Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 4

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 4
Sibja hiv-jókvœöin á vanamannabekk? Heilbrigði býr í huganum Hálbrigði er ekki aðalmarkmið lífsins heldur að þeim sem upplifir sig heilbrigðan finnist hann hafia möguleika á að lifia innihaldsríku lífi, firamkvcema þau verkefini sem hann hefiur ákveðið að vinna að t lífinu og hafia áhrifi á eða aðlagast umhverfinu (WHO 1987). Asa Thourot hefur verið hiv-jákvæð í rúmlega 20 ár. Hún starfar sem ráðgjafi hjá Noaks Ark í Stokkhólmi. Noaks Ark er ráðgjafar- og stuðningsmiðstöð fyrir hiv-jákvæða, rekin af Rauða krossinum þar í landi. Ása flutt fróðlegt erindi á þingi hiv-jákvæðra í haust þar sem hún lýsti lífi sínu með hiv- veirunni síðustu tvo áratugina. Ása þrískiptir þessum tíma: Fyrstu árin: Hvernig þau lýstu sér í dauðahræðslu og afneitun á þeirri staðreynd. Annað tímbilið, þegar lyfin komu á markaðinn eftir miðjan síðasta áratug, en þá var hún orðin fárveik og komin í hjólastól, hún var á örorkubótum og bjó hjá móður sinni (það er erfitt að ímynda sér að hún, þessi hraustlega kona hafi nokkru sinni verið veik). Ása sagðist hafa verið mjög vantrúuð á gagnsemi lyfjanna í byrjun og var mjög upptekin af aukaverkunum þeirra, Síðan varð hún hrædd við lífið sem væri framundan, það gæti ekki orðið annað en löng þjáning lífið var þunglyndi og myrkur og hún fann mikið til með sjálfri sér. Ása er á þriðja tímabilinu núna, það er tímabilið sem hún segist hafa lært að vera jákvæð í hugsun og ekki bara hata að vera hiv-jákvæð og þróa jákvæðni í garð eigin heilbrigðis. Hún segist vera þakklát fyrir lyfjameðferðina og hafi lært að nýta sér þau tilboð, fagfólk og félagasamtök sem tiltæk eru, til að styrkja sjálfa sig. Ása segist vera svo miklu meira en bara hiv-jákvæð. Ása sagði frá reynslu sinn af sjálfsfordæmingu (self stigma) og hvernig hún birtist í því að henni fannst hún ekki eiga neitt gott skilið, hún óttaðist að lifa og hún óttaðist að deyja. Henni tókst að yfirvinna þetta og besta ráðið til þess segir hún vera að hætta að bera sig saman við aðra, vera sjálf.ur sitt eigið mælitæki á hvað er gott að vera og hvað ekki. Hún sagðist hafa hætt að reikna t-frumur og vírusmagn enda hafi þær ekkert að segja um það hvernig fólki líði í huganum. Félagslegt heilbrigði Einn af fimm þáttum sem hvað mest ákvarðar heilbrigði og vellíðan einstaklinga er félagslegi þátturinn, en í því felst hver félagsleg staða einstaklingsins er, svo sem menntun, starf, fjölskylda, trúarbrögð, kyn og kynþáttur. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) skilgreinir hugtakið heilsu sem líkamlega, andlega og félagslega vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku. Jafnframt eru áhrifaþættir heilsu flokkaðir eft ir hversu þarlægir þeir eru einstaklingnum og hans eigin ákvörðunum eða ábyrgð, svo sem einstaklingbundnir lífshættir-vinátta og félagstengsli— heimili og vinnuaðstæður (Lýðheilsustöð 2006). Hiv í tuttugu og fimm ár Þess hefur víða verið minnst að aldarfjórðungur er liðinn síðan fyrstu hiv'tilfellin voru greind. Á liðnu ári gaf Evrópustofnun WHO út mikið rit um stöðu hiv í Evrópu sem ber heitið ,,Movingfirom death sentence to chronic disease management”. Þar er umræðunni beint að þeim breytingum sem hafa orðið á hugsun manna gagnvart hiv með tilkomu árangursríkra lyþameðferða og að sjúkdómurinn hafi breyst frá því að vera dauðadómur yfir í langvinnan sjúkdóm sem þó væri hægt að halda niðri með lyfjameðferðum líkt og til dæmis sýkursýki. Jafnframt kemur fram í skýrslunni að þörfin sé því ríkari fyrir frekari stefnuyfirlýsingu um málefni hiv'jákvæðra og aðgerða sem myndi leiða til sjálfstyrkingar þeirra, samhliða breyttri og jákvæðari sýn samfélagsins á sjúkdóminn. Nýr Framkvœmdastjóri Á fundi sínum 30. ágúst sl. féllst stjórn Alnæmissamtakanna á ósk Birnu Þórðardóttur framkvæmdastjóra um launalaust leyfi, en Birna hóf nám í Háskóla Islands í haust, auk þess sem hún rekur eigið fyrirtæki. Einar Þór Jónsson, sem er þroskaþjálfi og stundar meistaranám í Lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík, hefur verið ráðinn í hennar stað. Birna mun, að ósk stjórnar Alnæmissamtakanna, skipuleggja áfram fræðslu- og forvarnarverkefnið sem Alnæmissamtökin hafa unnið að í grunnskólum landsins.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.