Bæjarins besta - 21.12.2000, Page 19
EKO
Hrannargata 2 - sími 456 3339
Jólatilboð á tölvuleikjum
D/EMI:
DELTA FORCE 3 Á KR. 3.890.-
BALDUR S GATEIIÁ KR. 3.790.
pöútudcupz, toucpvictayci
oy 4uuuuc0z(pci {fCýiyin
í di& áwijum
öcMa <z{ P6cU {mctf
kvæmdir, leggja járnbrautir
o.fl. og fékk þannig hjól at-
vinnulífsins til að fara að snú-
ast á ný. Tálknfirðingar eru
að byggja hótel og auka ftsk-
eldi á meðan nágrannarnir á
báðar hliðar eru komnir í þrot.
Hvað veldur? Er ekki ástæða
til að rannsaka það?
Vesturbyggð er kontin í
þrot. Hvaða byggðarlag verð-
ur næst? Ríkið hefur lofað
Vesturbyggð peningum upp í
væntanlega sölu Orkubúsins.
Ég er sannfærður um að þessi
aðgerð er aðeins til að lengja
pínulítið í hengingarólinni.
Hún slær á hitann í eitt eða
tvö ár og þá er allt í sama
farinu aftur. nema þá er ekkert
Orkubú til að selja. Og hvað
er þá til ráða? Þessir peningar
sem koma inn í Vesturbyggð
verða ekki til að atvinnulífið
eflist né að fólksfækkun
stöðvist. Hvað þá að fólk leiti
til baka vegna slíkra skottu-
lækninga. Því miður, hérþurfa
að koma til annars konar
aðgerðir.
Nasco
Hvað kemur gjaldþrot Nas-
co í Bolungarvík sölu Orku-
búsins við? Jú, þetta hangir
allt á sömu spýtunni. Þetta er
sannkallað reiðarslag og varð-
ar okkur öll, ekki aðeins Bol-
víkinga. Hér dugir engin
Orkubússala til að rétta hlut
þeirra. Utanaðkomandi aðilar
hafa stöðugt verið að eignast
og yfírtaka rekstur sjávarút-
vegsfyrirtækja á svæðinu. Þar
hefur alltaf allt farið á einn
veg. Nýir eigendur sem telja
sig engar skyldur hafa gagn-
vart fólkinu né byggðarlaginu
fara burt með starfsemina þeg-
ar þeir telja sig hafa fjárhags-
legan ávinning af því, eða
verða gjaldþrota. Eftir situr
fólkið atvinnulaust og von-
laust með verðlausar eignir.
Þetta er mannréttindabrot.
Augu sumra ráðamanna eru
nú að opnast, ef marka rná
ummæli bæjarstjórans í Bol-
ungarvík og þingmannsins
Einars K. Guðfinnssonar í
sjónvarpi á sunnudagskvöld.
Guði sé lof.
A sama tíma standa aðrir
sveitarstjórnarmenn í samn-
ingum við ríkið um að láta af
hendi yfirráð okkar yfir orku-
málum sem svo farsællega
hafa verið í höndum heima-
manna urn áratuga skeið. Við-
ræðurn á þessum nótum ætti
að slíta þegar í stað og snúa
sér að einhverju þarfara. Fyr-
irtækin verða að vera í hönd-
um heimamanna, sem hafa
metnað gagnvart sínu byggð-
arlagi og þykir vænt urn það.
Sem betur fer eru mörg
fyrirtæki á svæðinu í höndurn
heimamanna og þau eru kjöl-
festan undir byggðinni, en
nteð sölu Orkubúsins er verið
að kippa fótunum undan þeirn
líka. Þeir sem stjórna þessu
bæjarfélagi verða að taka sig
á og taka rökum. Það virðist
mikið skorta á slfkt.
Lokaorð
Isafjarðarbær skartar sínu
fegursta núna fyrir jólin. Fáir
bæir eru j afnfagurlega skreytt-
ir. Jólaljós í hverjum glugga
og garði. Það er dásamlegt að
sjá bæinn svona fallegan.
Maður getur heillast af slíkri
fegurð á kyrru kvöldi.
En skugga ber á. Sá skuggi
er hugsanleg sala þess fyrir-
tækis, sem skaffar okkur öll
þessi ljós, og afsal yfírráða
okkar Vestfirðinga yfir því.
Rök gegn sölu eru þessi
helst:
1. Sala er engin varanleg
lausn á fjárhagsvanda bæjar-
félagsins.
2. Rafmagnsverð mun stór-
hækka, jafnvel urn 20-30%,
sem yrði reiðarslag fyrir íbú-
ana.
3. Margir munu rnissa vinn-
una og flytja brott.
4. Tekjursveitarsjóðsmunu
minnka.
5. Y firráð orkumála færu úr
höndum okkar með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum.
6. Þjónustan myndi skerð-
ast stórlega.
7. En eitt það versta er, að
vonin um betri daga yrði tekin
frá fólkinu.
Og hvernig er líf án vonar?
smáar
Til leigu er gja hert. íhúð
með sérinngangiað Urðar-
vegi 78. Laus strax. Upplýs-
ingar í símum 456 3928
eða 456 4323.
Kiwanisklúbhurinn Básar
á ísafirði hefur opnað
heimasíðu á Wetinu með
upplýsingum um klúhbinn
og félaga. Slóðin á heima-
síðuna er kiwanis. is/basar
Til sölu er 2j a herb. íbúð á
besta stað í bænum. Verð
kr. 3,8 milljónir. Uppl. í
síma 456 3590.
