Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 3

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 3
The Gay Pride festivities in Reykjavík, organized by five Icelandic gay organizations and action groups, have been a marvellous success for five years. A huge, merry and colorful Gay Parade through the main shopping street Laugavegur in the city center and a grand out- door concert attended by 20–30.000 participants each year, lesbians and gay men, friends, relatives, fellow citi- zens and numerous foreign visitors showing solidarity with the gay cause on the second weekend of August. This year´s Gay Pride celebrations, on Saturday August 7th, have been prepared to meet our wildest expectations, a Gay Parade even more colorful than previous years´ and a variety of well known professional entertainers performing on a big stage. The gay rights campaign in Iceland has a history of twenty five years. A chronicle of a hard fight and vic- tory almost unique in the world. From being an invisible group of an oppressed minority, the lesbians and gay men in Iceland have now gained social and legal rights which is comparable to the best of its kind in the world. This is clearly reflected in our festivities – a true mani- festation of our pride and ambitions. We are pleased to welcome you to our festivities, Reykjavík Gay Pride 2004. We emphazise that gay soli- darity can only be realized universally. Thank you for joining us, thank you for adding your own special touch of color to our rainbow. Sjötta árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin daga hátíðlega í Reykjavík. Eftir mikinn og vandaðan undir- búning allt frá síðustu hátíð, fjölmenna allir sem vilja sýna samstöðu með málstað samkynhneigðra í fjörmikla og skrautlega gleðigöngu niður Laugaveg og á glæsi- lega útitónleika í Lækjargötu laugardaginn 7. ágúst. Á hátíðinni í ágúst minnum við sjálf okkur og aðra á mikilvægi þess að efla sýnileika okkar og stoltar tilfinningar. Með hátíðahöldunum minnum við bæði sjálf okkur og aðra þegna þessa lands á það að lesbíur og hommar á Íslandi eiga sér menningu og sögu, þau eiga fjölskyldur og vini sem vilja deila gleði og stolti með þeim sem náð hafa lengra en samkynhneigt fólk flestra annarra ríkja í mannréttindabaráttu sinni. Hinsegin dagar í Reykjavík eru orðnir hefðbund- inn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný í hvert sinn. Í ár munu allir þeir slást í hópinn sem voru fjarri góðu gamni í fyrra. Vonandi taka þeir með sér systkini sín og foreldra, afa og ömmur, ættingja og vini. Leit okkar að frelsi, stolti og mannvirðingu er nefnilega ekkert einkamál samkynhneigðra, hún er mál allrar þjóðarinn- ar og alls þess heims sem lætur sig mannlega hamingju varða. Á hátíðinni í ágúst sameinast allir undir regn- bogafánanum sem táknar litrófið í margbreytilegri menningu samkynhneigðra. Þótt litirnir séu margir mynda þeir saman einn skínandi regnboga. Samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík 2004 Welcome to Reykjavík Gay Pride 2004! Velkomin á Hinsegin daga!

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.