Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 21

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 21
»ftl Áhugi ónæmisfræðinga var skiljanlegur enda gaf sjúkdómurinn mönnum færi á að skilja ónæmiskerfið mun betur en ella, hvernig það vann og þetta fleytti fræðunum heilmikið áfram. Upphafið var vissulega erfitt S Það má kannski segja að í upphafi vissum við harla lítið hvað gera skyldi. Meðferðin byggðist á því að líkna sjúklingnum, gefa einkennameðferð þannig að honum liði sem best. Við gátum unnið á ýmsum fylgisýkingum, ákveðinni tegund lungabólgu sem var algeng, sveppasýkingu í vélinda sem var mjög mikilvægt að greina rétt og náttúrlega sarkmeini og ýmsum illkynja sjúkdómum sem geta komið upp svo sem eitilfrumukrabbameini. Þetta gátum við meðhöndlað eða reyndum það allavega og undir lokin að veita mönnum þá líknandi meðferð sem unnt var. Veirusýkingar í augnbotnum voru mikið vandamál áþessum tíma, cýtómegalóveirur sem blinduðu nokkra einstaklinga hér. Við gátum að hluta til meðhöndlað þetta, þótt það tækist að vísu ekki alltaf. En sumum tókst að bjarga. H Þeg ar við horfum til baka yfir hiv-faraldurinn á Islandi, held ég að þrátt fyrir allt hafi mikið verið gert hérna fyrir hiv-smitað fólk. Sjúklingar fengu öll lyf sem á þurfti að halda ókeypis og það skipti gífurlega miklu máli. Þrátt fyrir allt höfðu smitaðir einstaklingar mjög greiðan aðgang að sérfræðilegri þekkingu, þótt við værum fáir smitsjúkdómalæknarnir þá voru sjúklingarnir ekki heldur margir og allt þetta skipti og skiptir máli. Enda gekk nokkuð vel að sinna sjúklingunum og kannski stuðlaði það að því að draga úr útbreiðslu sjúkdómsins, hve auðvelt var að ná til einstaklinganna með fræðslu. Við komumst að því síðar meir að það voru ekki eins margir „þarna úti" smitaðir eins og við héldum fyrst, Fólk skilaði sér nokkuð vel inn til okkar. Mótefnaprófin staðfestu sýkingar S Árið 1985, þegar mótefnaprófin komu fram, þá hefði mátt halda að eðlilegt væri að þau yrðu gerð í tengslum við sýklafræði- eða veirufræðideildina, en það var ákveðin hræðsla við sjúkdóminn þar innan dyra, sem leiddi til þess að Haraldur Briem tók það upp hjá sjálfum sér í rauninni að framkvæma prófin á Borgarspítalanum. Við fengum nokkuð góða aðstöðu á rannsóknarstofunni og ástæðan fyrir því að við gátum gert þetta var sú að Eggert Jóhannsson, sem var yfirlæknir þar, hann ákvað þetta upp á sitt eindæmi, eftir að Rauði krossinn veitti fjárstyrk til kaupa á nauðsynlegum tækjabúnaði.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.