Vantar þig að losna við
Soda-stream tækið úr
geymslunni án greiðslu í
staðinn? Hringdu í mig, ég
skal sækjaþað. Uppl. í síma
456 5544 og 869 9009.
Til sölu er verslunarhús-
næðið að Hafnarstræti 11
á Flateyri. Upplýsingar í
síma 456 7705.
Til sölu er vestfirskur
hnoðmör. Tilvalinn í
skötustöppuna eða út á
fiskinn. Er á góðu verði.
Uppl. í síma 456 3967.
Til leigu er 3ja herb. íbúð
á eyrinni. Laus strax. Uppl.
í síma 456 3085.
Tilvalin jólagjöf til hús-
bóndans. Til sölu Isuzu
Trooper, árg. 1999. Er á
35" dekkjum og ýmsir
aukahlutir fylgja. Listaverð
kr. 3,6 milljónir. Fæst á
aðeins kr. 2,9 milljónir.
Áhvílandikr. 2,3milljónir.
Uppl. í síma 696 0067.
Skipti koma til greina.
Til sölu er hjónarúm, sex
stólar, sófasett og gamall
skápur. Upplýsingar í síma
456 3471.
Smáauglýsingar BB
Sími 456 4560
þakkir
Bestu þakkir og kveðjur
sendi ég öllum þeim sem
glöddu mig á 70 ára af-
mæli mínu 20. september
sl., með heimsóknum,
margþáttuðum skemmti-
atriðum, gjöfum, símtölum
og skeytum. Megi gleði og
friður komandi hátíða jóla
og nýárs umvefja ykkur
öll. Lifið heil! Ásvaldur
Guðmundsson, Núpi.
Athugasemd vegna fréttar í DV iim deilur vcgna uppkaup húsa á hættusvæði í Bolungarvík
Hugur fylgdi ekki máii hjá
forsvarsmönnum bæjarfélagsins
„ Það er ljóst að það þarf
líklega lagabreytingu til að
mögulegt verði að kaupa
upp hús í Bolungarvík sam-
hliða gerð varnarmann-
virkja. Þó bæjarstjórnin í
Bolungarvík sé öflug og
sterk þá ræður hún enn ekki
yfir lögunum.“ Framan-
greind ummæli voru höfðu
eftir Olafi Kristjánssyni,
bæjarstjóra í Bolungarvík í
DV laugardaginn 16. des-
ember sl. þar sem fjallað
var um deilur um uppkaup
húsa á hættusvæði í Bol-
ungarvík. Undirritaður, sem
einnig var rætt við í sömu
frétt, og er eigandi þeirrar
eignar er snjóflóð féll á við
Dísarland 10 í febrúar 1997,
vill koma á framfæri eftirfar-
andi athugasemdum vegna
ummæla bæjarstjórans:
„Orð Olafs um að bæjar-
stjórn Bolungarvíkur sé öflug
og sterk eru hans eigin, ekki
mín enda hefur „styrkur henn-
ar“ ekki komið fram í þessi
máli til hagsbóta fyrir okkur.
Mér er einnig fullkunnugt unt
það að hvorki Olafur né bæj-
arstjórn Bolungarvíkur ráða
yfir lögum þessa lands. Hins
vegar fullyrði ég að á þeim
tíma þegar umrædd reglugerð
var í gildi, var hægt að nýta
hana enda var hún ekki eyrna-
merkt Flateyri eða neinu öðru
sveitarfélagi. í ljósi þeirrar
staðreyndar sem Olafí á að
vera fullkunnugt um, að bæj-
arstjórn Bolungarvíkur lýsti
yfir fullum stuðningi við okk-
ur húseigendur að Dísarlandi
10 um að húsið yrði keypt
upp, er ljóst að Olafur og/eða
bæjarstjórn gerði ekkert raun-
hæft í málinu til úrlausnar fyrir
húseigendur á meðan reglu-
gerðin var í gildi. Því er ekki
hægt að segja annað en að
hugur hafi ekki fylgt máli hjá
forsvarsmönnum bæjarfélags-
ins.“
í framangreindri frétt er
einnig haft eftir Magnúsi Jó-
hannessyni, ráðuneytisstjóra
hjá umhverfisráðuneytinu, að
félagsmálaráðuneytið hafi á
sínum tíma sett sérreglur varð-
andi uppkaup húsa á Flateyri
sem ekki eru lengur í gildi. „I
samtali milli íbúa við Dísar-
land og Magnúsar eftir einn
af þeim fjölmörgum fundum
sem haldnir voru í Bolungar-
vík til kynningar á fyrirhug-
aðri varnargerð, tjáði hann
okkur að hann sæi enga van-
kanta á því að hægt yrði að
afgreiða mál okkar líkt og hafi
verið gert á Flateyri. Jafnframt
gat hann þess að til þess að
svo gæti orðið, yrði bæjar-
stjórn Bolungarvíkur að óska
eftir slíkri afgreiðslu. Þegar
Magnús lét þessi orð frá sér
fara var umrædd reglugerð í
gildi. Hins vegar er ljóst að
bæjarstjórn Bolungarvíkur
notfærði sér ekki þessa
heimild á meðan að hún
stóð til boða. Því er við
engan annan að sakast í
þessu máli en Olaf og sam-
herja hans í bæjarstjórn
Bolungarvíkur.
Að síðustu óska ég Olafi
Kristjánssyni og öllum
bæjarfulltrúum gleðilegrar
jólahátíðar.
Olgeir Hávarðarson,
Dísarlandi 10,
Bolungarvík.
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
19