Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 17
Lífsgæði og lífsgildi okkar
Margra ára draumur rættist í vor þegar Alnæmissamtökin
stóðu fyrir ráðstefnu fyrir hiv-jákvæða, maka þeirra og börn á
Hótel Geysi, þátttakendur voru tæplega 40 talsins.
Yfirskrift ráðstefnunar var Lífsgœði og lífsgildi okkar.
Meginmarkmið ráðstefnunnar var að bera saman bækur og
njóta góðs af samvistum.
Inntakið var:
♦ Hvernig líður okkur
♦ Hvað ætlum við okkur
♦ Hvað getum við gert - saman
♦ Hvernig viljum við að Alnæmissamtökin starfi
Helgin hófst á föstudeginum með rútuferð frá Hverfisgötunni
að Hótel Geysi. Kvöldinu var varið yfir góðum kvöldverði og
notalegri samveru.
Dagskrá laugardagsins hófst með erindi Einars Þórs Jónssonar
Hver eru lífsgceði og lífsgildi okkar - stjórnum við þeim sjálfp
Síðan sagði Hans Nilsson formaður Jákvæða hópsins í Svíþjóð
frá Norrænu lífsgæðarannsókninni sem þá stóð yfir, tilgangi
hennar og framgangi.
Að því loknu fluttu Sigurlaug Hauksdóttir og Einar Þór
Jónsson erindi: Hver er staða hiv-jákvæðra í dag? Hvað hefur
breyst á 20 árum? Hver er framtíðin? Hvernig viljum við að
Alnæmissamtökin starfi?
Fundur NordPol, alnæmissamtaka Norðurlandanna, var
haldinn á sama tíma á sama stað, þannig að unnt var að
samnýta tímann og hitta fólk frá systkinasamtökum okkar.
Gestir frá hinum Norðurlöndunum voru alls átta og þeir áttu
ekki orð yfir okkar fallega land og léttleika okkar íbúanna!
Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í allra besta skapi!
Einar Þór Jónsson