Bæjarins besta - 21.12.2000, Blaðsíða 22
Umönnun aldraðra og
sjúkra hefur lengi verið helsta
verkefni Auðar Olafsdóttur og
Rannveigar Björnsdóttur, en
þær eru deildarstjórar lang-
legudeilda Fjórðungssjúkra-
hússins á ísafirði. Þær eru
báðar menntaðar hjúkrunar-
fræðingar og hafa starfað í
greininni samtals í á þriðja
tug ára. Þær segja starfið mjög
krefjandi en um leið mjög gef-
andi.
Tvær legudeildir eru á
sjúkrahúsinu. Önnur er öldr-
unardeild þar sem aldraðir og
ósjálfbjarga einstaklingar búa
og hin er bráðalegudeild sem
tekur við öllum öðrum inn-
lögnum.
Reyna að
útskrifa sem flesta
Þeir sem dvelja á legudeild-
um eiga það sameiginlegt að
þurfa fulla aðstoð við athafnir
daglegs lífs.
„Það þarf að hjálpa fólki
við að klæða sig, þrífa sig og
borða. Margir geta reyndar
borðað sjálfir en þá þarf að
matreiða fyrir fólkið. Nokkur
rúm á deildunum eru ætluð til
endurhæfíngar. Þá er reynt að
gera einstaklingana aftur hæfa
til að sjá um sig sjálfir. Öll
viljum við geta haldið í sjálf-
stæðið eins lengi og hægt er
og reynum við að haga endur-
hæfingu þannig að fólk geti
snúið aftur í heimahús", segir
Rannveig.
„Allir okkar skjólstæðingar
þurfa sólarhringsþjónustu“,
segir Auður. „Við veitum þá
þjónustu eins og þarf en reyn-
um að sjálfsögðu alltaf að út-
skrifa sem flesta. Yfir hátíðar-
nar er lögð sérstaklega mikil
áhersla á að reyna að útskrifa
sjúklinga, eða í það minnsta
að koma því þannig fyrir að
þeir geti heimsótt sína nánustu
þó ekki sé nema rétt yfir
kvöldmatartíma á aðfanga-
dagskvöld.“
Aðstandendur
duglegir að koma
- Hvernig er jólahaldi hátt-
að hjá þeim sem þurfa fulla
þjónustu yfir allra heilagasta
tímann?
„Aðfangadagur gengur
ósköp eðlilega fyrir sig'", segir
Rannveig. „Fólk fær að sofa
út og borðar síðan léttan há-
degismat. Kvöldmaturermilli
fjögur og fimm og er reynt að
hafa hann sem hátíðlegastan.
Sjúklingar klæða sig upp ef
þess er nokkur kostur.
Eftir mat eru teknir upp
pakkar og lesin jólakort. Ann-
að hvort gera vistmenn það
sjálfir eða starfsfólk eða að-
standendur sem koma í heim-
sókn. Að því loknu taka menn
sér hvíld og fá síðan heitt
súkkulaði og smákökur og
annað í þeim dúr.
A jóladag er messað í dag-
stofu sjúkrahússins. Séra
Magnús Erlingsson sóknar-
prestur á Isafirði predikar. Þar
að auki mun kór starfsfólks
sjúkrahússins syngja í mess-
unni.
Heimsóknartími er frjáls
yfir hátíðarnar og sem betur
fer hafa aðstandendur verið
duglegir við að heimsækja
sjúklingana.“
Jólaballið
Milli jóla og nýárs er haldið
jólaball fyrir börn starfsfólks.
„Ballið er haldið í dagstofu
sjúkrahússins og er alltaf
mjög vel sótt“, segir Rann-
veig. „Jólasveinn útdeilir
pökkum til barnanna, sungið
er og dansað og krakkarnir
hafa mjög gaman af ballinu.
Ég held þó að vistmenn
legudeildanna séu hvað hrifn-
astir af þessu balli. Þetta er
heilmikil tilbreyting fyrir þá
- spjallað við Auði Ólafsdóttur og Rannveigu Björnsdóttur, deildarstjóra á langlegudeildum á ísafirði
og sést vel hversu gaman þeir
hafa af ballinu."
Að sögn Auðar gengur
gamlársdagur ósköp svipað
fyrir sig og aðfangadagur. „Þá
klæða sjúklingar sig í spari-
fötin sé það hægt og borða
síðan saman. Það eru ekki
margir vistmenn sem hafa
orku í að vaka fram yfir mið-
nætti. Flestir eru farnir að sofa
upp úr klukkan níu enda hefur
dagurinn þá oft verið langur
og viðburðarríkur hjá þeim.“
V7flíCOflllfTIUf'
e/rifíff áií rcMÍfi
Guðjón Ólafsson frá
Garðsstöðum, Fjarðar-
stræti 21 á ísafirði, varð
fimmtugur fyrir
skömmu. Guðjón er
vinmargur og nokkrar
vinkonur hans tóku sig
saman að halda upp á
afmælið með honum.
Veislan var haldin í
húsakynnum Rauða
krossins á ísafirði enda er
Bryndís Friðgeirsdóttir
svæðisstjóri ein af vinkon-
unum hans. Guðjón bauð
síðan í veisluna og kom
þar m.a. nærri því allt lög-
regluliðið á Isafirði og
margt af starfsfólkinu á
sjúkrahúsinu. Afmælis-
barnið fékk margar gjafir,
þar á meðal stórar bækur
um líkamsfræði og sér-
staklega um heilann í okk-
ur. Reyndar veit Guðjón
nærri því allt um efnin í
heilanum okkar og hvern-
ig við förum að því að
hugsa svona mikið með
honum um alls konar vís-
indi. Um 60 manns komu í
veisluna og fór fagnaður-
inn hið besta fram.
Gaui rœðir við lögreglumennina Gylfa Þór Gíslason og
Hlyn Snorrason.
£mdkm okkm beíth óhkvt im ql&óihqa jóla- og MýÓHluftjuó' oq þókhm á/wó ám aó (juóa.
MANAGÖTU S - ISAFIRÐI
Silfurtorgi - Isafirði
_ TœÁcn/þ/ónusfa
wesf/farcfa ehf
Aðalstrœti 26- ísafirði
Studio Dan
Hafnarstrœti 20 - ísafirði
Sími 456 4022
ítasil
fciloversluo
Hofnorslræli 14 - ísofirði
VST
Ver kfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hf.
Hafnarstrœti 1 - Isafirði
Símar 456 3708 - 456 3735
v,
22 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000