Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 16

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 16
Mikilvægt að finna fyrir styrk hópsins Ráðstefna eins og þessi er ákaflega mikilvæg fyrir samtökin okkar og er mikill styrkur fyrir alla innviði þeirra. Fyrst og fremst skapar svona ráðstefna grundvöll fyrir jákvæða einstaklinga til að hitta aðra jákvæða einstaklinga og deila með þeim upplifunum sínum og finna fyrir styrk hópsins. Það er heldur ekki á hverjum degi sem við setjumst niður og pælum í því hvernig við höfum það sem einstaklingar eða sem hópur og hvernig við getum eflt starfsemi samtakanna. Fyrirlestrarnir voru mjög fræðandi á fremur jákvæðum nótum og vöktu margar uppbyggilegar spurningar í hugum okkar, kannski mest um félagslega stöðu hiv-jákvæðra á Islandi í dag. Aðalniðurstaða ráðstefnunnar, ef svo má að orði komast, fannst mér þó hversu brýn þörf er fyrir jákvæða og aðstandendur þeirra að hitta aðra og upplifa sig sem hluta af stórum hópi þar sem hiv er eðlilegur hluti lífsins. Ég veit til dæmis um par sem ákvað að nota þetta tækifæri til þess að segja barni sínu frá að þau væru hiv-jákvæð. Þeim fannst ráðstefnan, innan um allt þetta jákvæða fólk, kjörinn vettvangur til að útskýra það fyrir barninu. Frítíminn var ekki síður mikilvægur en skipulögð dagskrá. Þó svolítið hafi rignt á okkur var engu að síður gott að fá sér göngutúr upp að Geysi og um nágrennið. Laugardagskvöldið var hápunktur gleðinnar þar sem við héldum eins konar kvöldvöku, með góðum veitingum og svo voru búin til skemmtiatriði á staðnum sem fóru fram á ýmsum tungumálum þar sem gestir voru af mörgum þjóðernum og allir löngu lausir við alla feimni. Krafturinn í hópnum var svo öflugur að maður fór heim fullur af eldmóði og tilhlökkun í að hitta hópinn aftur að ári. Verði svo! Gunnlaugur I. Grétarsson

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.