Tónamál - 01.11.1970, Side 5

Tónamál - 01.11.1970, Side 5
Sverrir Garðarsson, formaður F. (. H., gluggar í gamla pappíra: Bjarni Böðvarsson. byrjunin HVERNIG F. I. H. VARÐ TIL FRÁ GRJÖTA- ÞORPI TIL GREAT Framh. BRITAIN á þessum sokkabandsárum. Nei, og aftur nei. Allar stelpurnar í Miðbæjarskólanum litu á hann eins og minkapels, enda var hann undramaður og kvikmyndastjarna. Þó var eins og stjömunni stæði á sama um alla þessa frægð, enda stefndi hugurinn lengra. Fjör fer þó fyrst að færast í æðar Viðars, þegar hann tekur til við trompetinn, þá 16 ára gamall. Verður hinn gamalkunni tromp- etleikari, Höskuldur Þórhallsson, til að leiðbeina honum fyrsta kastið. TIL MOSKVU Það liður heldur ekki langur tími, unz Viðar er kominn inn í danshljómsveitir borg- arinnar. Þegar hann er um tvítugt er hann kominn í hljómsveit Gunnars Ormslevs. En sú hljómsveit fór til Moskvu og gerði allt villt í fögnuði, enda skipuð auk Gunnars og Viðars, þeim Árna Elfar, Sigurbirni Ing- þórssyni og Guðjóni Inga Sigurðssyni, en söngvari var Haukur Morthens. Önnur afbragðs hljómsveit, sem hann lék í á þessum árum, var hljómsveit Björns R. Einarssonar. Þar voru á ferð auk þeirra Björns, þeir Vilhjálmur Guðjónsson, Guð- jón Pálsson, Guðmundur R. Einarsson og Erwin Koeppen. Myndu margir þeir, sem komnir eru yfir þrítugt, fagna því, ef slíkar hljómsveitir stingju upp höfðinu á ný, enda topp-menn í hverju sæti. TVÖ ÁR í HAMBORG Þegar hér er komið sögu, eða árið 1959, þá tekur Viðar sig upp og fer til Þýzkalands. Dvelur hann næstu tvö árin við nám í Ham- borg, og nýtur þar beztu fáanlegrar kennslu. Síðan kemur hann heim og leikur fyrsta trompet í Sinfóníuhljómsveit íslands, en á sama tíma er núverandi fyrsti trompet sveit- arinnar við lokanám erlendis. Á næsta starfs- ári er Viðari boðin þriðja trompetleikara staðan við Sinfóníuhljómsveitina, en það gerði hann sér ekki að góðu, svo hann kú- vendir sínu kvæði í kross og fer til áfram- haldandi náms í London. Viðar innritast þar í Guildhall School of Music and Drama og gerir svo stóra breyt- ingu á stefnu sinni skömmu síðar. Hann leggur trompetinn á hilluna og tekur til við Valthorn, eða franskt horn, eins og flestir munu kalla það. HÆSTA PRÓF Til að segja langa sögu á stuttan hátt, þá er Viðar við þennan sama skóla í 4 ár, og Framhald á bls. 15 A árunum eftir 1930 var kreppa á ís- landi. Alþýða manna bjó við bág kjör. í Reykjavík einni voru á sjötta hundrað verkamenn atvinnulausir, en þá var íbúa- tala Reykjavíkur um 28 þúsund. Aðsteðjandi erfiðleikar þjöppuðu al- þýðu landsins saman. Baráttan var hörð á þessum árum. Núverandi forseti Alþýðusambands ís- lands, Hannibal Valdimarsson, barðist í flæðarmálinu í Súðavík og atvinnu- rekendur fluttu hann með valdi frá Bolungavík til ísafjarðar. Á götum Reykjavíkur ríkti hernaðarástand svo jaðraði við borgarastyrjöld. Tala með- lima Alþýðusambandsins jókst um helming og fjölmörg stéttarfélög voru stofnuð. ÚTLENDINGAVANDAMÁLIÐ Það hlaut að koma að því að hljóm- listarmenn stofnuðu með sér félag, erf- iðleikarnir voru af sama toga og ann- arra og þó ívið meiri, útlendingavanda- málið var aðal baráttumálið fyrstu 15 árin. íslenzkir hljómlistarmenn máttu búa við þá smán, í sínu eigin landi að þurfa að víkja af vinnustað í miðju starfi, ef útlendur losnaði annars staðar. Það var því engin tilviljun að fyrsta tillagan, sem borin var fram á fundi í F. í. H., var svohljóðandi: „Vegna þess hvað útlendir hljóð- færaleikarar hafa tekið mikla vinnu frá íslenzkum, bannar félagið hér með meðlimum sínum að spila á móti út- lendingum nema fyrir fullt gjald sam- kvæmt gjaldskrá félagsins". Það undrar víst engan að flutnings- maður tillögunnar var enginn annar en Bjarni Böðvarsson. Hann varð strax í upphafi hinn sjálfkjörni foringi. SKRIFAÐ BRÉF Þórhallur Árnason cellóleikari hafði verið starfandi hljóðfæraleikari í Kaup- mannahöfn og Hamborg í rúman ára- tug og var meðlimur í stéttarfélögum hljómlistarmanna í báðum löndunum, hafði hann töluverða reynslu af veru sinni þar. Fyrri hluta febrúarmánaðar árið 1932 skrifuðu þeir félagar, Bjarni og Framhald á bls. 15 TÓNAMÁL 5

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.