Bæjarins besta - 21.12.2000, Blaðsíða 16
• • s
- vetrarheimsókn til Halldórs bónda Hafliðasonar í Ogri við Isafjarðardjúp
Tímarnir breytast - ekki bara tísk-
an, heldur líka tæknin, búsetan, bú-
skaparhættirnir. Allt er að breytast og
enginn stöðvar tímans þunga nið.
Segja má að fjöllin séu það eina á
Vestfjörðum sem ekki er að gjör-
breytast á skammri stund á þessum
hraðfleyga tíma sem við lifum nú.
Og þó eru komin göt á þau líka.
Jú, fjöllin og firðirnir og Djúpið eru
að mestu eins og var í árdaga byggð-
ar á Islandi. En það eru komnir vegir
og fólkið er á leiðinni burt. Fyrir
hálfri öld eða svo varð tæknibylting í
búskap hérlendis. Túnin stækkuðu og
menn voru bjartsýnir á framtíðina í
sveitum landsins. En skjótt hefur sól
brugðið sumri.
Einmanalegt
ferðalag
Það er svartamyrkur og
hvöss norðaustanátt og kulda-
legt og svolítið snjófjúk þegar
undirritaður leggur af stað úr
Bolungarvík snemma á
sunnudagsmorgni áleiðis inn
í Djúp. Það mun vera eitthvað
milli 120 og 130 kíiómetra
akstur inn í Ögur. Aðeins tutt-
ugu og sex ár eru liðin frá því
að vegasamband komst á milli
ísafjarðar og Ögurs.
Fáir eru á ferðinni. Ekki
verður vart við nokkra sálu á
ferli á allri þessari leið úr Bol-
ungarvík að Ögri nema einn
bíl á Skutulsfjarðarbraut við
Holtahverfið á ísafirði. Einu
ljósin á leiðinni frá Hattardal
í Álftafirði að Ögri eru á
Hvítanesi milli Hestfjarðarog
Skötufjarðar. Norðaustanáttin
er byljótt og myrkrið svart.
Undir Skardi í Skötufirði eru
hardir sviptivindar og það
hvarflar að ökumanni nokkur
andartök að bíllinn haldist
ekki á veginum.
Þegar komið er á Skatna-
nesið biasa við ljósin á Garðs-
stöðum og í Ögri. Aldan er
kröpp á Ögurvíkinni rétt eins
og í norðaustanáttinni fyrir
hundrað árum og fyrir þúsund
árum og bárurnar brotna í fjör-
unni eins og þá. I Ögri er
Halldór bóndi einn heima.
Húsfreyjan fór út á Isafjörð í
gær til að passa barnabörnin
meðan foreldrarnirfóru ájóla-
hlaðborð.
Ögur við
ísafjarðardjúp
Á fyrri tímum var Ögur eitt
af helstu höfuðbólum og höfð-
ingjasetrum landsins, einkum
á öldunum fyrir og eftir sið-
skipti. Kringum 1500 var
Björn Guðnason í Ögri mestur
valdamaður á Vestfjörðum og
þótt víðar væri leitað. Hann
deildi við Skálholtsbiskup og
laut ekki í lægra haldi fyrr en
í dauðanum. Feðgarnir og
sýslumennirnir Magnús prúði
Jónsson og Ari Magnússon í
Ögri voru héraðshöfðingjar á
síðari hluta sextándu aldar og
fyrri hluta þeirrar sautjándu.
Magnús prúði er einkum nafn-
kenndur fyrir baráttu fyrir
vopnaburði og vopnasveitina
sem fylgdi honum. Ari sonur
hans mun einnakunnasturfyr-
ir Spánverjavígin árið 1617.
Þeir feðgar óttuðust útlenda
ræningja og vildu vera við-
búnir komu þeirra. Líkast er
því sem Magnús prúða hafi
órað fyrir atburðum á borð
við Tyrkjaránið árið 1627.
I Ögri eru fjölbreyttari
byggingar en víðast hvar ann-
ars staðarí sveitabýlum áVest-
fjörðum. Jakob Rósinkrans-
son í Ögri, langafi Halldórs
Hafliðasonar sem nú býr þar,
reisti á árunum 1884-85 stær-
sta fbúðarhús sem fram til
þess hafði verið byggt í sveit
á íslandi. Þar áttu á sínum
tíma heima um þrjátíu til
fjörutíu manns. Þetta hús
stendur enn á bæjarhólnum,
tvílyft og reisulegt, og setur
svip á staðinn. Landsbankinn
keypti húsið á sínum tíma og
lét gera það upp.
