Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Síða 27
Rauði borðinn
Samþykkt á stofnfundi 5. desember 1988 og breytt á aðalfundi 28. febrúar
1994.
1. grein. Félagið heitir Alnæmissamtökin á Islandi. Aðsetur þess er í
Reykjavík, starfsvettvangur þess er landið allt.
2. grein. Tilgangur félagsins er: Að auka þekkingu og skilning á alnæmi. Að
styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra.
3. grein. Tilgangi sínum vill félagið ná: Með því að leita nýrra leiða til þess að
uppfræða fólk um alnæmi. Að stofna umræðu-, fræðslu- og stuðningshópa.
Með fræðslugreinum í blöðum, tímaritum, fræðsluerindum og fræðslumynd-
um. Með því að efla sjóð félagsins m.a. með fjársöfnun, til þess að styðja smit-
aða og sjúka.
4. grein. Félagar geta orðið allir þeir sem hafa áhuga á málefnum þeim sem
félagið lætur sig varða.
5. grein. Stjórn félagsins skipa 5 menn og 2 til vara. Stjórnin skal kosin til eins
árs í senn. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega, að öðru leyti
skiptir stjórnin með sér verkum.
6. grein. Starfsár félagsins er almanaksárið. Aðalfund skal halda í
febrúar ár hvert. Skal hann boðaður með auglýsingu í fjölmiðlum eða bréflega
með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans
boðað Á aðalfundi eiga atkvæðisrétt allir skuldlausir félagar.
Verkefni aðalfundar eru:
1. Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári.
2. Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins.
3. Lagabreytingar ef einhverjar eru.
4. Formaður gerir grein fyrir helstu verkefnum, sem framundan era.
5. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.
6. Árgjöld ákveðin.
7. Önnur mál.
7. grein. Félagsfundi skal halda þegar stjómin ákveður eða minnst 1/3 félags-
manna óskar þess og tilgreina fundarefni. Stjórnarfund skal halda, þegar for-
maður ákveður eða meiri hluti stjórnarmanna æskir þess. Stjórnin getur falið
einstökum félagsmönnum að inna af hendi störf í þágu félagsins og einnig
skipað sérstakar nefndir í sama tilgangi.
8. grein. Lögum þessum má breyta á aðalfundi og þarf minnst 2/3 hluta
greiddra atkvæða til breytinga. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa
borist stjórn eigi síðar en 15. janúar.
9. grein. Komi til félagsslita skal ráðstafa eignum félagsins til styrktar
málefnum, sem samræmast best tilgangi félagsins.
Minningarkort
Minningarkort eru til sölu á
skrifstofu, lágmarksverð er 500 kr.
og renna tekjur af kortunum í sér-
stakan minningarsjóð sem notaður
er til uppbyggingar athvarfsins.
Hægt er að panta kortin í síma alla
virka daga kl. 13 - 17.
1. desember 1998
Alþjóðlegur baráttudagur gegn
alnæmi er 1. desember ár hvert.
Alnæmissamtökin hafa undanfarin
ár reynt að vekja fólk til umhugs-
unar um alnæmi, smitleiðir og út-
breiðslu þess á þessum degi. í ár
höfum við fengið til liðs við okkur,
fólk frá Alþjóðlegu ungmennaskipt-
unum (AUS) og félaga í Rauða
Krossi Islands, við dreifingu og sölu
á rauðaborðamerkinu. Seld verða
merki um allt land, og vonumst við
til að selja um fimm þúsund merki.
f ár, er meira tilstand hjá okkur en
venjulega, þar sem nú eru tíu ár
liðin frá stofnun alnæmissamtak-
anna, og má lesa meira urn það
annars staðar í blaðinu.
Þann 1. des. í ár bjóðum við öllum
velunnurum félagsins að þiggja kaffi-
veitingar á Hverfisgötunni frá kl.
14:00?
Skrifstofan
Skrifstofa og upplýsingasími
Alnæmissamtakanna á íslandi er
opin virka daga kl. 13 - 17 að
Hverfisgötu 69, Reykjavík.
Pósthólf 5238, 125 Reykjavík.
Upplýsingar eru fyrir hiv-smitaða,
aðstandendur og almenning, algjör
trúnaður og nafnleynd.
*