Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Qupperneq 12

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Qupperneq 12
Fréttabréf Alnæmissamtakanna á Islandi í skugga alnæmis Frásögn Auðar Matthíasdóttur, fyrsta formanns Alnæmissamtakanna á íslandi Guðni Baldursson og Steindór ívarsson skráðu Auður Matthíasdóttir fyrsti formaður Alnæmissamtakanna á fslandi Ljósm. Sverrir Vilhelmsson Fyrstu kynni mín af alnæmi hófust þegar einn af vinum mínum í Þýska- landi, þar sem ég bjó í nokkur ár, veikt- ist af sjúkdómnum í byrjun níunda áratugarins. Hann hét Hermann og var indæll maður og kom nokkrum sinnum í heimsókn til fslands. Þetta var rétt eftir að alnæmi fór að vekja athygli manna. Þá var sáralítið vitað um sjúkdóminn og hann vakti ótta og ugg. Ég var þá að vinna á Evrópuskrifstofu Alþj óðaheilbrigðis- stofnunarinnar í Kaupmannahöfn og varð vör við umræðuna sem þar fór fram um þennan nýja sjúkdóm og fékk í raun og veru ýmsar upplýsing- ar sem almenningur átti ekki aðgang að. Mér virtist öll umræða ákaflega pukursleg og að menn ættu erfitt með að ræða af skynsemi um alnæmi. Þetta tengdist því sérstaklega að flest- ir smitaðir voru samkynhneigðir. En mér þótti verra að í vinahópi okkar Hermanns varð ég vör við puk- ur og afskiptaleysi. Hann var hommi en það voru ýmsir af kunningjunum líka svo að þeir áttu að geta horfst í augu við það. En þeir hættu margir að umgangast hann og fáir komu að heim-sækja hann á sjúkrahúsið eftir að hann veiktist. Ég hef velt þessum við-brögðum mikið fyrir mér og held að alls staðar í samfélaginu hafi afneit-un ráðið þeim. Yfirvöld vildu afneita samkynhneigð og samkyn- hneigðir vildu afneita sjúkdómi sem þeir þekktu ekki og óttuðust ákaflega. Á þessum tíma vissu menn lítið sem ekkert um smitleiðir. Viðbúnaður á spítalanum þar sem Hermann lá er mér einnig minnis- stæður. Ég var klædd í eins konar geim- búning áður en ég fór inn í stofuna til hans. Auðvitað var þessi viðbúnaður til þess að vernda hann og þannig var þetta skýrt fyrir þeim sem komu í heimsókn. Ég fluttist heim til íslands árið 1987 eftir að hafa lokið námi í félagsráð- gjöf. Starf nútt hjá Alþjóðaheilbrigðis- stofnuninni og kynni mín af sjúk- dómnum í gegnum Hermann gaf mér ákveðið forskot. Ég þekkti nokkra íslendinga sem voru HlV-smitaðir og mér var vel ljóst að það var mikil þörf á aðstoð fyrir þennan hóp á fslandi. Ég sneri mér til borgarstjórans í Reykjavík og lagði til að það yrði komið á fót stöðu félagsráðgjafa HIV- smitaðra og alnæmissjúkra. Á það vai' fallist og ég fékk aðstöðu á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur hjá borgar- lækni til þess að vinna að þessum

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.