Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Side 10

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Side 10
Fréttabréf Alnæmissamtakanna á Íslandi Engin uppgjöf Björn Bragi Björnsson 1992 f. 18.7.1962, d. 2.12.1994 ana. Ein athyglisverðasta ábendingin kom frá Hanne S0rensen um að hún í starfi sínu á Rudolph Berg sjúkrastöð- inni hefði ekki fundið fyrir því að fólk væri yfirvegaðra og rólegra gagn- vart umræðu um alnæmi og ábyrgt kynlíf. „Hræðslan er ennþá mest við það að vera mögulega smitaður, hitt kemur seinna.“ Við spurningunni um það hvað læknar Ríkis-spítalans segðu í sambandi við ábyrgð hins HlV-jákvæða, svaraði Jan Gerstoft: „Við upplýsum og meðhöndlum, en þeir sem við helst vildum upplýsa eru þeir sem ekki hlusta.“ Og Hanne S0r- ensen bætti við: „Þeir sem leiðbeina, aðstoða og hjúkra verða að ná betri tökum á því að tala um kynlíf og annars konar kynhegðun; víst krefst það mikils af þeim en enn meira af skjólstæðingunum.“ Þá beindust umræður manna að þeirri staðreynd að eftir að raunhæf lyfjameðferð hófst og fór að gefa góðan árangur, er ekki lengur fjallað um það í opin- berum fréttaflutningi og opinberri umræðu hversu HlV-smit er hættu- legt. I því sambandi var bent á það að þegar fjölmiðlar hætta að undirstrika lífsháskann í þessu máli, þá er skammt í það að hið opinbera grípi tækifærið og fari að spara kraftana og skera fé við nögl sér í alnæmismálum. Eftir að Gorm Toftegaard Nilsen prófessor í lögum hafði fjallað um dönsku smitsjúkdómalögin var mál- þinginu slitið með því að Kaupmanna- hafnarborg bauð gestum að glæsilegu veisluborði þar sem veitingar voru að sjálfsögðu framreiddar á konunglegu postulíni. Þá fyrst fattaði ég að ég var hommi fimmtán ára, fannst það svolítið hart þorði ekki í skólann þorði ekki rnargt svo var það diskó og hommar urðu smart þá var maður kúl þá var maður pönk ‘81 og hlutirnir urðu röff í blöðunum lásuð’ um vírus og breyttuð öll um rödd ísland ó Island það er gott að koma heim (eða hitt þá heldur) því hér eru allir svo líbó þar til kemur að þeim þegar þau vita að þú ert smitaður er hætt að bjóða heim „við erum að hugsa um börnin við meinum það ekki þannig en ekki anda of mikið að þeim“ stundum verð ég svo hræddur þegar ég svitna um nætur - á ég fyrir leigubíl? kemst ég á fætur? ég ligg upp á spítala og græt meðan kraftinn þrýtur einn inná dimmu herbergi - fjölskyldan frammi og grætur stundum er ég æðislega þreyttur fullur dópaður stónd og breyttur ekki eins og ég vanalega er en sama hver fer með mér í rúmið ég veit ALLTAF hvert sæðið úr mér fer þú lítur oft á mig sem glæpon samt þarf ég alltaf að bera ábyrgð á þér það er búið að reka mig úr vinnunni og líka úr húsnæði vinur minn sagði „ekki nota sama handklæði hafði tannburstann sér gerðu mér greiða ekki of nálægt mér ég skal ennþá vera vinur þinn paranojd að smitast af þér“ vinir mínir eru að falla einn af öðrum sá síðasti varð blindur orðinn að beinum strákurinn á undan honum náði varla tuttugu og þrem íslenski mórallinn stattu stoltur og beinn harkaðu af þér vertu snyrtilega klæddur glæsilegur og hreinn en þið þarna úti ég ætla að segja ykkur eitt eftir þrjú fjögur ár vaknið þið upp við rosalegt sjokk með tárin í augunum „af hverju notaði ég ekki smokk“ „af hverju notaði ég ekki smokk“ „af hverju notaði ég ekki smokk“ Minningarguðsþj ónusta Alnæmissamtökin hafa árlega staðið að minningar- guðsþjónustu um þá sem látist hafa úr alnæmi. Er hún haldin síðasta sunnudag í maí og hefur verið útvarpað á Rás 1. Upplýsingar Alnæmissamtökin reka upplýs- ingamiðstöð fyrir almenning og athvarf fyrir smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Upplýsingar fást á skrifstofu. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 13 - 17. Síminn er 522-8586, faxnúmer 552-0582. Netfang aids@centrurn.is Heimasíða: http: //www.centrum.is/aids/ Fjármál Alnæmissamtökin hafa engan fastan tekjustofn nema félags- gjöld en hafa notið stuðnings frá Rauða krossi Islands, Öryrkja- bandalagi Islands, ríkinu og Reykjavíkurborg. Einnig hafa félaginu borist frjáls framlög sem skipt hafa sköpum við rekstur þess. Einstaklingar sem eru hiv- smitaðir eða með alnæmi geta sótt um fjárstuðning til félagsins. Styrkir eru ekki veittir til þeirra hluta sem opinberir aðilar eiga að annast.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.