Bæjarins besta - 21.12.2000, Síða 4
Senn líður að jólum. Þegar ég hugsa til
þess kemur upp í hugann erindi úr kvæð-
inu „Jólakveðja“ eftir skáldkonuna
Huldu:
Inni hjartans heill og blíða,
helgiblœr og söngvaómar.
Úti himinhöllin víða
hnattaskrauti björtu Ijómar.
Blessuð jólinfinn ég fcera
fögnuð Guðs í mannlegt hjarta,
meðan hlátra himinskæra
hefja börn og Ijósin skarta.
Bráðum koma blessuð jólin. Ég tel
fullvíst að við öll höfum orðið vör við
það í einni eða annarri mynd. Þó ekki
nema af því að þessi hátíð ljóssins lýsir
upp hugi okkar og hjörtu í svartasta
skammdeginu.
I Jólaguðspjallinu segir m.a.: „Yður er
í dag frelsari fæddur.“
Hvaðaerindi átti Kristuríþennan heim?
Hvað átti sá frelsari að afreka, sem
boðaður var á Jesú fæðingarnóttu?
Getum við ekki svarað þessu með því
að búa til dæmi af jarðneskum hlutum?
Foreldri gerir tvær tilraunir til að upp-
fræða barn sitt, þá fyrri meðan barnið er
ungt að aldri. Hann sýnir því dýrð himins
og jarðar og lætur það dást að stjörnum
himinsins, eða blómum jarðarinnar, og
því almætti sem öllu heldur við, og bendir
barninu á um leið, hve grandvarlega
maðurinn eigi að breyta við þann gjafara
sem allt þetta lætur okkur í té.
Þessi fræðsla hlýtur að vera einföld og
sniðin eftir þroska barnsins og þar af
leiðandi ekki fullkomin.
Seinna, þegar barnið nálgast fullorðins-
árin, kemur síðari leiðbeiningin og nú
getur tilsögnin orðið miklu fullkomnari,
fjölbreyttari og áhrifameiri. Nú er skiln-
ingur unglingsins orðinn þroskaður. Því
er hægt að útlista ítarlegar en áður hvers
lífið krefst af honum, hver sé ákvörðun
lífsins, von þess og huggun og hvað þurfi
að gera til þess að verða farsæll og hvað
eigi ógjört að láta.
Allt þetta miðar að því að við öðlumst
frið og frelsi í okkur sjálfum. Erum við þá
ekki búin á einfaldan hátt að svara því,
hvaða erindi Kristur átti í heiminn - að
boða okkur frelsi og frið?
Jólahátíðin rennur upp jafnt hjá háum
sem lágum. Hátíð verður ekkert hátíðlegri
eða ánægjulegri þó keppst sé við í undir-
búningi að kaupa sem mest eða gera
meira og meira. Því þá erum við að færa
fórnir á altari mammons.
Ég efa það ekki að flestir ef ekki allir
séu þeirrar skoðunar, að jólin beri með
sér frið og fögnuð inn á heimilið, móti
hugarfarið, veki upp sterkari tilfinningar,
meiri mildi og gleði og meiri kærleika en
við á öðrum tímum tinnum fyrir.
Það er með jólin eins og aðrar hátíðir
og fagnaði - undirbúningurinn mótar
endanlegan árangur.
Ef það er ætlunin að njóta jólanna í
faðmi fjölskyldunnar og í samvistum með
ættingjum, ef við ætlum að upplifa frið
og samstöðu með samferðamönnum, ef
það er ætlunin að eiga blessunarrík jól
með Guði - þá er rétt að undirbúa það í
tíma, ekki síður en veraldlegu gæðin.
svo sem bakstur, innkaup, málningu og
hreingerningar.
Undirbúningur þess hugarfars, þeirrar
sálarróar og samstöðu, sem flestir vænta
á jólunum, má ekki verða útundan.
En hvort sem undirbúningi er lokið í
tíma eða ekki, þá hringja klukkur inn
jólin á aðfangadagskvöld og boða okkur
að „heims um ból, helg eru jól“.
Verum ekki svo bundin veraldarhyggju,
að við gleymum því að jólin eru til að
fagna fæðingu Krists. Gleymum því ekki
að opna sálargluggann, þannig að Kristur
komi í jólahald okkar.
Ég vona að bæn sú er kemur fram í 3ja
erindi kvæðisins „Isafjörður“ eftir Jónas
Friðgeir geti verið okkar allra:
Drottinn láttu dýrðir allar
drjúpa yfir þessa jörð,
þegar konur jafnt og karlar
Kristi syngja þakkargjörð.
Já - láttu Drottinn dýrðir allar
drjúpa yfir Isafjörð,
ævi vor þá ætíð yrði
yndisleg á Isafirði.
Jens Kristmannsson, annar fulltrúi Vestfirðinga a Kirkjuþingi
Jólahugvekja
Gleðilega jólahátíð!
18% nafnávöxtun
9 HLUTABRÉFASJÓÐUR
-að medaltali síðustu 6 ár -og skattaafsláttur að aukil í S LAN DS
Leitaðu nánari upplýsinga hjá íslenskum verðbréfum hf. S: 45° 7íá7
Ferðaþjónustan Reykjanesi við Isafjarðardjúp
Nú þegar tími íjölstyldusameveru fer í hönd,
viljum við aðeins minna á að betra er að panta fyrr
en seinna ef halda á aettar- eða nemendamót
í íðeykjanesi <sumarið 2001.
Innilegar jóla- og nýárskveðjur. Dökk <sé öllum þeim
<sem komu í Deykjanes árið 2000.
Starfsfólk ferðaþjónustunnar Qeykjanesi.
Sími456< 222 1 - Fax 456 A - Opið allt áriðl
4
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000