Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Síða 5

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Síða 5
Rauði borðinn von mín að þessi grein geti hjálpað ykkur eitthvað áleiðis í því að gera upp hug ykkar. Geta HlV-jákvæð börn smitað önnur börn? Ef þið eruð mjög áhyggjufull, þá færi ég ykkur góðar fréttir að utan. HlV-veiran smitast ekki í daglegri umgengni eða í félagslegum sam- skiptum við annað fólk. Þegar horft er út í heim og tekið mið af reynslu annarra ríkja, þá sýna rannsóknir í Evrópu að systkin hafa aldrei smitað hvert annað. Veiran hefur heldur aldrei borist frá HlV-smituðu barni til annarra barna eða starfsfólks í leikskólum, skólum eða hjá dag- mömmum. Það hreinlæti sem venju- lega er viðhaft á heimilum og stofn- unum dugar til að útiloka möguleika á smiti. HlV-smitað barn og barn sem ekki er smitað geta notað sama disk, glas, hnífapör, leikföng og klósettsetu án þess að smit berist á milli. Þau geta faðmast og kysst, farið í sund eða læknisleiki saman, án þess að hætta sé á smiti. Bleiuskipti hafa ekki áhættu í för með sér nema þegar þvag eða hægðir innihalda sýnilegt blóð. í raun virðist eingöngu blóð geta innihaldið það mikið magn af veirunni að smit- un geti átt sér stað. Reynsla annarra þjóða segir okkur að HlV-smituð börn geti auðveldlega verið hjá dagmömmu, í leikskóla eða skóla, stundað íþróttir eða sinnt öðr- um tómstundum, án þess að nein smithætta sé á ferðum. Þess vegna þarf ekki að gera ráð fyrir sérstökum leikskólum, skólum eða takmarka þessi börn á neinn hátt til þess að vernda aðra fyrir smiti. Hægt er að ímynda sér ýmsar að- stæður þar sem smitun getur fræði- lega átt sér stað. Þetta getur t.d. verið bit. Þótt að það sé kannski ekki óal- gengt að börn bíti hvert annað, þá er það afar sjaldgæft að þau bíti til blóðs. Gerist það, þá er of lítið af HlV-veiru í munnvatni til að smitun eigi sér stað. Annað fræðilegt dæmi eru tvö börn sem reka höfuðið saman svo að blæðir úr báðum. Smitun get- ur heldur ekki átt sér stað í þessu til- viki, því þá þyrftu börnin að halda kyrru fyrir á eftir og nudda sárunum saman. Það er afar ólíklegt að þau geri það, því eflaust leita þau strax huggunar. Hver er gangur sjúkdómsins? Á milli 10-15% bama, sem fæðast í Evrópu og eiga HlV-jákvæða móður, eru smituð. Taki HlV-smituð kona alnæmislyf á meðgöngunni, þá minnk- a líkurnar á því að hún fæði smitað barn úr um 25% í um 7%. Á íslandi mæla heilbrigðisstarfsmenn ekki með því að HlV-smitaða foreldrar eignist börn. En ekki sjá allir fyrir getnað og þungun og þá er mikilvægt að móðir- in taki alnæmislyf á meðgöngutíma. HlV-smituð börn eru yfirleitt frísk þegar þau fæðast. Þótt að margir veirusjúkdómar eins og t.d. rauðir hundar valdi alvarlegum fósturskaða á meðgöngutíma er ekkert sem bend- ir til þess að HlV-veiran valdi fóstur- skaða. Gangur sjúkdómsins er gjaman þann- ig að um 20% barnanna fá alnæmi, sem er lokastig sjúkdómsins, á fyrsta ári, og flest hver deyja áður en þau ná tveggja ára aldri. Aftur á móti fær langstærsti hluti HlV-smitaðra barna, fá eða engin sjúkdómseinkenni fyrstu ár ævi sinnar og um 20% verða 10-12 ára án þess að sýna nokkur sjúkdóm- seinkenni. Þessi börn þroskast og dafna alveg eðlilega. Það er ekki óal- gengt að þessi börn greinist fyrst með HlV-veiruna í blóði eftir að móðirin greinist með alnæmi, en þá eru þau rannsökuð af því tilefni. Það er ekki vitað af hverju sum bam- anna verða mjög veik en önnur ekki. Því er haldið fram að það standi í sambandi við það hvenær smitun átti sér stað. Að þau börn sem smitist í meðgöngunni spjari sig verr en þau sem smitast í fæðingunni. Ástæðan getur einnig farið eftir veirumagninu sem flyst úr móður í barn eða eftir því hversu veiran er skæð. Ekki hefur ennþá fundist lækning við HIV eða alnæmi. En nú eru fáan- leg lyf á íslandi sem stöðva framgang veirunnar í lfkamanum. Þá er eins og hún leggist í dvala og herji ekki á líkamann í sama mæli og áður. Hætta á smiti vegna blæðinga verður einnig mun minni en áður. Börnin þola yfir- leitt alnæmislyfin mjög vel. En sá möguleiki er fyrir hendi að þau geti orðið ónæm fyrir lyfjunum og þá hætta þau að virka. Framtíðin ein getur skorið úr um það hver þróunin verður hjá hverju barni. Það má gera ráð fyrir að hjá flestum bömum þróist sjúkdómurinn smám saman yfir í alnæmi, sem er lokastig hans. Þá er ónæmiskerfið orðið svo veiklað að veirur, sem heilbrigt fólk með virkt ónæmiskerfi kennir sér ekki meins af, fara að hrjá hið HIV- jákvæða barn. Því er mjög mikilvægt að vernda þau fyrir algengum pestum og umgangssjúkdómum, vegna þess að þeir geta verið þeim lífshættulegir. Þær sýkingar sem barn með alnæmi geta fengið smita ekki aðra. Alnæm- issmituð börn geta einnig fengið krabbamein. Upplýsingar eða þagnaðarskylda? Vegna þess að engin raunhæf smit- hætta er á ferðum, þá er það lögum samkvæmt mál foreldranna að ákveða hvort, hvenær og hverja þau vilja upplýsa um HlV-smit barns síns. Margir foreldrar eru hræddir við að segja frá þar sem þeir óttast að barnið verði fyrir fordómum og út- skúfun. Þeir eru hræddir við að barni þeirra verði strítt og að það mæti félagslegri einangrun til viðbótar erf- iðum sjúkdómi. Auk þess getur það að tala opinskátt um smit barnsins einnig gefið í skyn að móðirin og faðirinn séu smituð. Á heimilinu geta líka verið ósmituð systkini. Það er því margt sem taka þarf tillit til og það að ákveða hvort segja eigi frá smitinu eða ekki er langt frá því að vera auðveld ákvörðun. Oft og tíðum getur það samt verið öryggisatriði fyrir barnið að einhver í leikskóla eða skóla barnsins viti af smitinu eða sjúkdómnum. Þá geta foreldrarnir betur fylgst með pestum og umgangssjúkdómum og starfs- fólkið getur veitt barninu og foreldr- unum betri andlegan stuðning og skilning. Sé óskað eftir því að upp- lýsingarnar berist áfram, þá skal alltaf sækja um leyfi foreldranna til þess fyrst. Ýmsar ástæður eru fyrir því að það hefur reynst mörgum

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.