubergi í sína árlegu ferb og
kaffisamsæti á lögreglustöb.
Þá voru komin jól ...
I Gerðubergi hittum við að máli
tvær konur, sem um árabil hafa tek-
ið virkan þátt í starfinu þar, þær
Ingibjörgu Jónsdóttur, sem fædd er
1906 að Bjóluhjáleigu í Rangár-
vallasýslu, og Sigurborgu Skúla-
dóttur fædda 1919, en hún bjó lengst
af í Stykkishólmi.
Hvernig tengist þið starfinu hér í
Gerðubergi?
Ingibjörg: „Ég hef verið með frá
byrjun, frá því að starf fyrir aldraða
hófst hér 1983. í byrjun kom ég
mest til að sauma. Núna er ég að
mestu hætt því, kem og spila, ræði
við fólkið og kem alltaf í helgi-
stundirnar.“
Sigurborg: „Ég hef ekki verið
jafn lengi. En ég kem í helgistund-
irnar. Það er yndislegt að koma
hingað og hitta fólkið. Hér eru allir
svo góðir við okkur.“
Nú er aðventan komin. Hvernig minn-
ingar eigið þið frá ykkar bernskujól-
um?
Ingibjörg: „Jólin hafa alltaf verið
yndisleg. Það varð svo heilagt í hús-
inu öllu á aðfangadagskvöld þó allt
væri einfalt og efnin væru ekki mik-
Eftir helgistund, fyrir mibju Gublaug Ragnarsdóttir og Gubrún jónsdóttir.
Guðrún Jónsdóttir er forstöðu-
maður öldrunarstarfsins í Gerðu-
bergi.
T félagsstarfinu er nokkrir hópar
sjálfboðaliða sem eru með heimilis-
mönnum, njóta samvistanna,
rifja upp gamlar minn-
ingar og syngja og
spjalla. Tengsl
eru við
Blindrafé-
lagið, stoð-
b ý I i ð
Foldabæ
og sam-
s t a r f s -
verkefni
hefur ver-
ið á milli
tréskurðar-
hópsins undir
stjórn Hjálmars
Ingimundarsonar
og heilsdagsskóla
Rimaskóla. Einnig er sam-
starf við Árbæjarsafn og Leikskól-
ann Hólaborg.
Það eru ekki nema nokkrir metrar
á milli Gerðubergs og Fella- og
Hólakirkju. Það er táknrænt fyrir
það mikla og góða samstarf sem
tekist hefur þar á milli.
Vikulega eru helgistundir í
Gerðubergi á vegum kirkjunnar. Þar
kemur hópur saman til helgihalds,
ritningarlesturs og fyrirbæna
undir stjórn starfsmanns
kirkjunnar.
Þá hafa verið
samverur í
samstarfi við
Ellimálaráð
Reykjavík-
urprófasts-
dæmanna,
„Við sam-
an í kirkj-
unni“. Þá
hafa gestir
og forstöðu-
kona í Gerðu-
bergi verið virkir
þátttakendur í sum-
arsögum kirkjunnar.
Það var einróma ánægja og
þakklæti sem lýsti sér hjá öllum
þeim sem við hittum með hið blóm-
lega og mikla starf í Gerðubergi og
þykir samstarfið við kirkjuna hafa
verið til mikillar blessunar.
1 0 VÍÐFÖRLI