Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 19

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 19
S Afstaða mín frá byrjun var sú að sýna aldrei vorkunnsemi heldur reyna að veita umhyggju. Það má ekki vorkenna sjúklingum - það á að sýna sjúklingum empathy en ekki sympathy, ég held að sjúklingum þyki það betra. Vissulega er þetta erfitt oft á tíðum og sorglegt. Hér áður og fyrr var vissulega ástæða til að vorkenna þeim er greindust hiv'jákvæðir. En þessir sjúklingar voru allir hetjur á sinn hátt og þurftu ekkert á vorkunnsemi að halda. H Þetta var auðvitað viðhorfið sem maður hafði. Það þurfti að stappa stáli í fólk og gefa sjúklingum einhverja von. Yfirleitt reyndum við að benda á björtu hliðarnar. Oft á tíðum var maður í þeirri einkennilegu stöðu að tala annars vegar út til þjóðarinnar í gegnum fjölmiðla, þá var þetta afskaplega hættulegur sjúkdómur, en hins vegar þegar maður horfðist í augu við einstaklinginn sem var með sjúkdóminn þá varð að snúa við blaðinu. En þetta er rétt hjá Sigurði, okkar hlutverk er ekki að leggjast á sorgarsveifina heldur að reyna að sjá möguleikana. Bjóða upp á það sem við höfum og höfðum og frá upphafi höfðum við ýmsa möguleika, til dæmis möguleika til þess að hindra fylgisjúkdóma, í einhvern tíma að minnsta kosti. Hræðslan tók á sig ýmsar myndir S Ég get fullyrt að við, smitsjúkdómalæknarnir, vorum aldrei hræddir og ég held sannast sagna að við sem vorum að sinna hiv-jákvæðum höfum frá byrjun barist gegn ótrúlegum fordómum með kjafti og klóm. I orðsins fyllstu merkingu gekk ýmislegt út yfir gröf og dauða. Umstangið, til dæmis við andlát alnæmissjúklings, var með ólíkindum! Notuð var sérstaklega útbúin stálkista, krufningar voru helst ekki framkvæmdar og starfsmenn voru í þessum margumtöluðu kafarabúningum. H Það var svo margt sem gerðist í kringum þetta, eins og vill verða þegar gripið er til yfirdrifinna aðgerða eins og kafarabúningarnir voru merki um og þá fóru menn að gera mistök. Ég varð til dæmis vitni að því að að einmitt undir slíkum kringumstæðum voru menn að brjóta glös á rannsóknarstofunni af því að þeir voru að gera eitthvað öðru vísi en venjulega. Á rannsóknarstofunni átti allt í einu að nota sérstaka skilvindu fyrir blóð úr hiv-smituðum og þá kom í ljós að þessi skilvinda virkaði ekki eins og hinar og var skjöktandi fram og til baka, þannig að öll glösin brotnuðu. Þetta olli þvílíku uppistandi! Þegar fólk var að taka blóð þá var það til dæmis þannig uppáklætt að það sá varla hvað það var að gera, þetta var nú ekki raunveruleg smitgát! En ég held að það sé rétt hjá Sigurði að við, smitsjúkdómalæknarnir, höfum vitað miklu meira um smitleiðir sjúkdómsins en flestir aðrir. S Við höfðum aldrei minnstu ástæðu til að óttast nokkurn skapaðan hlut, það kom ekki einu sinni upp í huga manns. H Það var alveg ljóst frá upphafi að um smitsjúkdóm var að ræða. Sjúkdómurinn virtist hegða sér faraldsfræðilega séð mjög svipað og lifrarbólga B og það var sjúkdómur sem maður þekkti mjög vel og vissi nákvæmlega hvernig ætti að gæta sín gegn, til dæmis að vera ekki að fá blóð í sár og annað þvíumlíkt, þannig að allar upplýsingar sem við höfðum bentu til þess að venjuleg og eðlileg smitgát skyldi viðhöfð, eins og reyndar ætíð ber að gera. Það var gríðarleg hystería í samfélaginu og ýmsir fengu þetta bókstaflega á heilann. Ég man eftir ungri stúlku sem var sjúklingur hjá mér, hún var mikið að velta fyrir sér möguleika þess, að keypti hún jógúrtdollu, rifi upp álhlífina og rispaði sig, hvort hún hugsanlega gæti fengið hiv'smit af því! Það var eiginlega ógerlegt að rökræða þetta við hana, hvort einhver hiv-smitaður hefði hugsanlega getað handfjatlað dolluna og hvort hún þá gæti smitast! Það var margt þessu líkt í gangi. Rif j /jii 11

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.