Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 9

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 9
Þær eru margar um hituna, en við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að Skjöldur Eyfjörð – Míó – er draggdrottning Íslands. Hann er sannkölluð „working girl“, búningar, hár og förðun, allt er þetta frá honum sjálfum komið – og hann gefur allt sem hann á í verkið! Skjöldur rekur eigin módelskrifstofu, Element Models, auk þess er hann afbragðs ljósmyndari og eftirvinnsla hans á eigin ljós- myndum hefur vakið mikla athygli. Af síðustu afrekum Skjaldar í athafnalífinu má nefna að hann starfar nú sem skemmtanastjóri og plötusnúður á nýjasta gay-staðnum í Reykjavík, Jóni forseta. Nýverið hóf Skjöldur svo að enja raddböndin og á hátíðasviði Hinsegin daga í Lækjargötu mun hann flytja okkur einn af alþjóða- söngvum samkynhneigðra, „I will Survive“, í glænýrri íslenskri þýð- ingu Heimis Más Péturssonar. Meira um lista- og athafnamanninn Skjöld á heimasíðu hans www.folk.is/skjoldureyfjord each show of the talented multi-artist skjöldur “Mio“ eyfjord is his own production, costume, hair and make-up. his own model agency, element Models, is widely known and he is an excellent pho- tographer. on top of that he is the entertainment director at reykjavíks newest gay venue jón forseti. at the open air concert saturday 7 august Mio will sing one of our gay anthems in icelandic. Míó 9

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.