Ögurkirkja er bændakirkja,
eins og kallað er, og Ögur-
bóndi á mörg sporin á sumrum
að sýna ferðafólki kirkjuna
og gripina sem hún hefur að
geyma. Kirkjan er ennþá eldri
en íbúðarhúsið gamla, smíðuð
árið 1859, stór bygging og
vönduð. Ymsir af dýrgripum
hennar eru nú á Þjóðminja-
safninu.
Enn er að nefna samkomu-
húsið í Ögri sem gert hefur
verið upp af miklum myndar-
skap en það er þungt í rekstri
og viðhaldi fyrir afar fámenna
sveit. Samkomuhúsið er í eigu
fólksins sem býr í Ögurhreppi
hinum gamla. Þegar nokkrir
hreppar við Djúp voru sam-
einaðir á sínum tíma undir
nafni Súðavíkurhrepps fylgdi
liúsið ekki með í þeirri sam-
einingu. Ögurböllin voru ár-
viss hér áður fyrr og mikið
sótt. Síðustu árin hafa þau ver-
ið haldin frumkvæði bræðr-
anna Leifs og Halldórs yngri
úr Ögri. Á sínum tíma og á
uppvaxtarárum Halldórs eldra
var skóli sveitarinnar í sam-
komuhúsinu.
Læknisbústaðurinn
og samgöngutækin
Við Halldór bóndi Hafliða-
son tyllum okkur í eldhúsinu
í Ögri og drekkum te. Inni er
hlýtt og notalegt þrátt fyrir
kalsann úti. Ibúðarhúsið er
nærri því jafngamalt Halldóri
bónda. Hann er fæddur árið
1933 en árið eftir var þetta
hús byggt sem læknisbústaður
fyrir Djúpið. Bæði húsið og
Halldór virðast yngri en ár-
tölin segja.
Ekki voru læknar þó lengi í
læknisbústaðnum í Ögri.
„Þeir sátu hér nokkrum sinn-
um en þó stopult. Mér skilst
að það hafi verið mikið deilt
um það hvar skyldi byggja
læknisbústað fyrir Djúpið
enda höfðu læknarnir setið
hingað og þangað. Kaldalóns
sat á Árniúla og læknar höfðu
verið í Skálavík og víðar. En
sterkustu rökin fyrir því að
byggja læknisbústað hér hafa
mér verið sögð þau, að hérna
voru samgöngutæki þeirra
tíma, trillurnar. Fyrsti læknir
sem ég heyrði talað um hér
var Högni Björnsson sem var
hér í nokkur ár fyrir rnitt
minni. Síðar var hér Baldur
Johnsen sem síðar var á Isa-
firði og svo man ég eftir Arn-
grími Björnssyni. Þessirmenn
voru ekki nema tvö til þrjú ár
hvor.“
Ættin lengi
á þessum stað
Hér á þessum sögufræga
stað eru rætur Halldórs Haf-
liðasonar og hér hefur hann
alið aldur sinn, að undanskild-
um tveinrur vetrum fyrir sunn-
an þegar hann var ungur mað-
ur og mánuðunum þegar hann
var ungur piltur í skóla í
Reykjanesi.
Hann er samt fæddur á
Garðsstöðum. hinum bænum
sem enn er í byggð við Ögur-
víkina, en fluttist þennan litla
spöi að Ögri árið 1942 þegar
hann var níu ára gamall. Ann-
ars hefur fólkið hans verið á
þessum stað í nærri 140 ár.
Þuríður langamma hans byrj-
aði búskap í Ögri upp úr 1860
með fyrri manni sínum, Haf-
liða Halldórssyni.
Skólinn í Ögri
Halldór bóndi gekk í barna-
skóla í samkomuhúsinu í
Ögri. Þar var fastur skóli en
ekki farskóli. Þá var miklu
fleira fólk við Ögurvíkina en
nú er og útræði þaðan mikið.
Oddi og Svalbarð voru enn í
byggð og inni á Garðsstaða-
grundum var eitt býlið enn.
16 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000