Tónamál - 01.11.1970, Page 2
RIT FÉLAGS ÍSLENZKRA
HLJÓMLISTARMANNA
Ritstjóri: Ólafur Gaukur.
Ritnefnd: Hrafn Pálsson, Gunnar
Egilson, Sverrir Garðarsson,
Skafti Sigþórsson.
Aósetur: Laufásvegur 40, Reykja-
vík, sími 20255.
Setning og prentun: Lithoprent hf.
í STJÓRN FÉLAGS ÍSL.
HLJÓMLISTARMANNA:
Formaður: Sverrir Garðarsson.
Varaformaóur: Einar B. Waage.
Gjaldkeri: Hafliði Jónsson.
Ritari: Guðm. Finnbjörnsson.
Meðstjórnandi: Einar Hólm Ólafs-
son.
Varastjórn: Karl Lilliendahl,
Katrín Árnadóttir, Pétur Þor-
valdsson, Kristján Stephensen,
Grettir Björnsson.
Trúnaðarmannaráð: Ragnar
Bjarnason, Gunnar Egilson, Árni
Scheving, Stefán Stephensen,
Ólafur Gaukur Þórhallsson,
Ingvar Jónasson.
Til vara í trúnaðarmannaráði:
Sveinn Óli Jónsson, Úlfar Sig-
marsson, Jón Sigurðsson (bassi),
Árni ísleifsson, Guðmundur Óli
Ólason, Ragnar Páll Einarsson.
Endurskoðendur: Edwin Kaaber,
Indriði Bogason.
Til vara: Svavar Halldórsson,
Einar Jónsson.
Skemmtinefnd til tveggja ára:
Einar B. Waage, Karl Liiliendahl,
Árni Scheving, Katrín Árnadóttir,
Guðmundur Finnbjörnsson, Þur-
íður Sigurðardóttir, Hrafn
Pálsson.
Fjáröflunarnefnd: Elfar Berg,
Stefán Jónsson, Helgi Kristjáns-
son.
FORSÍÐUMYND
Forsíðumyndin að þessu sinni er til-
heyrandi greininni „Frá Grjóta-
þorpi til Great Britain“, og sýnir
hljómsveit Björns R. Einarssonar,
sem minnzt er á í greininni og lék
að Hótel Borg. Á myndinni eru frá
vinstri: Vilhjálmur Guðjónsson, Er-
win Koeppen, Guðm. R. Einarsson,
Björn R., Viðar Alfreðsson, og við
píanóið situr Guðjón Pálsson.
f
tveir
hópar
Hér hefur göngu sína rit Félags ísl. hljómlistarmanna, sem
hlotið hefur nafnið TÓNAMÁL. Eins og öllum mun kunnugt,
hefur félaginu vaxið mjög fiskur um hrygg á undanförnum árum,
og tala félagsmanna aukizt ört. Ekkert bendir til að í vændum
sé nokkuð lát á þeim vexti og viðgangi — miklu fremur hið
gagnstæða. Og margir félagsmanna, bæði eldri og yngri, sýna
áhuga sinn á málefnum heildarinnar í verki með því að mæta
á fundum og láta sig málefni félagsins að öðru leyti nokkru
skipta. Þetta er auðvitað vel.
Hinir eru þó, því miður, fleiri, sem ekki gefa gaum að sam-
tökum sínum sem skyldi, og láta iðulega sem vind um eyrun
þjóta hina ýmsu þætti félagsmálanna, sem þó eru auðvitað hags-
munamál hvers og eins félagsmannsT Þeir hugsa kannski sem
svo: „Það er bezt að láta þá á skrifstofunni pæla í þessu félags-
stappi“. Til þannig þenkjandi félagsmanna á blað þetta talsvert
erindi með ýmsum upplýsingum varðandi félagsmálin, ásamt með
öðru léttara efni um félagana sjálfa.
Hinn hópurinn, virki hópurinn, sem mætir á fundum og tek-
ur þátt, er þó sem betur fer allstór. Sá hópur mun vonandi hafa
nokkuð gagn og e. t. v. einnig ánægju af blaði þessu.
Og þá er kominn mergurinn málsins, og verðugur höfuðtil-
gangur þessa blaðs, nefnilegafað sameina hópana tvo, gera úr
þeim einn stóran og sterkan hop, sem stendur saman um félags-
málin og tekur virkan þátt í útgáfu félagsblaðsins, eftir því sem
efni standa til. Takist þetta, þó ekki verði nema að nokkru leyti,
er bæði fé og tíma vel varið í útgáfustarfsemina.J
Við verðum að fá báða hópana til að leggjast á eitt — að-
stoða okkur við útgáfu félagsblaðsins með því að senda myndir,
sem eiga erindi í rit sem þetta (af hljómsveitum, gömlum og
nýjum, svo og hvers konar viðburðum þessu tengdum), skrifa
greinar, eða gefa upplýsingar. Skrifstofa félagsins mun veita
þessu viðtöku, og TÓNAMÁL munu verða þeim mun íjöl-
breyttara blað, sem afraksturinn af þessari áskorun verður ríku-
legri. í þeirri von að svo verði, hleypum við TÓNAMÁLUM
af stokkunum. — Ó. G.
2 TÓNAMÁL