Víðförli - 15.12.1995, Síða 27

Víðförli - 15.12.1995, Síða 27
Framhaldsskólanemar á öllum Norbur- löndum hafa stutt viö œskufólk í Brasil- íu með söfnunarherferðunum Norrænt dagsverk og tóku íslenskir framhalds- skólanemar þátt íþví árið 1991. Á næsta ári er slík söfnun ráðgerð á ný hérlendis. Söfnunarféð verður áfram notað til að styðja við menntun götu- barna og unglinga sem þurfa stuðning við að Ijúka grunnskólanámi. stríði í landinu lauk fyrir þremur árum var landið eitt flakandi sár. Atvinnu- vegir, samgöngukerfi og allt venjulegt starf þjóðfélagsins var í molum og íbúarnir höfðu flúið heimili sín, voru flóttamenn í eigin landi eða nágranna- löndum. Lútherska heimssambandið hefur stjórnað uppbyggingunni þar í samvinnu við heimamenn. Hjálpar- stofnun tók að sér að fjármagna lag- færingar vatnsbóla og gerð nýrra brunna. Á síðasta ári fékkst 5 milljóna króna framlag frá ríkinu til þessa verkefnis, á yfirstandandi ári fór um ein milljón í verkefnið og álíka upp- hæð á næsta ári. í Eþíópíu er nýlega lokið byggingu lítils skóla í Voitó-dal í suðurhluta landsins. Skólinn var byggður fyrir framlag starfsmannafélags íslenska útvarpsfélagsins og fyrirtækisins sjálfs en Hjálparstofnun lagði einnig fram nokkra upphæð til verksins. Samfélag Tsemai-manna er einangrað og þeir eru aðeins um 12 þúsund. Engu að síður hafa þeir óskað eftir læknishjálp og vilja aðstoð við mennt- un barna sinna og því var ráðist í skólabygginguna. Ekki er þar með sagt að öll böm á grunnskólaaldri flykkist í skólann, það getur tekið nokkurn tíma að ná til allra en smám saman mun nemendum fjölga. Síaukin a&stoö vib einstaklinga Innanlandsaðstoðin hefur vaxið mjög síðustu ár eins og þegar hefur komið fram í Víðförla. Að þessu sinni ráðgerir Hjálparstofnun að verja allt að þremur milljónum króna til þessarar aðstoðar og Reykjavíkur- deild Rauða kross íslands mun einnig leggja fé til hennar. Eingöngu verður um að ræða matarpakka, þ.e. þeir sem leita til stofnunarinnar í fjárhagsvandræðum fá matvæli í samræmi við fjölskyldustærð og að- stæður. Allmörg fyrirtæki hafa jafn- an gefið matvöru til þessa verkefnis og er heildarverðmæti þessarar að- stoðar vart undir 7 til 8 milljónum króna ef umfangið verður svipað og fyrir síðustu jól. Þá var fjöldi um- sókna um eitt þúsund og má gera ráð fyrir að ekki undir 1.500 manns hafi notið aðstoðar. Að lokum skal endurtekið að brýnt er að allir sem vettlingi geta valdið muni eftir jólasöfnuninni í ár. Mun- um að margt smátt gerir eitt stórt og að öll framlög skipta máli. Hægt er að nota heimsenda gíróseðla eða baukinn og skila honum í kirkjur, fara með hann í banka eða koma honum á skrifstofu Hjálparstofnunar. Hafi einhver ekki fengið sendan gíróseðil eða bauk má hringja á skrifstofuna og við sendum það um hæl en gíróseðlar liggja líka frammi í bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. A veggspjaldinu fyrir jólasöfnunina er minnt á neyðina og nauðsyn þess að við tök- um höndum saman um að rétta hjátparhönd til stuðnings bágstöddum. VÍÐFÖRLI 27

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.