Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.2000, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 21.12.2000, Blaðsíða 13
Wrnmmi Gömul og góð tengsl milli Ashkenazy-fjölskyldunnar og ísafjarðar Diimtri Þór Ashkenazy Áslaug Jóhanna Jensdóttir og Dimitri Þór Aslikenazy - og barnfóstrunni boðið í miðaldakastala í Frakklandi og siglingu á Miðjarðarhafi . ... » Fyrr í þessum mánuði var klarinettleikarinn Dimitri Þór Ashkenazy í heimsókn hjá vinafólki sínu og fjölskyldu sinnar á Isafirði. Hann dvald- ist hér vestra í rúma viku en var þrjár nætur að auki í Reykjavík í þessari Islands- heimsókn. Dimitri erbúsettur í Neuchátel í Sviss en ferðast jafnan víða um lönd til tón- leikahalds. Hann hefur leikið einleik með sinfóníuhljóm- sveitum bæði austan hafs og vestan og komið hefur út um tugur geisladiska með klari- nettleik hans. í kyrrð og friði á ísafirði f samtali við blaðið sagðist Dimitri Þór vera á Isafirði í þrennunt tilgangi: Til að njóta friðar og kyrrðar, langt í burtu frádaglegu amstri, til að heim- sækja vinafólk sitt hér - og til að æfa sig í íslensku. Svo not- aði hann að sjálfsögðu ein- hvern tíma á hverjum degi til að æfa sig á hljóðfærið. Hann sagðist alls ekki kominn til ísafjarðar til að stunda nætur- lífið - jafnvel þótt nóttin hér í desember stæði mestan hluta sólarhringsins! Dimitri sagð- ist ekki hafa komið til lands móður sinnar síðan 1997 en þá hafði hann ekki komið til landsins í nærri því áratug. Eitt enn gerði Dimitri reyndar meðan hann dvaldist á ísaftrði um daginn. Hann kom fram sem leynigestur á aðventukvöldi í ísafjarðar- kirkju og lék þar einleik á klarinettið við afar góðar und- irtektir. Svo var það sem var enn óvæntara: Hann söng líka nokkur lög með kórnum. Þó að hann sé klarinettleikari kveðst hann hafa byrjað að læra á píanó á ungum aldri en hafa síðan skipt um hljóðfæri vegna þess að svo margir í fjölskyldunni voru píanóleik- arar - foreldrar hans báðir og eldri bróðir. Oll með rússneskt og íslenskt nafn Dimitri Þór Ashkenazy er rúmlega þrítugur að aldri og minnir í útliti afar mikið á föður sinn, Vladimir Ashke- nazy, píanóleikarann heims- kunna. Móðir hans er hins vegar Þórunn Soffía Jóhanns- dóttir. Hún þótti undrabarn í píanóleik og lék opinberlega þegar sem lítil stúlka. Hún er fyrir löngu hætt að koma fram og spilar ekki lengur nema í Helga Sveinbjörnsdóttir, fyrrum barnfóstra hjá Ashkenazy-fjölskyldunni, ásamt Dimitrí Þór Aslikenazy. Þórunn og Vladimir íHolti í Önundarfirði sumarið 1999. Aðra mynd sem tekin var af þeim við sama tœkifceri notuðu þau á jólakort í fyrra. faðmi tjölskyldunnar. Börn þeirra Þórunnar og Vladimirs eru fimm og Dimitri Þór í miðjunni. Eldri eru Vladimir Stefán og Nadia Liza, sem reyndar var skírð á ísafirði, en yngri eru Sonia Edda og Alexandra Inga, fædd 1979. Börnin beraöll bæði rússneskt og íslenskt nafn, nema þá helst Nadja Liza, en hafa öll rúss- nesk gælunöfn. Helga Svenna var barnfóstra hjá Ashkenazy Tildrög þess að Dimitri kom einmitt til Isatjarðar má rekja langt aftur í tímann. A sínum tíma og fyrir margt löngu var Helga Sveinbjörnsdóttir á Isa- firði (Helga Svenna) barn- fóstra hjáAshkenazy-hjónun- um og þá mynduðust tengslin við Isafjörð. Reyndar rifjaði Dimitri það upp um daginn, að móðir hans hefði komið til Isafjarðar og spilað hér á tón- leikum þegar hún var níu ára gömul. Nokkrum árum seinna voru Ashkenazy-hjónin að leita að nýrri barnfóstru sem þurfti að koma strax og báðu Helgu um aðstoð í því efni. Helga talaði við unga frænku sína, sem reyndar átti heima í sama húsi og hún á Isafirði, Aslaugu Jóhönnu Jensdóttur. Fljótlega fékk Aslaug sig lausa úr þeirri vinnu sem hún var í hér á ísafirði og fór suður í nýja starfið. Því gegndi hún í tvö ár, eðafrájanúar l976ogfram í janúar 1978. Mest var hún á ferð og flugi til ýmissa landa með Soniu Lizu, sem þá var ungbarn. í níu löndum á fimmtán mánuðum „Eg fékk að fara þó að afi minn og amma hérna á Isafirði væru dauðhrædd um að ég ntyndi lenda í einhverju flug- ráni með barnið. Þetta var al- veg hræðileg tilhugsun hjá þeim“, segir Aslaug. „Ég átti að fara að ferðast með lítið barn út um allan heim og kannski alein með barnið." A þessum tíma kom Áslaug til níu landa á fimmtán mánuð- um en hinn hlutann af árunum tveimur var hún um kyrrt í Reykjavík sem ráðskona með eldri börnunum sem þá voru komin vel á legg og sá ekki síst um að þau borðuðu eitt- hvað hollt. Þegar Áslaug byrj- aði í þessu starfi var hún sjálf ekki nema nítján ára göniul - „en þetta hafðist einhvern veg- inn“, segir hún. Þegar dvalist var í Reykjavík var hún líka einkabílstjóri, svo sem út á flugvöll og með börnin í ballett og tónlistartíma. „Þar fékk ég reyndar undirstöðuna í akstri því að ég var nýkomin með bílpróf og var allt í einu FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 13

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.