Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.2000, Side 23

Bæjarins besta - 21.12.2000, Side 23
Fólkið í Bræðratungu tekur fullan þátt í jólastressinu við ætlum að halda tvisvar upp á aldamótin, segir Sóley Veturliðadóttir, forstöðuþroskaþjálfi Árið 1984 var Bræðratunga byggð í Tungudal í Skutlus- firði. Með því var unnið mikið frumkvöðlastarf í þjónustu við fatlaða. Að sögn SóleyjarVet- urliðadóttur, forstöðuþroska- þjálfa Bræðratungu, eru sam- býli af þessu tagi þó ekki það sem koma skal í málefnum fatlaðra. „í Bræðratungu búa nú fimm einstaklingar frá aldrin- um 13-57 ára sem eiga lítið sameiginlegt annað en fötlun sína. Þeirbúa afskekkt og eiga allt oflítil samskipti við annað fólk. I athugun er að leggja sambýlið niður í framtíðinni og útvega íbúum húsnæði og þjónustu innan um aðrabæjar- búa.“ Fólk býr afskekkt Sóley segir nokkrar tilfinn- ingar bundnar Bræðratungu. „Eg hef orðið vör við að fólk vilji ekki sjááeftirsambýlinu. Ég skil þau sjónarmið ágæt- lega en eins og þörfin er í dag er þetta húsnæði allt of stórt og í því eru mörg herbergi sem standa auð. Við höfum nú þegar stigið mikilvægt skref í átt að því að koma fólki með fötlun betur út í samfélagið. Menn kannast eflaust við Halldóru Guð- mundsdóttur, en hún býr nú ein í íbúð í Pollgötunni. Hún fær sólarhringsþjónustu frá Svæðisskrifstofu málefnafatl- aðra og hefur þetta fyrirkomu- lag gengið með miklum ágæt- um. Ég held að þjónusta af þessu tagi sé það sem koma skal.“ Fara til sinna nánustu á jólunum Eins og annars staðar er jólaundirbúningur í fullum gangi í Bræðratungu. „Fólk er í óðaönn að skreyta, þrífa og fleira sem tilheyrir undir- búningi jólanna. Á aðventunni er mjög hátíðlegt andrúmsloft á sambýlinu. Fólkið í Bræðra- tungu tekur fullan þátt í jóla- stressinu og fer niður í bæ að kaupa jólagjafir, sýna sig og sjá aðra. Þó er leitt hversu lélegt aðgengi fyrir fatlaða er í búðum bæjarins. Þrír af fimm íbúum eru bundnir í hjólastól og komast varla neins staðar inn nema í verslanirnar Hamraborg og Bónus. Þetta er eitthvað sem verslunareig- endur ættu að reyna að bæta. Á aðfangadag fara íbúar til sinna nánustu og eru þar yfir það allra helgasta. Oftast kem- ur fólkið þó aftur á sambýlið strax um kvöldið, enda eiga þau þar heima.“ Ferðaþjónustan gengur vel Sóley segir starfsmenn S væðisskrifstofu málefna fatl- aðra lengi hafa barist fyrir því að fötluðum verði útveguð sérstök bílastæði. „Þetta hefur verið mikið baráttumál fyrir okkur. Nú eru komin slík stæði á nokkrum stöðum, en betur má ef duga skal. ísafjarðarbær hefur að mörgu leyti staðið sig mjög vel í að bæta þjónustu við fatlaða. Nefna má Ferðaþjón- ustu fatlaðra sem gengið hefur mjög vel. Verktaki sér um aksturinn og hefurfyrirkomu- lagið gengið mjög vel hingað til.“ Fatlaðir vilja taka virkari þátt í samfélaginu Á áramótunum er að sögn Sóleyjar mikið sprengt í Bræðratungu. „Við ætlum eins og allir aðrir að halda tvisvar upp á aldamótin“, segir hún. „Markmiðið með þjónustu við fatlaða er að veita þeim jöfn réttindi á við aðra Við viljum að þeir verði virkir á öllum sviðum samfélagsins, en það virðist vera útbreiddur misskilningur að fatlaðir þurfi að búa í miklu verndaðra um- hverfi en aðrir. Vissulega þurfa þeir ákveðna þjónustu en þeir eru almennt mjög áhugasamir Sóley Veturliðadóttir. um að taka virkan þátt í sam- félaginu. Fólk með fötlun er fyrst og fremst fólk og er eins ólíkt hvert öðru og allir aðrir. Þau hafa sínar persónulegu skoð- anir á mönnum og málefnum og þau hafa misjafnar þarfir og langanir, alveg eins og við hin.“ Fix'.d&fssUff Þessir lögreglumenn voru á vaktinni en skutust í afmœlið (að sjálfsögðu með alla síma og öll boðtœki í viðbragðsstöðu) og fengu sér kaffisopa með Guðjóni. Fimm af vinkonunum haits Guðjóns með afmœlisbarninu við hlaðið veisluborðið. Sendtm okkwi beítú ó&kvc tm qkÉmqa jóia- oq mján&kSlSr oq bökknm ánár iem en, aó líuáa. Aðalstrœti 27 - Isafirði Sími 456 3602 Aðalstrœti 21 - Bolungarvík Þrymur hf - vélsmiðja Suðurgötu 9 - Isafirði . Hárstofan Aðalstrœti 21-23, Bolungarvík Sími 456 7599 Rörtæ v3 Sindragötu 12b - Isafirði íí Sparisjóður Súðavíkur Aðalgötu - Súðavík FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 23

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.