Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 29

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 29
NondPol nonnœnn samsCanPsveOCvangun NordPol er samstarfsvettvangur hiv-jákvæðra á Norðurlöndum og er skrifstofan til húsa í Stokkhólmi. Þegar þetta er ritað stendur fyrir dyrum fundur í Helsinki en síðasti fundur þar á undan var haldinn í Stokkhólmi 1.-2. september. I NordPol eiga sæti tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna. Fundir eru haldnir tvisvar eða þrisvar á ári (einn þeirra aðalfundur) og er þar rætt er um ástandið í hverju landi og reynt að móta sameiginlega stefnu. Síðasti fundurinn sem haldinn var á Islandi var á Hótel Geysi í apríl síðastliðnum og var þá í tengslum við ráðstefnu Alnæmissamtakanna. Fyrir Islands hönd var skýrt fráþví að framkvæmdastjóraskipti væru framundan hjá Alnæmissamtökunnum. Jafnframt umræða um innra starf samtakanna og hugmyndum um leiðir til styrkingar meðal hiv-jákvæðra. Sagt frá velheppnaðri ráðstefnu á Geysi. Greint frá því að heimasíðan væri í vinnslu. Einnig var skýrt frá fræðslu- og forvarnastarfinu sem Alnæmissamtökin standa fyrir í grunnskólum um allt land. Frá Danmörku: Tveggja ára fangelsisdómur hefur verið staðfestur yfir karlmanni fyrir að smita þrjá aðra af hiv. Niðurstöður lífsgæðakönnunar meðal hiv-jákvæðra eru væntanlegar í nóvember. Læknar og félagasamtök hvetja fólk frekar í dag til að fara í hiv-próf en gert var fyrir 10 árum. Þetta mun vera vegna betri árangurs af lyfjameðferðum, Ráðgjafi frá hiv-Danmark er farinn að vera ákveðna daga á Ríkissjúkrahúsinu til að vera nýsmituðum til halds og trausts. Á fyrri helmingi ársins 2007 hefur hiv-tilfellum fjölgað mjög, eða um 50%. Ungir hommar eru sagðir vera nokkuð fjölmennir í þessum hópi. Frá Noregi: Það hafa verið miklir fjárhagsörðuleikar hjá hiv-Noregi, mikil niðurskurður frá félagsmálaráðuneyti. Samtökin hafa flutt í nýtt húsnæði (lOOm frá gamla húsnæðinu) í Christian Kroghs gate 34. Hiv-Noregur er að opna nýja heimasíðu. Innan við 10% hiv-jákvæðra í landinu eru meðlimir í hiv-Norge, samt sem áður snúa margir sér þangað eftir stuðningi og ráðgjöf, Fjöldi nýsmitaðra jókst mjög árið 2006, varð alls 276 manns. Frá Svíþjóð: Málþing var haldið í haust um hvernig skuli standa að fyrirhugaðri fræðsluherferð um hiv í skólum landsins. A fyrsta árshelmingi 2007 voru skráð 252 hiv- tilfelli. Eitthundrað fimmtíu og þrír karlar og 99 konur. Þetta er mesti fjöldi frá upphafi. Skráð hiv-smit eru nú 7.700 í Svíþjóð og af þeim lifa um 4.000. Fjöldi smitaðra í ár felur í sér 40% aukning frá fyrra ári, Aukningin er mikil meðal homma. Jafnframt hefur klamydíutilfellum fjölgað mikið á árinu eða um 52%. Frá Finnlandi: Fulltrúar Finnlands sögðu frá forvarnarverkefni þar í landi sem snýr að sprautufiklum. Þriggja ára fræðsluverkefni er að fara stað, sem felur í sér að styðja hiv-jákvæða á smærri stöðum úti á landi við að stofna stuðningshópa. Þeim fjölgar stöðugt sem leita til Alnæmissamtakanna þar í landi eftir stuðningi og ráðgjöf. Það kallar á aukið fjármagn, stærra húsnæði og fleira starfsfólk. Fyrstu átta mánuði ársins höfðu 120 einstaklingar greinst hiv-jákvæðir í Finnlandi. Klamydíutilfellum hefur fjölgað. Ymislegt fleira kom til umræðu. Þar má nefna væntanlegar niðurstöður lífsgæðakönnunar og hvernig skuli nota þær upplýsingar. Ráðstefna verður í Stokkhólmi 7. nóvember (hefur þegar verið haldin er blaðið kemur út) og meginþema hennar er fordæmingin (stigmatisering). Þeirsemhafaáhugaáaðfaraáalþóðlegualnæmisráðstefnuna í Mexíkó 2008 geta sótt um það í desember. Spurning um að hvert land ræði um hverja fulltrúa skuli senda fyrir næsta fund. Margt fleira var rætt. Næsti fundur NordPol verður haldinn í Helsinki 16.-18. nóvember (verður afstaðinn við útkomu þessa blaðs).

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.