Víðförli - 15.12.1995, Síða 31
Lærdómsför til Noregs
I ágústmánuði 1994 var haldið endurmenntunarnámskeið í Danmörku.
Þar áttum við undirritaðir samtöl við Sigurd Osberg, biskup í Tönsberg í
Noregi, og David Gjerp, stiftkapellán, um vinnu kirkjunnar í tengslum við
hópslys. Greindu þeir okkur frá því að ráðstefna væri fyrirhuguð að ári
liðnu fyrir norska presta og lögreglumenn. Eftir að hafa verið í sambandi
við þá í allan sl. vetur varð niðurstaðan sú að okkur var boðið að sitja ráð-
stefnuna sem fulltrúar íslensku þjóðkirkjunnar.
Fyrstu næturnar dvöldum við í
Kirkens FIus í íbúð prestafélagsins,
sem við nefndum Egilsborg, eftir Agli
Morland, formanni prestafélagsins.
Við fengum afnot af bíl Bergers Jo-
hans Flareide, vinar Ingólfs, sonar
Bjarne Hareide, sem margir þekkja
hér á landi.
Sunnudaginn 24. september ákváð-
um við að fara til messu í flotastöðinni
í Horten, en þar vissum við að bisk-
upinn, Sigurd Osberg, átti að prédika
á 140 ára afmæli kirkjunnar. Haldið
var frá Osló snemma um morguninn
og mættum við tímanlega. Enginn var
á ferli við kirkjuna og þótti okkur það
undarlegt og ákváðum að litast um í
flotastöðinni. Við sáum fólk álengdar
við hús í grennd við kirkjuna og
Ingólfur ákvað að ávarpa þau á
norsku. Þau skildu ekki orð. í ljós
kom, að þetta voru litháensk hjón í op-
inberum erindagjörðum. Þau létu hús-
ráðanda vita af okkur og hann reynd-
ist þá vera aðmíráll flotastöðvarinnar,
Gunnar (Olafsson) Rio, sem átti að
lesa ritningarlestur í messunni á eftir.
Hann bauð okkur til morgunverðar.
Kom þá í ljós að klukkunni hafði ver-
ið seinkað um eina klukkustund svo
við vorum heldur betur mættir tíman-
lega! Dvöldum við þarna í besta yfir-
læti frarn að messunni. Þetta var
Bragi Skúlason og Bergen
johan Hareide.
hermessa sem endaði með því að að-
mírállinn hrópaði: „Guð blessi kóng-
inn og föðurlandið!“ Biskupinn lagði í
prédikun sinni út frá því að við ættum
ekki að hafa áhyggjur af morgundeg-
inum, treysta á umhyggju Drottins.
Eftir messu var söfnuðinum boðið í
kirkjukaffi í virki hersins í nágrenninu
og við fylgdum biskupnum.
Bragi Skúlason, Trond Hareng og
Arne H. Cravdal.
Daginn eftir héldum við til Modum
Bad (Modum mun vera dregið af orð-
inu móða). Ingólfur var undir svo
miklum áhrifum af ræðu biskupsins,
algerlega áhyggjulaus, að hann
gleymdi bæði farmiða og vegabréfi í
Egilsborg (hvoru tveggja skilaði sér
síðar). I Modum Bad er starfrækt sál-
gæslustofnun og ræddum við þar við
Leif Gunnar Engedal, Paul Erik Wir-
genes og Arne Börresen sem allir hafa
reynslu af störfum í tengslum við
hópslys og sálgæslu og handleiðslu
presta. Auk þess áttum við samtal við
Flosa Karlsson lækni sem er í fram-
haldsnámi í geðlækningum þarna.
Hann er bróðir sr. Bjarna Karlssonar í
Vestmannaeyjum.
Þann 26. september héldurn við til
Sundvolden hótelsins þar sem ráð-
stefnan fór fram. Yfirskrift ráðstefn-
unnar var: „Kirkens plass í LRS-
funksjonen" (LRS stendur fyrir Lokal
Rednings Sentral). Ráðstefnuna sóttu
norskir prestar og lögreglumenn,
nokkrir læknar, hópur sænskra presta
og við, fulltrúar íslensku þjóðkirkj-
unnar. Á ráðstefnunni kom í ljós að
skipulag Norðmanna í tengslum við
hópslys er mjög ólíkt því sem er hjá
okkur. Dómsmálaráðuneytið felur
lögreglunni að sjá um heildarskipulag
og lögreglan kallar til sín samstarfsað-
ila. Yfir öllu landi og landhelgi eru
tvær HRS (Hoved Rednings Sentral)
stöðvar, önnur yfir Norður-Noregi,
hin yfir Suður-Noregi (í Stavanger).
Undir þeim eru síðan LRS stöðvar. I
Ijós kom að kirkjan hefur víðtækt
hlutverk, bæði þegar eftir hópslys og
eins sér hún um fylgd við syrgjendur í
langan tíma, m.a. í samstarfi við
heilsugæslu og skóla.
Eftir ráðstefnuna ræddum við eins-
lega við þrjá prófasta, sem hafa verið
mjög virkir í mótun þessarar þjónustu
kirkjunnar, þá Thorgeir Horn, Per A.
Nordbö og Olav Tysnes. Auk þess var
viðstaddur Terje Bjerkholt sem var
Norðursjávarprestur og sinnti m.a.
starfsfólki olíuborpalla.
Að kvöldi 27. september var haldið
til Stavanger þar sem við skoðuðum
HRS stöðina fyrir Suður-Noreg í
fylgd Trond Hardeng, dómprófasts í
Stavanger, en hann starfar í beinum
tengslum við HRS stöðina. Við hittum
m.a. Arne H. Gravdal, yfirmann
stöðvarinnar, og hann tjáði okkur að
hann þekkti til Islands og hefði átt
samstarf við björgunar- og hjálparað-
ila hér á landi. HRS stöðin í Stavanger
fylgist með neyðarsendingum um
gervihnetti og getur tekið við boðum
nánast hvaðan sem er af hnettinum.
Ingólfur Cuömundsson, David jerp og
Bragi Skúlason.
Þá var haldið til Kristniboðsskólans
í Stavanger þar sem sr. Jóhann Hann-
esson lærði á sínum tíma. Þar áttum
við langt samtal við Öyvind Eide sem
er forstöðumaður kennimannlega
námsins í skólanum og hefur sinnt
hópslysavinnu, handleiðslu við presta,
sérstaklega þá sem unnið hafa með
syrgjendur vegna hópslysa.
Ferðin var í alla staði gagnleg. Nán-
ari efnisleg greining mun berast
Kirkjuþingi. Auk þess sem áður er
nefnt heimsóttum við ýmsa aðila, þar
á meðal sr. Sigrúnu Óskarsdóttur og
fjölskyldu, en sr. Sigrún er nú í sér-
námi í sálgæslu í Ósló.
Við komum aftur til Islands síðdeg-
is þann 29. september. Þeir sem við
töluðum við báðu fyrir kveðju til
þeirra sem þeir þekkja á íslandi.
Bragi Skúlason,
Ingólfur Guðmundsson.
VÍÐFÖRU 31